Iðnaðarmál - 01.06.1954, Side 11

Iðnaðarmál - 01.06.1954, Side 11
Or vélasal prjónadeildar Fataverksmiðjunnar Heklu. ER AÐ HEFJAST ÚTFLUTN- INGUR Á PRJONLESVÖRUM ÚR ÍSLENZKRI ULL ? Fataverksmiðjan Hekla á Akureyri, eign SIS, hefur gert lofsamlega tilraun með að flytja út prjónlesvörur úr óblandaðri, íslenzkri ull. Fram- kvæmdastjóri Heklu er Asgrfmur Stefánsson, og hefur hann að undanförnu unnið að þvf af miklum dugnaði að gera þessa tilraun framkvæmanlega með þvf að fullkomna vélakost verksmiðjunnar, bæta vinnuaðferðir og stuðla að strangri vöruvöndun. Er Iðnaðarmál leituðu frétta um árangur af tilrauninni og horfur á frekari útflutningi, vildi Asgrfmur sem minnst um þessi mál ræða, taldi það ekki tfmabært, meðan þau væru á tilraunastigi. Hann kvaðst bfða með eftirvæntingu eftir að heyra, hvernigþær vörur seldust, er fluttar voru út f haust, en þær fóru aðallega til F innlands og eru fyr sti útflutningur verksmiðjunnar, að verðmæti um 80 eða 90 þúsund krónur. "Sjálfur er ég bjartsýnn á, að takast megi að gera íslenzka prjón- lesvöru úr okkar eigin ull að útflutn- ingsvöru. Enfyrsta skilyrði til þess, að svo megi verða, er alhliða vöruvöndun og strangt gæðamat á framleiðslunni. Arangurinnaf þeirri tilraun, sem nú er hafin, veltur á þvf, hvernig vörurnar reynast kaupendum og að unnt sé að fullnægja kröfum þeirra, bæði um endingu, útlit og skjól. Og fljótgert er að eyðileggja markað, sem er að skapast, ef mistök verða f þessum efnum og meira hugsað um stundar- hagnað en vöruvöndun, sem er hornsteinn alls iðnaðar." Þannig fórust forstjóranum orð, og erum vér honum sammála og væntum þess fastlega, að hann verði ekkifyrir vonbrigðum. Það á aðvera takmark Islendinga að vinna úr hrá- efnumsínum í landinu semverðmæt- astar útflutningsvörur, m. a. úr ullinni okkar. Iðnaðarmálastofnun íslands vill styðjaalla, sem aðþessu marki vinna, með ráðum og dáð. (Stálskipasmíði, framhald af 6. bls.) "Nýlega byrjaði Stálsmiðjan á öðru skipi sínu, og er það varðskip og björgunarskúta Norðurlands. Mun Landssmiðjan koma vélum fyrir f því skipi og sjá um innréttingu. Aðalverkefni í nýsmiði hér á landi verður þó vafalaust smiði fiskiskipa, togara, fiskibáta og nótabáta. Smíðaði Lands- smiðjan á s.l. sumri nokkra nótabáta. Er sjálfsagt að koma á náinni samvinnu milli skipasmíðastöðvanna og útgerðarmanna, og má þá vafalaust smíða skip, sem hæfa betur íslenzkum stað- háttum en skip, sem keypt eru erlendis frá." Hvaða kosti teljið þér helzt, að stálskip hafi fram yfir tréskip, og hversu lítil stálskip mun gerlegt að smfða ? "Menngreinir á um það, hver séminnstastærð skipa, sem hentugra sé að smiða úr stáli en tré. Mjög hefur reynzt erfitt undanfarinár að útvegagott efni f tréskip, og er viðhald tréskipa alvarlegt vandamál, m.a. vegna þurrafúa, sem borið hefur á í allmörgum skipum. Verði ekki unnt að ráða bót á þessu vanda- máli, er helztalausninað smfðaskipin úrstáli. Kostur stálskipa er einnig sá, að þau eru rúmbetri, miðað við sömu utanmál. Benda má einnig á, að flutningskostnaður á efni hingað til lands verður tiltölulega minni f stálskip en tréskip." Um leið og vér þökkum yf ir ver kf r æ ðingi Stálsmiðjunnar fyrir greið svör og góðar mót- tökur, bætir hann við: "I náinni framtíð verða skipaviðgerðir meginþáttur f starfsemi skipasmfðastöðva hér, og verður þvf að skipuleggja þær í samræmi við það. En fullkomin lausn þessara vandamála fæst ekki, fyrr en fullkomnar skipasmíða- og viðgerðastöðvar hafa verið reistar, sem fullnægja öllum kröfum nútímatækni." ERU LÍKUR TIL.AÐ UNNT SÉ AÐ FRAMLEIÐA HÉR Á LANDI VÉLAR TIL ÚTFLUTNINGS ? Iðnaðarmál hafa átt tal við forstjóra Landssmiðj- unnar, Jóhannes Zoéga, vegnasöluáfiskimjölsverksmiðju til Færeyja og beðið hann að láta álit sitt í ljós um líkur til útflutnings ávélum og tækjum, framleiddum álslandi. Varð hannfúslega viðþessum tilmælum, og fara ummæli hans hér á eftir. Undanfarin ár hefur Landssmiðjan smfðað nokkrar fiskimjölsverksmiðjur. Aðallega eru það tvær stærðir, sem vinna 250 og 500 kg af mjöli á klst. I hrávinnslu, þ.e. án suðu og pressunar á hráefninu. Eru verksmiðjur þessar nú um 15 að meðtöldum þeim, sem enn eru f smfðum. Auk þess er í smíðum verksmiðja fyrir um 1000 kg mjölvinnslu á klst. I októbermánuði síðastliðnum var ein verksmiðja af minnstu gerð seld til Færeyja. Mun þarvera um að ræða fyrstaútflutning véla, sem smfðaðar eruhér álandi, svo að vitað sé. Ekki er auðvelt að spá neinu um áframhald á véla- útflutningi héðan. Benda má þó á nokkur atriði sem grundvöll fyrir útflutningi og raunar framleiðslu véla yfirleitt. 8 IÐNAÐARMAL

x

Iðnaðarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.