Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Page 8
„Þetta er eins og fíll hafi komið í postulínsbúð,“ segir Jósefína Frið- riksdóttir, eigandi antikbúðarinnar Maddömurnar á Selfossi. Hún telur að tjón í jarðskjálftanum á fimmtu- dag nemi milljónum. Hún segir erf- itt að bæta tjónið þar sem allir munir eru handvaldir í Danmörku og Sví- þjóð. Mörg hundruð gripir skemmd- ust í skjálftanum og lager verslunar- innar er sömuleiðis ónýtur. Guðmundur Þórðarson í Hvera- gerði hefur lengi viðað að sér antik- munum og átti dágott safn á heimili sínu: „Hver hjálpar mér núna?“ spyr hann: „Hérna eru munir sem kosta yfir milljón bara ónýtir og flest þetta kemur aldrei aftur.“ Bakaríið gaf bakkelsi Íbúar á Suðurlandi urðu margir hverjir fyrir miklu áfalli við skjálft- ann. Eignaskemmdir voru gríðarleg- ar, nokkuð var um meiðsli á fólki en enginn slasaðist þó alvarlega. Guðni Andreasen, eigandi Guðnabakarís á Selfossi, segir að í bakaríinu hafi skápur fallið ofan á borð, aðeins tveimur mínútum eft- ir að konur með fjögur börn höfðu farið frá borðinu. Bakaríinu var strax lokað og allt bakkelsi dagsins gefið til hjálparstarfseminnar á Selfossi. Næsta dag var bakaríið síðan opn- að aftur eftir að gert hafði verið að skemmdum. Heimili þeirra Emils Ragnarsson- ar og Ingibjargar Guðmundsdóttur á Eyrarbakka var lýst óíbúðarhæft eftir skjálftann. Þau voru í hesthúsunum þegar hann reið yfir en ófögur sjón blasti við þeim þegar heim var komið þar sem húsið var alsett sprungum. Tíðindum þykir þó sæta skápur full- ur af glösum var heill eftri sjálftann og ekkert glas brotið. Hjónin hafa nú yfirgefið heimili sitt til fimmtán ára og búa í húsbíl þar til annar sama- staður finnst. Allt hvarf í reyk Ólafur Einar Adólfsson á Eyrar- bakka þurfti sömuleiðis að yfirgefa húsið sitt. Hann var á Selfossi þegar skjálftinn var: „Ég varð var við rosa- legan hávaða úr fjallinu og síðan hvarf allt í reyk. Gatan sjálf varð eins og ólgusjór.“ Ólafur býr nú hjá bróð- ur sínum á Hellu þar til hann finnur sér annað heimili. Miklar skemmdir urðu á Blóma- búðinni í Hveragerði. Helga Björns- dóttir starfsmaður í versluninni var að gera blómvendi þegar skjálftinn reið yfir. Búðinni hefur nú verið lok- að á meðan viðgerðir og þrif standa yfir. Geir H. Haarde forsætisráð- herra og Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir utanríkisráðherra fóru á Selfoss á föstudag að kynna sér aðstæð- ur. Þau funduðu með bæjarfulltrú- um Árborgar og Ölfuss, og að fundi loknum lýstu þau yfir að hættuá- stand væri liðið hjá. Geir tilkynnti þá að hundrað milljónum yrði varið í hjálparstarfið. mánudagur 2. júní 20088 Fréttir DV Milljónatjón varð í antíkbúð á Selfossi í Suðurlandssjálftanum. Heimili Emils Ragnarssonar og Ingibjargar Guðmunds- dóttir á Eyrarbakka er óíbúðarhæft og hafast þau við í húsbíl. Bakaríinu á Selfossi var strax lokað eftir skjálftann og bakkelsi dagsins gefið til hjálparstarfsins. ólI vAluR pétuRsson blaðamaður skrifar olivalur@dv.is „Ég varð var við rosa- legan hávaða og síðan hvarf allt í reyk. Gatan sjálf varð eins og ólgu- sjór.“ Ólafur býr nú hjá bróður sínum á Hellu þar til hann finnur sér annað heimili. IKIÐ ÁFALL talsvert um meiðsli Fjöldi fólks hefur leitað sér aðstoðar. „Óvissan um grunnþarfirnar, skjól og vatn, hefur verið ríkjandi,“ segir Ey íbúafundir voru haldnir á Selfossi og á Eyrar- bakka í gær þar sem fólk deildi reynslu sinni af skjálftanum. Drykkjarvatn er víða gruggugt en ekki hafa fundist einhlítar skýringar á því. Á fundunum komu upp vangaveltur um að fá þurfi ferska vatnið annars staðar en úr Ingólfsfjalli. Enn sem komið er kaupa margir því sitt drykkj- arvatn í flöskum. Sundlaugin er einnig lokuð enn sem komið er. Fjöldi húsa hefur verið dæmd óíbúðarhæf og því margir í húshæðisþörf. Bæjarstjórn Ár- borgar ætlar að finna þessu fólki skjól og fund- ar um málið í dag. „Það verður unnið í þessu eins hratt og verða má,“ segir Eyþór. Erfitt er að henda reiður á tjóninu en Ey- þór bendir á að reynslan sýni að skemmdir á húseignum geta komið fram vikum, mánuð- um og jafnvel árum eftir jarðskjálfta. Þannig hafa fundist skemmdir bak við klæðningar húsa og á vatnslögnum á Suðurlandi löngu eftir skjálfta á svæðinu. „Þetta er langt frá því að vera búið mál,“ segir hann. Mikil samstaða ríkir meðal íbúa. „Fólk stendur saman eins og einn maður.“ Eyþór segir starf sjálfboðaliða einnig ómetanlegt en hundruðir hafa komið að hjálparstarfinu síðustu daga. „Þetta net sjálfboðaliða hér á Íslandi er alveg einstakt. Þetta er allt annað en eftir hamfarirnar í New Orleans þar sem hver höndin var upp á móti annarri. Hér hef- ur ótrúlegt þrekvirki verið unnið af sjálfboða- liðum. Það má ekki gleyma því að þetta fólk á líka fjölskyldur. Margir hér á svæðinu hafa því farið að hjálpa öðrum á þeirri stundu sem þeir vildu helst vera hjá þeim sem eru þeim kærastir. Þetta er mikil fórn,“ segir hann. erla@dv.is Kranavatn ekki drykkjarhæft víða í Árborg GruGGuGt drykkjarvatn dv myndir ásgeir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.