Bæjarins besta - 14.02.2008, Side 14
FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 200814
Málverkasýning á bílasölu
Myndir eftir myndlistarmanninn Pétur Guðmundsson hafa síðasta eina og
hálfa árið hangið uppi í sýningarsal Heklu á Ísafirði. Pétur hefur passað
sig á að láta sömu myndirnar ekki hanga uppi of lengi og skipt þeim
reglulega út. Hann var að hengja upp nýjar myndir þegar ljósmyndara
bar að garði, skipta þeim inn á eins og væri hægt að segja á fótboltamáli.
Myndirnar eru flestar akrýlmyndir en einnig sýnir hann þarna „assem-
bljon“ það sem kalla mætti samtíning sem og verk gerð úr ullargærum.
Velheppnað sundmót hjá UMFB
Um 20 keppendur mættu til leiks á sundmót UMFB sem haldið var íþrótta-
miðstöðinni Árbæ í Bolungarvík á laugardag, auk þess sem yngstu krakkarnir sýndu
sundtökin. „Þetta var fyrsta mót krakkanna þar sem sunddeildin hefur ekki verið
starfrækt í nokkurn tíma fyrr en í vetur. Þetta var góður undirbúningur fyrir
krakkana sem stefna væntanlega á þátttöku í öðrum mótum í nánustu framtíð“,
segir umfb.is. Mótið þótti heppnast vel en að móti loknu fengu allir keppendur
verðlaun fyrir þátttökuna. Þjálfari sunddeildarinnar er Svala Sif Sigurgeirsdóttir.
Andstæðingar olíuhreins-
unarstöðvar á Vestfjörðum
hafa sig nokkuð í frammi en
minna heyrist í þeim sem eru
henni hlynntir. Í málflutningi
andstæðinganna koma m.a.
fram þau rök að stöðin sé ekki
umhverfisvæn, að hún henti
ekki á Vestfjörðum, þar eigi
að horfa til þess að byggja upp
með náttúruvænum hætti og
að svona stór vinnustaður dragi
allt til sín og dragi úr frum-
kvæði svæðisins. Svo er oft
gefið í skyn að þessar fyrir-
ætlanir snúist um hagsmuni
einhverra allt annara en íbúa
Vestfjarða.
Undirritaður er sammála
því að draumastaðan fyrir
Vestfirði og Vestfirðinga er
að byggja upp öflugt atvinnu-
líf án stóriðju eða starfsemi
sem mengar mikið. Það hafa
Vestfirðingar einmitt reynt að
gera undanfarna áratugi enda
hefur samdráttur í fiskveiðum
og vinnslu staðið lengi yfir.
Til að undirstrika þennan vilja
Vestfirðinga setti undirritaður
fram þá hugmynd árið 2003
að við myndum samþykkja
stefnu um stóriðjulausa Vest-
firði. Að lokum var samþykkt
að vinna þannig stefnu en
niðurstaða slíkrar vinnu hefur
ekki litið dagsins ljós ennþá.
Sama ár setti ég einnig fram
tilboð til þeirra fjölmörgu sem
fram komu fyrir hönd um-
hverfisverndarsinna vegna
framkvæmda á Austurlandi.
Það ágæta fólk setti fram þá
fullyrðingu að ef hætt yrði
við virkjun á hálendi Austur-
lands og ef hætt yrði við álver
á Reyðarfirði þá yrði hægt að
skapa jafnmörg störf með
aðferðum umhverfisverndar-
sinna. Talað var um 700 glæný
störf.
Þetta fannst mér vera upp-
lagt tækifæri fyrir Vestfirði.
Búið var að ákveða að skapa
fjölda starfa á Austurlandi
með virkjun og álveri og þess
vegna væri upplagt að sanna
þessa umhverfisvænu hugmynda-
fræði á Vestfjörðum. Með þetta
í huga setti ég fram tilboð um
samvinnu við umhverfis-
verndarinna um að skapa 700
ný störf á Vestfjörðum. Því
var vel tekið en hefur ekki
gengið eftir. Störfum hefur
fækkað mikið síðan árið 2003.
Ég hef séð greinar þar sem
mér er borið á brýn að vera að
skamma umhverfisverndar-
fólk fyrir þetta. Það er fjarri
mér, einungis er verið að
benda á þá staðreynd að þetta
hefur ekki gengið eftir. Margt
gott hefur þó gerst enda víða
öflugir einstaklingar hér í at-
Af hverju olíu-
hreinsunarstöð?
vinnulífinu sem eru að reyna
fyrir sér á nýjum sviðum.
Þegar þetta er skoðað í
samhengi, fækkun starfa í
sjávarútvegi og landbúnaði og
fækkun íbúa í fjölda ára þá er
ekkert skrýtið þó Vestfirðing-
ar vilji skoða þann möguleika
að byggð verði olíuhreinsun-
arstöð sem skapi 500 störf.
Fleiri störf hafa tapast á síð-
ustu 10 árum þannig að fjöldi
starfanna mun ekki skapa
vandamál á svæðinu. Enda
sjáum við fyrir okkur að fólk
flytji til okkar vegna nýrra
starfa og er kominn tími til að
við sjáum fólki fjölga hér á
ný.
Ég hef mikla samúð með
sjónarmiðum umhverfisvernd-
arsinna og tel mig í hópi þeirra.
Samt verðum við að líta á
stöðuna eins og hún er. Okkur
hefur ekki tekist að skapa hér
nægilega sterkt mótvægi í
störfum og búsetu til að fjölga
hér fólki. Þess vegna er ekki
hægt annað en að skoða mjög
alvarlega hugmyndir um bygg-
ingu olíuhreinsunarstöðvar.
Við værum ekki að skoða þær
ef okkur hefði tekist að byggja
upp ný atvinnutækifæri af
meiri krafti með öðrum að-
ferðum.
Þetta hljóta allir að skilja.
Við Vestfirðingar viljum hafa
Vestfirði í byggð og við vilj-
um eflast. Við sjáum hvað er
að gerast á þenslusvæðum
landsins og viljum fá tækifæri
til að taka þátt í því. Hvort
það verður olíuhreinsunarstöð
eða annað verður að koma í
ljós. Við getum ekki leyft okk-
ur að hafna nýjum atvinnu-
tækifærum fyrirfram nema
vera með raunhæfar leiðir til
að ná sama árangri með öðrum
aðferðum.
Tilboðið um sköpun 700
nýrra starfa á Vestfjörðum
með aðferðum umhverfis-
verndarsinna stendur enn af
hálfu undirritaðs.
Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Halldór Halldórsson.