Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Page 4
mánudagur 2. júní 20084 Fréttir DV
Álfheiður Ingadóttir afar óánægð með svör um kostnað við Kárahnjúka:
Einkennast af skætingi
Álfheiður Ingadóttir, þingmaður
vinstri grænna, er óánægð með þau
svör sem henni bárust við fyrirspurn
hennar til Árna Mathiesen fjármála-
ráðherra varðandi kostnað við Kára-
hnjúkavirkjun. „Mér líka þau stór-
illa,“ segir Álfheiður og bætir við að
svar hafi borist svo seint að ekkert
tóm hafi verið til að gera athugasemd
við það.
Segir Álfheiður einu nýju upplýs-
ingarnar í svari fjármálaráðherra frá
því iðnaðarráðherra gaf út skýrslu
um sama efni fyrr á árinu snúa að
kostnaði við flutningsmannvirki.
Hafði ekki verið fjallað sérstaklega
um þann kostnað áður, en hann
nemur um 12,79 milljörðum. Aðra
hluta skýrslunnar segir Álfheiður
einkennast af skætingi.
„Ég er mjög undrandi á þessu
svari og skil ekki í því að fjármálaráð-
herra skuli láta það eftir Landsvirkj-
un að sýna geðvonsku sína gagnvart
þinginu með þessum hætti,“ segir
Álfheiður. Hún segist hafa viljað vita
hver raunverulegur umframkostnað-
ur við Kárahnjúkavirkjun er miðað
við tilboð Impregilo í framkvæmd-
irnar.
„Þeir þykjast ekki skilja spurning-
una. Þeir miða alltaf við upphaflega
kostnaðaráætlun sem er miklum
mun hærri en endanlegir samningar
við Impregilo.“
Undrast á svari
álfheiður Ingadóttir er ekki par hrifin af
störfum fjármálaráðherra.
Tekið hafa gildi breytingar á lögum um fæðingarorlof. Viðmiðunartímabil vegna fæð-
ingarorlofsgreiðslna miðast nú við tólf mánaða tímabil sem lýkur hálfu ári fyrir fæð-
ingu. Gert er ráð fyrir á annað hundrað milljóna króna útgjaldaaukningu ríkissjóðs
vegna þessa en ekki er gert ráð fyrir þeim í fjárlögum.
HÆRRI GREIÐSLUR
TIL FORELDRA
„Ég tel að þarna sé verið að stíga
skref fram á við að því leyti að ver-
ið er að stytta viðmiðunartímann.
Lenging hans á sínum tíma varð til
þess að rýra fæðingarorlofsgreiðsl-
urnar verulega. Hins vegar hefðu
greiðslurnar orðið enn hærri ef fyrir-
komulagið hefði verið fært í upphaf-
legt horf,“ segir Ögmundur Jónasson,
þingmaður vinstri grænna og fulltrúi
í félagsmálanefnd Alþingis.
Skynsamlegra að ganga lengra
Um mánaðamótin tóku gildi
breytingar á lögum um fæðingaror-
lof. Viðmiðunartími til útreikninga
greiðslna úr Fæðingar-
orlofssjóði er nú tólf
mánaða samfellt
tímabil sem lýkur
sex mánuðum fyr-
ir fæðingu barns.
Þetta
eru
miklar breytingar frá því sem áður
var en síðustu fjögur árin hefur við-
miðunartíminn verið tvö heil tekjuár
fyrir fæðingu. Þegar lög um fæðing-
arorlof tóku gildi árið 2000 var við-
miðunartíminn mun líkari því sem
hann er orðinn nú, eða tólf mánaða
tímabil sem lauk tveimur mánuðum
áður en barnið fæddist.
