Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Blaðsíða 7
Fjölmargar uppsagnir og tilfærslur
innan Morgunblaðsins hafa átt sér
stað undanfarna daga og þekkt nöfn
í blaðamannaheiminum hafa fengið
að taka pokann sinn. Hjörtur Gísla-
son, fréttastjóri sjávarútvegsmála,
Sigmundur Ó. Steinarsson, yfirmað-
ur íþróttadeildarinnar, og Hjálmar
Jónsson, framkvæmdastjóri Blaða-
mannafélagsins, eru meðal þeirra. Þá
hafa þrír aðalstjórnendur ritstjórn-
arinnar, Björn Vignir Sigurpálsson
fréttaritstjóri og aðstoðarfréttarit-
stjórarnir Sigtryggur Sigtryggsson og
Ágúst Ingi Jónsson verið færðir til.
Heimildir DV herma að starfsfólk
innan Árvakurs, sem rekur 24 stund-
ir og Morgunblaðið, hafi alla síðustu
viku búist við kveðjupóstum frá sam-
starfsmönnum til margra ára. Eng-
inn var öruggur um sitt starf.
Í dag stígur Styrmir Gunnarsson
upp úr ritstjórastóli Morgunblaðs-
ins sökum aldurs og í hans stað sest
Ólafur Stephensen. Áður fyrr var það
talið með öruggasta starfi landsins
fengi landinn vinnu á Morgunblað-
inu. Þau sem voru ráðin voru ráðin
fyrir lífstíð. Það er liðin tíð.
Sjö ár að verða ritstjóri
Styrmir Gunnarsson hóf störf á
Morgunblaðinu 2. júní 1965, nánast
um leið og hann var búinn með laga-
nám úr Háskólanum. Hann átti að
sjá um síðu Sambands ungra sjálf-
stæðismanna sem þá var í Morg-
unblaðinu. Sjö árum síðar var hann
orðinn ritstjóri. Hann fór að skrifa
leiðara og Staksteina og kallaði ekki
allt ömmu sína. Undir forystu Styrm-
is hefur Morgunblaðið beitt sér í geð-
heilbrigðismálum í landinu.
Kona Styrmis, Sigrún Finnboga-
dóttir, hefur átt við geðsjúkdóm að
stríða og hefur Styrmir aldrei talað
beint um veikindi konu sinnar en
beitt sér fyrir betri aðbúnaði fyrir fólk
með geðsjúkdóma.
Baugsmálið
Morgunblaðið hefur verið um-
deilt vegna Baugsmálsins og fleiri
mála. Styrmir hefur gjarnan ver-
ið talinn valdamesti fjölmiðlamað-
ur landsins. Fátt hefur farið framhjá
honum og hann átti aðkomu að rík-
isstjórnarmyndunum á árum áður
og hefur verið ráðgjafi helstu valda-
manna landsins. Fullyrt hefur verið
að Styrmir og Kristinn Björnsson-
ar, þáverandi forstjóri Skeljungs og
eiginmaður þáverandi dómsmála-
ráðherra, hafi vitað um yfirvofandi
aðgerðir gegn Baugi. Þessu hefur
Styrmir ávallt neitað. Þá hefur ver-
ið gagnrýnt að Styrmir ásamt Jón-
ínu Benediktsdóttur athafnakonu
höfðu samráð um að koma máli
Jóns Geralds Sullenberger gegn
Baugi á koppinn. Þá hefur blaðið
undir stjórn Styrmis verið umdeilt
fyrir umfjöllun um kvótamál. Fyr-
ir nokkrum misserum fjallaði blað-
ið um kvótasvindl í greinaflokki og
hlaut bágt fyrir. Í framhaldi af því
sagði fjöldi upp áskrift að blaðinu
og eru áskriftartölur nú sagðar vera
í sögulegu lágmarki. Það fer saman
við að gríðarlegt tap hefur verið á
útgáfu Morgunblaðsins eða um 600
milljónir króna á seinasta ári. Megin-
ástæðan er væntanlega baráttan við
fríblöðin og þá sérstaklega Frétta-
blaðið sem höggvið hefur í afkomu
Morgunblaðsins og velt því af stalli
sem mest lesna dagblaði landsins.
Hlédrægur
Styrmir hefur í gegnum tíðina
verið lítið fyrir sviðsljósið. Sjaldgæft
er að sjá umfjöllun þar sem hann
er í veislum fína og fræga fólksins.
Styrmir hefur ekki mikið verið í við-
tölum en hann var þó í viðtali við
tímaritið Mannlíf vorið 2005 þar sem
hann talaði um líf sitt og starf.
„Ég hef enga þörf fyrir að sjást
og ég veit ekki hvort ég er eitthvað
þekktur í þessu þjóðfélagi. Ég þoli
ekki frumsýningar eða opnanir eða
neitt slíkt. Ég er ekkert meðvitað að
reyna að láta ekki sjá mig, ég hef bara
enga löngun til að vera í einhverju
sem heitir sviðsljós. Ég hef bara
gaman af að vinna á Morgunblað-
inu. Jafngaman að vinna á Morgun-
blaðinu núna, eins og þegar ég byrj-
aði fyrir tæpum 40 árum,“ sagði hann
árið 2005.
Breytingar yfirvofandi
Töluverðar breytingar verða á
Morgunblaðinu nú þegar nýr rit-
stjóri tekur við. Ólafur Steph-
ensen er þegar farinn
að láta til sín taka
og búinn að losa
sig við nokkr-
ar stórkan-
ónur.
Breyt-
ingar
hafa
orðið á öllum deildum blaðs-
ins nema ljósmyndadeild-
inni. Eitthvað hefur
verið um hurðarskelli
á Morgunblaðinu
og búast menn við
fleirum nú þegar
nýr mánuður lítur
dagsins ljós. En
breytingarnar á
Morgunblaðinu
eiga sér ekki síst
þá rót að nauð-
synlegt er að skera
niður rekstur til að
mæta hinu mikla
tapi. Það er verk-
efni nýs ritstjóra
nú þegar Styrmir
sest í helgan stein.
DV Fréttir mánudagur 2. júní 2008 7
Styrmir Gunnarsson stígur upp úr ritstjórastóli Morgunblaðsins í dag sökum aldurs eftir 36 ára starf. Hann
hefur unnið hjá Morgunblaðinu í alls 43 ár. Styrmir hefur verið mikill áhrifamaður í íslensku samfélagi und-
anfarna áratugi. Hann þykir umdeildur og staðfastur. Ákveðinn en sanngjarn og hefur beitt sér fyrir betri
aðbúnaði fyrir geðsjúka. Hann er af viðreisnarkynslóðinni í Sjálfstæðisflokknum og hefur aldrei farið leynt
með stuðning sinn við flokkinn.
SíðaSti dagur StyrmiS
Benedikt BóaS HinRikSSon
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
Síðasti dagurinn Styrmir gunnarsson stígur úr
stóli ritstjóra morgunblaðsins í dag.
Löglærður ritstjóri Styrmir hóf störf á
morgunblaðinu 1965 að loknu laganámi.
nýr ritstjóri Ólafur Stephensen
er nýr ritstjóri morgunblaðsins.
Ríkið greiðir tíu manns bætur fyrir að hafa smitast af lifrarbólgu:
Fá bætur fyrir lifrarbólgu