Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Síða 6
mánudagur 2. júní 20086 Fréttir DV
Georg Viðar Björnsson, formaður Breiðavíkursamtakanna, er mjög ósáttur við
frumvarp á Alþingi um skaðabætur til þeirra sem vistaðir
voru á heimilinu. Hann segir slæmt að mönnum sé gefið
undir fótinn með þessum hætti og vill að málið verði
afgreitt, enda margir þeirra sem vistaðir voru þar
orðnir nokkuð rosknir í dag. Fjórtán mánuðir eru
liðnir síðan Breiðavíkurnefndin var sett á fót.
„Ég er ákaflega leiður yfir því að
þetta hafi ekki gengið í gegn. Þeir
voru hálfpartinn búnir að lofa okkur
því að þetta yrði tilbúið á vorþing-
inu, en eins og stjórnmálamanna er
siður, þá sögðust þeir aldrei beint út
ætla að lofa, heldur að þeir ætluðu
að stefna að því,“ segir Georg Viðar
Björnsson, formaður Breiðavíkur-
samtakanna.
Hann er mjög ósáttur við að
frumvarp á Alþingi, um að þeim
sem vistaðir voru á Breiðavík og
öðrum vistheimilum ríkisins yrðu
greiddar skaðabætur, náði ekki fram
að ganga á vorþinginu, sem slitið
var á föstudaginn. Um tíma var út-
lit fyrir að frumvarpið yrði afgreitt á
nýloknu vorþingi, en nú hefur mál-
inu verið frestað til næsta hausts.
Búið að gefa mönnum
undir fótinn
„Mér finnst þetta vera skítur, al-
veg hreint reglulega slæmt. Mér
finnst að það sé verið að svíkja þessa
stráka einu sinni enn,“ segir hann.
Margir þeirra voru sviknir illa fyr-
ir 35 til 40 árum og svo er búið að
vera að gefa mönnum undir fótinn.“
Georg segist reyndar vera ánægð-
ur með margt sem yfirvöld hafa að-
hafst í málinu, skýrsla Breiðavíkur-
nefndarinnar var til að mynda mjög
jákvætt skref að hans mati. Hann er
þó langt frá því að vera sáttur við
að frumvarpið hafi ekki náð fram
að ganga. „Það virðist vera hægt
að ganga á bak orða sinna ef mað-
ur er þingmaður.“ Hann bendir á
að margir þeirra sem vistaðir voru á
Breiðavík séu orðnir rosknir og því sé
óþarfi að vera að draga þetta. Hann
sé sjálfur að verða 63 ára og marg-
ir fyrrverandi vistmenn séu orðnir
heilsulausir. „Það er óbein afleiðing
af Breiðavík, menn fóru í drykkjurugl
og annan ólifnað.“
14 mánuðir frá skipun nefndar
Breiðavíkurmálið opnaðist upp
á gátt þegar DV birti grein um mál-
ið í febrúar í fyrra. Í kjölfarið varð
mikil umræða í fjölmiðlum og inni
á Alþingi. Í byrjun apríl í fyrra skip-
aði Geir Haarde forsætisráðherra
nefnd sem ætlað var að kanna
starfsemi Breiðavíkur á árunum
1950 til 1980.
Nefndin skilaði skýrslu um mál-
ið þar sem yfirvöld voru hvött til
aðgerða og í kjölfarið hófst vinna
við að setja saman frumvarpið,
sem að var stefnt að yrði samþykkt
á vorþinginu. Í heildina voru 158
einstaklingar vistaðir á Breiðavík
og eru 33 þeirra látnir í dag.
„VERIÐ
AÐ SVÍKJA
ÞÁ EINU
SINNI ENN“
ValGeir örn raGnarsson
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Georg Viðar Björnsson „mér finnst
þetta vera skítur, alveg hreint
reglulega slæmt.“
Við getum bætt við okkur verkefnum.
Bjóðum upp á alhliða þjónustu í byggingariðnaði nýsmíði
og viðhaldsverkefni. Má þar nefna uppslátt, uppsteypu
húsa og annara mannvirkja, endurnýjun þaka, viðgerðir
utanhúss og klæðningar, endurnýjun glugga og hurða,
smíði innveggja, uppsetning lofta, smíði sólpalla og fl.
Gerum föst verðtilboð.
Áratuga reynsla meistara og fagmanna.