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins og full-
trúi í félagsmálanefnd Alþingis,
fagnar breytingunni einnig. Honum
finnst þó að ganga hefði mátt lengra
og taka aftur upp það fyrirkomulag
að láta viðmiðunartímabilið enda
tveimur mánuðum fyrir fæðingu:
„Það hefði verið skynsamlegast. En
þetta er auðvitað spurning um pen-
inga.“
Býst við enn meiri útgjöldum
Ögmundur telur þessar breyting-
ar á viðmiðunartímabilinu til góðs:
„Við erum þó ekki komin þangað
sem upphaflegu kjörin voru.“ Að-
spurður hvort rétt hefði verið að
taka alfarið upp fyrri reglur um
tímabil sem lýkur tveimur mán-
uðum fyrir fæðingu segist
Ögmundur þurfa að skoða
það betur.
Gert er ráð fyr-
ir 110 til 190
milljóna
króna út-
gjaldaaukningu
ríkissjóðs í ár vegna
breytinganna. Við flutn-
ing frumvarpsins vakti
Jóhanna athygli á því
að ekki væri gert ráð fyrir
þeim útgjöldum í fjárlögum. Spurð-
ur um hvort það sé áhyggjuefni segir
Ögmundur: „Það er líklega áhyggju-
efni fyrir þá sem vilja standa vel að
ríkisbókhaldinu. En hvað varðar rétt
þeirra sem eru að fara í fæðingarlor-
lof, þá verður ekkert gengið á hann.
Lögin eru ótvíræð.“
Kristinn telur að útgjöldin verði
mun meiri, eða nær 300 milljónum.
Hann segist hafa fengið þau svör frá
ríkisstjórninni að fjárlögin
séu það rúm að líklega
muni þessi aukning
ekki hafa teljandi áhrif
á afkomu ríkissjóðs.
Sætti mikilli
gagnrýni
Jóhanna Sig-
urðardóttir fé-
lagsmálaráð-
herra talaði
fyrir þessum breytingum nú og benti
á að viðmiðinu hefði verið breytt árið
2004 eftir að borið hafði á því að for-
eldrar reyndu að hafa áhrif á laun sín
á viðmiðunartímabilinu í því skyni
að hækka greiðslur úr Fæðingaror-
lofssjóði við töku fæðingarorlofs.
Við flutning málsins á Alþingi sagði
Jóhanna: „Þetta viðmiðunartíma-
bil hefur samt sem áður sætt mjög
mikilli gagnrýni og held ég að ég hafi
ekki fengið fleiri skilaboð og tölvu-
pósta en varðandi þetta viðmiðunar-
tímabil sem legið hefur undir mikilli
gagnrýni.“
Gagnrýnin hefur einna helst ver-
ið sú að fyrirkomulagið mismuni
foreldrum eftir því hvenær á árinu
barnið var fætt, en viðmiðunartíma-
bil foreldra sem
eignuðust barn
snemma á árinu
var mun nær í
tíma en þeirra
sem áttu barn
síðla árs.
Erla HlynSdóttIr
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Hins vegar hefðu
greiðslurnar orðið enn
hærri ef fyrirkomulagið
hefði verið fært í upp-
haflegt horf.“
Bætt réttindi foreldra jóhanna
Sigurðardóttir lagði til þær breytingar
að viðmiðunartímabil vegna greiðslna
úr Fæðingarorlofssjóði yrðu tólf
mánuðir í stað tveggja tekjuára áður.
Fagnar breytingum Ögmundur
jónasson fagnar því að viðmiðunar-
tímabilið hefur verið stytt og segir
það til bóta fyrir foreldra að fá hærri
greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.
Meiri útgjöld ríkissjóðs Kristinn H.
gunnarsson telur útgjöld ríkissjóðs
vegna breytinganna vanmetin. gert
er ráð fyrir allt að 190 milljóna króna
aukningu en Kristinn telur gjöldin
aukast um 300 milljónir á árinu.
