Bæjarins besta - 14.02.2008, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 20088
STAKKUR SKRIFAR
Tíðindalaust af suðurvígstöðvunum
Stakkur hefur
ritað vikulega pistla í
Bæjarins besta í mörg
ár. Skoðanir hans á
mönnum og málefn-
um hafa oft verið
umdeildar og vakið
umræður. Þær þurfa
alls ekki að fara
saman við skoðanir
útgefenda blaðsins.
Þrátt fyrir það bera
ábyrgðarmenn
blaðsins ábyrgð á
skrifum Stakks á
meðan hann notar
dulnefni sitt.
Kristinn H. með sjónvarpsþátt á ÍNN
Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis, er kominn með fastan þátt á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Að
sögn Kristins hefur hann ekki ákveðið nafn á þáttinn og er því vinnuheitið enn sem komið er Kristinn H. Þættirnir hafa
verið á dagskrá einu sinni í mánuði frá því í haust en nú verða tveir þættir sýndir í mánuði. Hver þáttur er hálftími og
fær Kristinn til sín einn viðmælanda hverju sinni og tekur fyrir eitt viðfangsefni. „Í fyrsta þáttinn fékk ég Örn Pálsson til
þess að ræða fiskveiðiráðgjöfina og gagnrýni hans á hana, síðan formann Bændasamtakanna Harald Benediktsson. Í
síðustu viku var Árni Páll Árnason, varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis gestur minn til þess að kynna Evrópu-
skýrslu utanríkisráðherra og útskýra sjónarmið þeirra sem aðhyllast aðild Íslands að Evrópusambandinu“, segir Kristinn.
Veitingastaðurinn Við
Pollinn á Ísafirði tekur
þátt í hátíðinni „Fóður og
fjör“ sem haldin verður
víðs vegar um land dag-
ana 21.-24. febrúar. Fjöl-
margir veitingastaðir hafa
tekið sig saman og ætla
að kynna íslenskt hráefni
til matargerðar auk þess
sem hvert landsvæði ætl-
ar að kynna það sem er að
vetrarlagi. Á undanförn-
um árum hefur matarhá-
tíðin Food & fun í Reyk-
javík áunnið sér veglegan
sess í borgarlífinu í febr-
úar og nú vilja veitinga-
staðir úti á landi bjóða
upp á spennandi matseðil
í stórbrotinni íslenskri nátt-
úru á þessum tíma árs.
„Hátíðin Fóður og fjör
er fyrir heimamenn jafnt
sem gesti jafnt Íslendinga
sem útlendinga. Hátíðin
er fyrir alla þá sem vilja
njóta stórkostlegrar ís-
lenskrar náttúru í vetrar-
ham, menningar á hverju
svæði fyrir sig auk þess
að láta dekra við sig í mat
og drykk“, segir í bréfi
Áslaugar Alfreðsdóttur
fyrir hönd undirbúnings-
hóps verkefnisins til bæj-
arráðs Ísafjarðarbæjar.
Gert er ráð fyrir að 11
veitingastaðir um allt land
muni taka þátt í hátíðinni
en hún verður haldin í
samstarfi við Flugfélag
Íslands og Útflutningaráð.
– thelma@bb.is
Fóður
og fjör
Ákvörðun leiklistarráðs að
styrkja ekki Act Alone setur
stórt strik í reikninginn er varð-
ar framtíð leiklistarhátíðarinn-
ar en að því er fram kemur á
vef Kómedíuleikshússins stefn-
ir í að hátíðin í ár verði sú
síðasta. „Hátíð sem þessa er
ekki hægt að starfrækja nema
menntamálaráðuneytið komi
að málum og þá er bara spurn-
ing hvort það sé einhver áhugi
fyrir því að hafa leiklistarhátíð
á Íslandi eða ekki? Samkvæmt
nýjustu fréttum er svo ekki og
harmar Kómedíuleikhúsið
mjög þá ákvörðun. Kómedíu-
leikhúsið mun þó ekki leggja
árar í bát á svona kómískan
hátt og bíður nú eftir viðbrögð-
um frá menntamálaráðuneyt-
inu aka leiklistarráði“, segir á
komedia.is.
Leiklistarráð, sem úthlutar
árlega styrkjum til atvinnu-
leikhópa og starfar á vegum
menntamálaráðuneytis, hafn-
aði umsókn Act Alone þótt
hátíðin hafi fengið 900.000
króna styrk á síðasta ári. „ Af
hverju var hátíðin þá styrkt í
fyrra? Er nóg að styrkja hana
bara einu sinni þegar um ár-
lega hátíð er að ræða. Hvernig
á líka að vera hægt að byggja
upp leiklistarhátíð ef aðeins
er horft á eitt ár í einu. Þetta
hlýtur að kalla á skýringar frá
Leiklistarráði og um leið er
mikilvægt að fá uppá borðið
hver sé stefna Leiklistarráðs.
Mikið væri nú gaman að fá að
sjá það á blaði en það hlýtur
að vera réttur okkar sem sækja
þar um“, segir á vef Kómedíu-
leikhússins.
Act alone sem er ein stærsta
listahátíðin á landsbyggðinni
verður haldin dagana 2.-6. júlí
í sumar. Meðal þess sem verð-
ur á dagskránni í ár eru tvær
einleiknar danssýningar, fjöl-
margir íslenskir einleikir og
tvær erlendar gestasýningar
þar á meðal verðlaunasýning
frá Búlgaríu sem nefnist Chick
with a Trick.
Act alone er að auki eina
árlega leiklistarhátíðin á Ís-
landi og er þetta fimmta árið í
röð sem hátíðin er haldin. Að-
gangur ókeypis en sá háttur
hefur verið hafður á frá upp-
hafi.
