Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Blaðsíða 12
mánudagur 2. júní 200812 Fréttir DV Yfirvöld í Texasríki búast nú til að hleypa hundruðum barna aftur á fjölkvænisbúgarð þaðan sem þau voru fjarlægð af barnaverndaryf- irvöldum fyrir nokkru. Dómstólar í Texas létu dóm falla fyrir helgi og sögðu aðgerðir barnaverndaryfir- valda ekki standast lög. Börnin hafa flest dvalið á fósturheimilum á víð og dreif um ríkið. Segjast barnaverndaryfirvöld hafa miklar áhyggjur af því að söfn- uðurinn flýi ríkið með börnin og haldi uppteknum hætti annars stað- ar. Styrinn stendur fyrst og fremst um hjónabönd sem grunur leikur á um að stúlkur undir lögaldri séu þvingaðar til. Dómstólar töldu hins vegar að engar sannanir væru fyrir að meirihluti barnanna væri í nokk- urri hættu. Foreldrar barnanna hafa allan tímann haldið því fram að ekk- ert misjafnt eigi sér stað á búgarði þeirra, heldur sé verið að ofsækja þá vegna trúar sinnar. Þeir eru að von- um ánægðir með úrskurð dómstóla. „Við hlökkum til þess þegar börnin koma aftur í faðm foreldra sinna,“ sagði Willie Jessop, einn af öldung- unum á búgarðinum. Til greina kemur að hleypa börn- unum heim að settum ákveðn- um skilyrðum sem koma í veg fyrir hugsanleg afbrot, sem og að halda þeim stúlkum eftir sem taldar eru í mestri hættu. Barnaverndaryfirvöld segja mál- inu þó ekki endanlega lokið og þau munu halda rannsókn á búgarðin- um áfram. erlendarFréttir ritstjorn@dv.is Lengsta handa- band sögunnar Þrítugu Bandaríkjamennirn- ir Kevin Whittaker og Cory Jens eru ótrúlegir afreksmenn, en þeim tókst að setja nýtt heims- met í handabandi. Tókust þeir félagar í hendur í alls níu og hálfa klukkustund samfleytt. Metið sem þeir slógu var níu tímar og áttu tveir Þjóðverjar það. Heimsmetabók Guinness setti þeim þær reglur að þeir þyrftu að halda í höndina hvor á öðrum allan tímann og hreyfa þær stöðugt upp og niður svo metið gilti. Heimsmethafarn- ir segja að þó svo langt handa- band virðist auðvelt sé það bæði erfitt verk og sársaukafullt. Bitinn í liminn Maður nokkur í Ástralíu varð fyrir heldur óskemmti- legri lífsreynslu á leið sinni um landið. Kauða varð brátt í brók er hann var á ferð ná- lægt smábænum Cairns og hljóp út í vegarkant til að létta á sér. Það vildi ekki betur til en svo að meðan maðurinn var í miðjum klíðum spratt upp snákur og beit hann í liminn. Sem betur fer bar sjúkraliða fljótt að og gerðu að sárum hans. Samkvæmt öðrum sjúkraliðanum var það manninum til happs að snákurinn sprautaði ekki eitri í liminn, heldur lét sér nægja að narta í hann. Snáknum hefur líklegast ekki líkað bráðin betur en svo. Vopnaður broddgelti Réttað var yfir Nýsjálendingi í síðustu viku sem gefið var að sök að hafa ráðist á unglingspilt með broddgölt að vopni. Mað- urinn, sem heitir William Singa- largh, hafði tekið broddgöltinn upp og grýtt honum af öllu afli í annan fót drengsins. Drengur- inn hlaut allmörg stungusár og bólgnaði upp í kjölfar árásar- innar. Singalargh var sakfelld- ur fyrir líkamsárás og ólæti og þurfti að greiða fórnarlambinu miskabætur. Hann getur hins vegar glaðst yfir því að hafa ver- ið sýknaður af kæru fyrir vopn- aða árás. Fórnarlamb og vitorðsmaður Leigubílstjóra nokkrum í Kína brá í brún þegar hann áttaði sig á því að hann var í senn fórnarlamb og vitorðs- maður ræningja. Leigubíl- stjórinn Shen náði í mann við strætóskýli og hjálpaði hon- um við að bera hluti inn í bíl- inn, en fannst hann eitthvað kannast við nokkra þeirra. Það var ekki fyrr en leigubíl- stjórinn kom heim að tómu húsi sínu sem hann áttaði sig á hvernig í pottinn var búið; hann hafði hjálpað þeim sem rændi heimili hans að flýja. Hæstiréttur