14 ára ökumaður
í umferðaróhappi
Lögreglan á Akureyri þurfti
að hafa afskipti af drengjum
sem höfðu tekið bifreið í óleyfi
frá heimili eins þeirra og ekið
henni um bæinn. Lögreglumenn
veittu bifreiðinni athygli þegar
henni var ekið upp á kantstein
rétt við lögreglubifreiðina. Þegar
lögreglumennirnir hugðust hafa
afskipti af drengjunum reyndu
þeir að stinga af og óku frekar
greitt upp að raðhúsi en misstu
stjórn á bifreiðinni með þeim af-
leiðingum að þeir lentu á kants-
teini sem brotnaði. Síðan héldu
drengirnir áfram og lentu á hlið-
inni á mannlausri bifreið sem
lagt var upp við raðhúsið. Dreng-
irnir reyndu að komast undan á
hlaupum en gáfust fljótlega upp
. Ökumaðurinn og farþegarn-
ir reyndust vera 14 ára.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
7 prósent of hratt
á Sæbraut
Brot 434 ökumanna voru
mynduð á Sæbraut um helgina.
Fylgst var með ökutækjum sem
var ekið í suðurátt. Yfir gatna-
mót Sæbrautar og Langholts-
vegar. Umrædd vöktun stóð yfir í
liðlega sautján klukkustundir en
á tímabilinu fóru 6.393 ökutæki
þessa akstursleið. 7 prósent öku-
manna óku því of hratt eða yfir
afskiptahraða. Meðalhraði hinna
brotlegu var rúmlega 75 kílómetr-
ar á klukkustund sem er svipuð
niðurstaða og fékkst við síðustu
mælingu. Að þessu sinni voru 67
ökutæki mynduð á 80 kílómetra
hraða eða meira en sá sem hrað-
ast ók var á 99. Hámarkshraði er
60 kílómetrar á klukkustund.
Skjálfti í Lóninu
Leikmenn velska landsliðsins
í fótbolta lentu í jarðskjálftan-
um sem skók Ísland síðastliðinn
fimmtudag. Voru
þeir þá staddir í
Bláa lóninu. Þar-
lendir fjölmiðlar
hafa farið mik-
inn um helgina í
Wales en greint
misvel frá að-
stæðum. Þannig
er sagt að upptök
skjálftans hafi verið undir hóteli
liðsins í Keflavík. „Leikmenn
voru í lóninu þegar skjálftinn
reið yfir og þeir fundu allir vel
fyrir honum,“ segir Cesi Stennett,
talsmaður velska knattspyrnu-
sambandsins.
Ólafur úti
Hvorki Frjálslyndi flokkur-
inn né Framsóknarflokkurinn
næðu inn fulltrúa í borgar-
stjórn ef kosið væri í dag. Ólaf-
ur F. Magnússon borgarstjóri
kæmist því ekki að. Þetta kem-
ur fram í nýrri könnun Gallup
sem gerð var á fylgi stjórn-
málaflokkanna. Sjálfstæðis-
flokkurinn tapar gífurlegu fylgi
og fengi aðeins 27 prósent at-
kvæða og fjóra borgarfulltrúa.
Samfylkingin bætir hins vegar
mikið við sig og fengi 45
prósent atkvæða og 8
borgarfulltrúa. Vinstri
hreyfingin - grænt fram-
boð fengi 20 pró-
sent atkvæða og
þrjá fulltrúa.
VIðMIðUnartíMI VEgna grEIðSlna úr FæðIngarorloFSSjóðI
Viðmiðunartími til útreikninga greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði er nú tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingu barns. Frá
árinu 2004 hefur viðmiðunartíminn verið tvö heil tekjuár fyrir fæðingu. Þegar lög um fæðingarorlof tóku gildi árið 2000 var viðmiðunartíminn mun
líkari því sem hann er orðinn nú, eða tólf mánaða tímabil sem lauk tveimur mánuðum áður en barnið fæddist.
Frá 2000
Frá 2004
í dag
tímabil
að fæðingu
12 mánuðir
24 mánuðir eða 2 tekjuár
12 mánuðir 6 mánuðir
2 mán. Fæðing
Fæðing
?