Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Qupperneq 2
mánudagur 2. júní 20082 Fréttir DV
Einar K. Guðfinnsson sjávarút-
vegsráðherra er eini ráðherrann
sem hefur ekki svarað fyrirspurn
Kolbrúnar Halldórsdóttur, þing-
konu vinstri grænna, um hvernig
ráðherrar úthlutuðu sérstöku ráð-
stöfunarfé ráðherra. Kolbrún lagði
fyrirspurnina sameiginlega til allra
ráðherra í mars, en vorþinginu var
slitið á fimmtudagskvöldið.
Samkvæmt lögum hafa ráðherrar
ákveðið óeyrnamerkt ráðstöfunarfé,
sem þeir hafa sjálfir umdæmi til að
úthluta, til dæmis til félagasamtaka
að þeirra skapi.
Þingsköp á
Alþingi kveða
á um að ráð-
herrar verða
að vera bún-
ir að svara
fyrirspurn-
um þing-
manna,
hvort sem
þær eru
skriflegar
eða munn-
legar, inn-
an tíu
daga frá því þær eru
lagðar fram.
Kolbrún Hall-
dórsdóttir er ekki
sátt við vinnubrögð
landbún-
aðar- og
sjávar-
útvegs-
ráð-
herrans.
„Ég
hef
áður lagt fram þessa fyrirspurn.
Það gerði ég síðast árið 2002, þeg-
ar ég fékk sams konar upplýsingar.
Þá kom margt í ljós og þá sérstak-
lega að Árni Mathiesen, þáverandi
sjávarútvegsráðherra, hafði verið að
láta umtalsverða peninga til Félags
hrefnuveiðimanna.“
Hún segist spennt fyrir því að
vita hvort og hversu mikið Einar K.
hafi styrkt Félag hrefnuveiðimanna
í ráðherratíð sinni, úr því hann hef-
ur sjálfur heimilað hrefnuveiðar.
„Ég hef enn ekki fengið svar frá ráð-
herranum, því hann ber því við að
sameining landbúnaðar- og sjáv-
arútvegsráðuneytisins hafi vald-
ið þessum seinagangi. Ráðuneytið
hefur hins vegar haft mjög rúman
tíma til þess að svara.“
valgeir@dv.is
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Engin einka-
framkvæmd
Ríkisstjórnin hefur að til-
lögu Krstjáns Möller sam-
gönguráðherra hætt við
hugmyndir um smíði Vest-
mannaeyjaferju í einkafram-
kvæmd. Þess í stað verði smíði
ferju boðin út með hefð-
bundnum hætti og rekstur
hennar boðinn út sérstaklega.
Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu samgönguráðherra.
Í ágúst í fyrra fól sam-
gönguráðherra Siglingastofn-
un að annast útboð í einka-
framkvæmd á ferjusiglingum
milli Vestmannaeyja og fyrir-
hugaðrar Landeyjahafnar.
Glæpamenn
fengu frí
Afbrotamenn höfuðborgar-
svæðisins önduðu væntanlega
léttar á föstudaginn en oft áður.
Ástæðan er sú að Héraðsdómur
Reykjavíkur var lokaður og fengu
glæpamenn því kærkominn frið
fyrir dómsvaldinu. Héraðsdóm-
ur var lokaður vegna starfsdags
þeirra sem þar vinna en ekki er
ljóst hvað þá fer fram. Dugnaður
og elja starfsfólks dómsins verða
þó ekki dregin í efa en dagskráin
undanfarna daga og vikur hefur
verið afar þétt.
Tengivagnar
skoðunarskyldir
Fellihýsum, tjald- og húsvögn-
um hefur fjölgað úr 9.554 í
16.499 síðustu fimm árin. Á
sama tímabili hafa slíkir eftir-
vagnar komið við sögu í um
132 umferðarslysum, þar af
einu banaslysi. Álfheiður Inga-
dóttir, þingmaður vinstri
grænna, gerði fjölgun eftir-
vagna á Íslandi að umtalsefni
sínu í fyrirspurn til samgöngu-
ráðherra. Velti hún einnig fyrir
sér hvort til stæði að herða eft-
irlit og reglur um slíka vagna
og gera þá skoðunarskylda.
Samgönguráðherra sagði
nú unnið að mótun reglna um
skráningu og skoðun eftir-
vagna og tengitækja og verði í
þeirri vinnu hugað að því að
gera vagna yfir 750 kílógrömm
að þyngd skoðunarskylda.
Kolbrún Halldórsdóttir ósátt við aðgerðaleysi sjávarútvegsráðherra:
Einar sá eini sem svaraði ekki
Kolbrún Halldórsdóttir „Þá kom margt í ljós og
þá sérstaklega að árni mathiesen, þáverandi
sjávarútvegsráðherra, hafði verið að láta umtals-
verða peninga til Félags hrefnuveiðimanna.“
Einar K. Guðfinnsson Svaraði
ekki fyrirspurn Kolbrúnar um
ráðstöfunarfé ráðherra.