Texasríkis hefur kveðið upp dóm í búgarðsmálinu: Fjölkvænisbörnum hleypt heim Fjölkvænisbörn Fara aftur á búgarðinn. FaLLa Fyrir eigin hendi Tíðni sjálfsvíga í bandaríska her- num hefur aldrei verið hærri en árið 2007. Sífellt fleiri hermenn hafa svipt sig lífi árlega síðan Bandaríkja- her hóf stríðsrekstur í Mið-Austur- löndum fyrir 7 árum og náði fjöld- inn hámarki með 115 sjálfsvígum á síðasta ári. Þá eru ótaldir þeir 935 sem gerðu tilraun til sjálfsvígs en mistókst. Meirihluti þjónað í Mið-Austurlöndum Af þeim 115 hermönnum sem féllu fyrir eigin hendi var þriðjungur þeirra við störf á víglínunum í Mið- Austurlöndum. Aðeins fjórðung- ur hafði aldrei starfað á svæðinu. Sjálfsvígstíðnin var um 18,8 á hverja 100.000 hermenn og hefur ekki ver- ið hærri innan heraflans síðan mæl- ingar hófust árið 1980. Til saman- burðar má nefna að hlutfallið var 17,2 árið 2006. Þannig hefur tíðnin farið vaxandi síðan innrás Banda- ríkjanna í Afganistan átti sér stað fyrir 7 árum. Fjöldi þeirra sem gerðu tilraun til sjálfsvígs var margfalt hærri, eða 935. Þar af voru 166 við víglínuna í Mið-Austurlöndum. Það sem af er árinu stefnir í álíka hátt hlutfall sjálfsvíga og í fyrra. 38 sjálfsvíg eru staðfest á árinu og 12 dauðsföll til viðbótar eru til rann- sóknar sem sjálfsvíg. Seta hermanna lengd um fjórðung Á blaðamannafundi sem varn- armálaráðuneyti Bandaríkjanna, Pentagon, hélt kom fram að líkleg- ast mætti að miklu leyti rekja þessa auknu tíðni sjálfsvíga til aukins álags, þeirra hryllilegu atburða sem hermennirnir þurfa að kljást við og ekki síst hversu auðvelt aðgengi þeirra að hlöðnum skotvopnum er. Þetta geti síðan lagst saman, ekki síst ef manneskjan á erfitt fyrir. Einnig er talið vega þungt að seta hvers her- manns við víglínuna var lengd úr 12 mánuðum í 15 á síðasta ári. Yfirmenn hersins hafa haldið því fram að stríðsrekstur Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum sé ekki aðalá- stæða fjölgunar sjálfsmorða innan heraflans. Hlutfall hermanna sem falla fyrir eigin hendi árlega hefur tvöfaldast síðan 2002, en þá var ár liðið síðan Bandaríkjamenn réðust fyrst inn í Afganistan. Að sögn framdi um helming- ur hermannanna sjálfsvíg eftir að vandræði komu upp í hjónabandi eða ástarsambandi. Vandræðin mátti oftast rekja til herþjónustu hermannsins. Tíðni sjálfsvíga meðal óbreyttra borgara í Bandaríkjunum er um 11 á 100.000 manns. Yfirmenn hersins hafa hins vegar bent á að sé álíka aldurs- og kynjaskipting og er í her- num skoðuð sérstaklega sé tíðnin í kringum 19,5. Hafa gripið til ráðstafana Herinn hefur gripið til víðtækra ráðstafana til að sporna gegn þeirri óheillaþróun sem á sér stað. Þannig hefur sálfræðimenntuðum starfs- mönnum hersins verið fjölgað til muna, eftirlit með geðheilbrigði hermanna aukið og reynt að vinna gegn skömminni sem fylgir því að sækja sér aðstoð vegna geðrænna vandamála. Auk þess hefur mik- il fræðsla átt sér stað um einkenni andlegs ójafnvægis sem auðveldar hermönnum að verða þeirra varir, bæði í eigin fari og annarra. Sömu- leiðis hefur verið sett á fót verkefn- ið „Treystum böndin“ sem felur í sér að hjálpa hermönnum og fjölskyld- um þeirra að hlúa að sambandi sínu. HAFSteinn gunnAr HAukSSon blaðamaður skrifar hafsteinn@dv.is tíðni sjálfsvíga ��ðal óbr�yttra borgara í Bandaríkjunu� �r u� 11 á 100.000 �anns. Sjálfsvíg hafa aldrei verið algengari meðal bandarískra hermanna en á síðasta ári. Herinn kennir auknu álagi um. Stór hluti þeirra hermanna sem hafa svipt sig lífi hef- ur gegnt herþjónustu í Mið-Austurlöndum. Hermenn alltof margir hermenn eru vansælir og svipta sig lífi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.