– thelma@bb.is
Næsta Act Alone hátíð sú síðasta?
„Aðstæður í dag vinna gegn ný-
sköpun í atvinnulífi svæðisins“
Atvinnumálanefnd Ísafjarð-
arbæjar gerir kröfu um að
hægt verði að fljúga um Ísa-
fjarðarflugvöll í millilanda-
flugi. „Aðstæður í dag vinna
gegn nýsköpun í atvinnulífi
svæðisins og möguleikum á
að þróa þjónustu við A-Græn-
land“, segir í áliti nefndarinn-
ar. Rætt var um flug frá Ísafirði
til A-Grænlands á fundinum
og nauðsyn þess að samgöngu-
yfirvöld opni völlinn fyrir flug
að nýju á fundi nefndarinnar í
gær. Vegna reglugerðarbreyt-
inga má ekki nota flugvöllinn
nema settar verði upp nauð-
synlegar girðingar og tækja-
búnaður til að uppfylla kröfur
reglugerðar. Bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar, Halldór Halldórs-
son, var viðstaddur fundinn
og gerði grein fyrir því að
hafnarstjóri hefur haldið áfram
viðræðum við fulltrúa græn-
lenskra námafyrirtækja. Ekki
hefur fengist nein niðurstaða
í það mál ennþá.
Hlutverk Ísafjarðarflugvall-
ar í Grænlandsflugi var um
langt árabil burðarás í þjón-
ustu Flugfélags Íslands við
fyrirtæki á A-Grænlandi þar
til breyttar reglur tóku gildi
og flugvöllurinn hafði ekki
lengur leyfi til millilandaflugs.
Þótti það ansi bagalegt þar
sem Ísafjarðarflugvöllur er
eini flugvöllurinn á landinu
sem getur sinnt ákveðnu flugi
vegna nálægðar við Græn-
land. Í flugið eru notaðar Twin
Otter flugvélar með skíðaút-
búnaði, en vegna skíðanna
minnkar flugdrægi vélanna og
því er ekki hægt að fljúga
nema allra skemmstu leið yfir
hafið.
Einungis fjórir millilanda-
flugvellir eru nú á Íslandi. Ísafjarðarflugvöllur.
Hafi einhver látið sér detta í hug að stjórnmálmenn í Reykjavíkurborg
myndu reka af sér slyðruorðið og setja fram skýr markmið og gefa skýr svör
við spurningum, þá brást það. Í borgarstjórn Reykjavíkur ríkir vont ástand.
Enginn nýtur fulls trausts lengur og það eina sem hægt væri að gera til að
bjarga málum væri að skapa samstöðu allra flokka og ráða ópólitískan
borgarstjóra, svona rétt eins og framkvæmdastjóra í fyrirtæki sem tekur við
fyrirskipunum frá borgarstjórn og þá fyrst og fremst á grundvelli gagnlegrar
stefnumótunar. Formaður borgarráðs var ekki á þeim buxunum, þótt skoðana-
kannanir sýni hann rúinn trausti kjósenda og ljóst sé að Sjálfstæðisflokkurinn
sé langleiðina komin á sama stig.
Á meðan geta aðrir flokkar skýlt sér á bak við vandræði Sjálfstæðisflokks-
ins og talið sjálfum sér og öðrum trú um að þeir séu eitthvað betri, en það
eru þeir ekki í augum hins almenna Íslendings sem hrekkur við um leið og
minnst er á borgarstjórn og borgarfulltrúa. Þessi staða er vond fyrir alla.
Lýðræðið þrífst ekki vel þegar kjörnir fulltrúar kjósenda njóta ekki trausts
umbjóðenda sinna. Þannig er málum komið nú. Til þess að unnt sé að sinna
þörfum kjósenda og landsmanna allra þarf að ríkja stöðugleiki, gangkvæmur
trúnaður og virðing. Allt er þetta horfið bak við sjóndeildarhringinn í bil, að
minnsta kosti. Vinda verður ofan af þessu ástandi. Við viljum fólk sem
hægt er að treysta, eiga við rökræður og og við viljum geta treyst því til að
finna lausnir sem reynast ásættanlegar.
Framundan er efnahagslægð með minnkuðum kvóta og tilheyrandi
vandamálum, sem reyna munu á þjóðina og einstaklinga, misjafnlega þó
eftir aðstæðum. Við viljum sjá að unnið sé að því að finna lausnir sem
byggja á því að vandinn sé rétt greindur og lausnir fundnar í samræmi við
greiningu. Svo lengi hefur þjóðin búið við efnhagsvöxt að hætt er við að
öllum bregði á þessu og næsta ári, þegar samdráttur fer að segja til sín fyrir
alvöru. Þá dugar ekki að segja að menn hafi axlað ábyrgð ef það er ekki gert
í samræmi við þá miklu ábyrgð sme stjórnmálamenn verða að standa undir.
Skásta lausnin í Reykjavík hefði verið sú að ríkisstjórnarflokkarnir hefur
geta náð saman um stjórn Reykjavíkurborgar út kjörtímabilið. Sú lausn
sýnist út úr myndinni nú, svo margt stoltið er nú sært og stór orð hafa fallið
á báða bóga, því miður. Það kemur alltaf dagur eftir þennan og kosningar
sem þeir stjórnmálamenn sem leita vilja endurkjörs verða að horfast í augu
við. Það gildir bæði um borgarstjórn Reykjavíkur, aðrar sveitarstjórnir og
Alþingi. Kjósendur munu krefjast þess þegar að kreppir að verkin verði
látin tala og menn séu ekki að viðra fjölskyldur sínar sér framdráttar eða
skjóls. Það kostar klof að ríða röftum. Einfaldara getur það ekki verið.