Sími: Gunnar Þór 891 6591 og 891 6590
Fyrirspurnir má einnig senda á
netfangið alhlida@yahoo.com
Húseigendur –
Húsbyggjendur
Forsetinn
sendi kveðjur
Handknattleikslandslið
Íslands tryggði sér í gær þátt-
tökurétt á Ólympíuleikunum
í Kína síðar í sumar með því
að leggja lið Svía að velli með
29 mörkum gegn 25. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, brást við tíðindunum
með því að senda landsliðinu
heillaóskaskeyti, strax eftir
leikinn. Þar segir að þau Dor-
rit óski liðinu innilega til ham-
ingju með „glæsilegan sigur
í frábærum leik“. Forsetinn
segir að þjóðin öll fagni og
óski liðinu heilla á komandi
ólympíuleikum. Svíar eru afar
ósáttir við tapið gegn Íslend-
ingum og hyggjast kvarta yfir
framkvæmd leiksins. Þeir telja
að eitt mark þeirra hafi ekki
verið talið með.
Leirhverinn á CNN
Bandaríska fréttastofan CNN
fjallaði um leirhverinn sem
myndaðist við Garðyrkjuskól-
ann í Hveragerði í jarðskjálftun-
um á fimmtudag. Á vefsíðu CNN
gefur að líta myndband frá nýja
hverasvæðinu þar sem sagt er
frá þessu. Guðríður Helgadóttir,
staðarhaldari að Reykjum, sagði
í samtali við dv.is að hverinn gæti
nýst sem ferðamannasvæði í
framtíðinni. Í Suðurlandsskjálft-
anum árið 2000 mynduðust
margir hverir sem lokuðust
fljótt en Guðríður telur að vegna
stærðar nýja hversins séu meiri
líkur á að hann haldist opinn.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Ógnaði með hnífi
Maður ógnaði leigubílstjóra
með hnífi í Reykjavík í fyrrinótt
og krafðist þess að hann léti pen-
inga af hendi. Hann hélt hnífn-
um upp að hálsi bílstjórans og
hótaði honum öllu illu. Má sjá
áverka á hálsi bílstjórans eftir
hnífinn.
Bílstjórinn lét árásarmanninn
fá peninga og farsíma og hvarf
hann þá skyndilega. Hans var
enn leitað í gærkvöldi en árásin
átti sér stað í Jörfabakka um hálf
fjögurleytið í fyrrinótt.
Ríkið greiðir tíu manns bætur fyrir að hafa smitast af lifrarbólgu:
Fá bætur fyrir lifrarbólgu
Tíu manns hafa fengið greiddar
bætur frá ríkinu fyrir að hafa smit-
ast af lifrarbólgu með blóðgjöf. Bóta-
þegarnir fengu allir blóð sýkt af lifrar-
bólgu vegna þess að ekki var farið að
rannsaka blóð með tilliti til sjúkdóms-
ins. Samtals nemur upphæð bótanna
sem ríkið hefur greitt tæpum 50 millj-
ónum króna.
Nýverið féll dómur í Hæstarétti í
máli Nönnu Westerlund. Hún hafði
höfðað mál gegn íslenska ríkinu eftir
að í ljós kom að hún hafði smitast af
lifrarbólgu C við blóðgjöf fyrir átján
árum. Nanna þurfti að leggjast inn á
sjúkrahús vegna nýrnasjúkdóms og
var þar gefið sýkt blóð. Henni var ekki
gerð grein fyrir þessu fyrr en árið 1999.
Konan þjáðist af þunglyndi og vöðva-
gigt og fór fram á bætur með vísan til
þess að óvissan um ástand hennar
hefði valdið henni líkamlegri og and-
legri vanlíðan. Hæstiréttur sýknaði
aftur á móti ríkið af skaðabótakröfu
konunnar.
Nanna var í hópi tuttugu og eins
sjúklings sem smitaðist af lifrarbólgu
C með blóðgjöf. Hún hefur nú fengið
fimm milljónir króna í bætur en þær
taka mið af örorku þeirra sem sýktust.
Níu aðrir hafa fengið bætur en tveir í
viðbót hafa óskað eftir bótum.
Lifrarbólga C er mikið heilsufars-
vandamál í heiminum nú á dögum,
að því er fram kemur hjá Landlæknis-
embættinu. Talið er að um 3 prósent
manna í heiminum séu smituð og að
70 til 80 prósent þeirra séu með virka
sýkingu. Á undanförnum 15 árum
hefur orðið mikil aukning á sjúk-
dómstilfellum af völdum lifrarbólgu
C hér á landi. baldur@dv.is
landspítali Tíu manns hafa fengið
bætur vegna lifrarbólgu.