Orkuveitustjóri
látinn fara
Guðmundur Þóroddsson lét
af starfi sem forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur á föstudaginn. Sam-
komulag þess eðils var lagt fram
á stjórnarfundi OR þann sama
dag. Guðmundur lætur jafnframt
af störfum sem forstjóri Reykjavík
Energy Invest. Kjartan Magnús-
son, stjórnarformaður Orkuveit-
unnar, undirritaði samkomulagið
fyrir hönd stjórnar Orkuveitunn-
ar. Um helgina rann út framlengt
leyfi sem Guðmundur fékk til að
stjórna REI til einnar stærstu út-
rásar Íslandssögunnar.
DV greindi frá því þegar deil-
urnar um REI stóðu hvað hæst
síðasta haust að sjálfstæðismenn
í borgarstjórn vildu Guðmund
burt. Þeir voru ósáttir við fram-
göngu hans í því máli.
Linda Björk Ólafsdóttir þótti vinna mikið afrek um
helgina þegar hún bjargaði manni úr miklum reyk.
Maðurinn lá meðvitundarlítill þegar Linda braust
inn til hans, kom honum út og bjargaði þannig lífi
hans. Linda vill þó gera lítið úr hetjudáðinni.
Skreið í
GeGnum
reykhafið
„Ég get nú ekki sagt að ég sé ein-
hver hetja. En ég fór inn, já,“ segir
Linda Björk Ólafsdóttir, lögreglu-
kona á Suðurnesjum, hógværðin
uppmáluð. Linda vildi lítið gera úr
afrekinu en hún dró meðvitundar-
lítinn mann út úr húsi og bjargaði
lífi hans. Hún braust inn á heimili
hans í Grindavík með aðstoð ná-
granna. Maðurinn má teljast hepp-
inn að vera á lífi því röð tilviljana
hjálpaði til. Hann var með opna
svefnherbergishurð, lögreglubíll-
inn var í Grindavík, sem er ekki allt-
af, nágranninn heyrði í reykskynj-
aranum og þeim tókst að spenna
upp hurðina.
Húsið var fullt af reyk þar sem
maðurinn hafði sofnað út frá elda-
mennsku. „Við fengum tilkynn-
ingu um mikinn reik í íbúðarhúsi
og þegar við komum að fór ég aftur
fyrir húsið. Þar inn af er svalahurð
og nágranninn við hliðina hjálpaði
mér að spenna hana upp. Um leið
og hún opnaðist kom mikill svartur
reykur á móti okkur en það var ekki
kviknað í en ofsalega mikill reykur.“
Spurning um mannslíf
Linda skreið inn eftir gólfinu og
fann manninn þar sem hann lá.
„Ég fór að honum og hann brást
ekkert við. Hvorki þegar ég ýtti við
honum né þegar ég kallaði á hann.
Ég lyfti honum því upp og byrjaði
að draga hann út þegar hann
rankaði við sér. Þá náði ég að
leiða hann út.“
Maðurinn fékk snert af
reykeitrun og var fluttur á til
aðhlynningar á Landspítal-
ann í Reykjavík. Slökkvilið
kom fljótlega á vettvang og
reykræsti íbúðina. Linda seg-
ir að lítill tími hafi gefist til að
verða hrædd. Þarna hafi ver-
ið um líf eða dauða að tefla
og spurð hvort hræðslan hafi
ekkert tekið yfir fer Linda að
hlæja. „Nei, þetta var spurning
um líf eða dauða, það var bara
svoleiðis.“
Vaknaði ekki við reykskynjar-
ann
Maðurinn hafði verið að steikja
sér mat á pönnu og hvílt sig augna-
blik í sófanum. „Steikin mallaði og
hann rumskaði ekkert við pípið í
reykskynjaranum. Hann var búinn
að pípa töluvert lengi.“
Nágranni heyrði pípið í skynj-
aranum og hringdi í lögregluna
sem var fljót á staðinn. Maður-
inn er á batavegi og segir Linda
að betur hafi farið en á horfðist.
Þetta var annar eldurinn sem varð
í Grindavík um helgina. Spreng-
ing varð í húsbíl þar sem tveir slös-
uðust, annar þeirra ungur dreng-
ur sem brenndist illa. Lögregla fer
með rannsókn málsins sem beinist
meðal annars að því hvort eldurinn
hafi kviknað út frá gasleka.
BEnEdiKt BÓaS HinRiKSSon
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
Var óvart í
Grindavík Linda
Björk var fyrir tilviljun
stödd í grindavík.