Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Síða 9
DV Fréttir mánudagur 2. júní 2008 9
BROTIN
STAÐFEST
Tveimur mönnum hafa verið dæmdar hæstu bætur sem ríkið
greiðir vegna kynferðisbrota. Annar þeirra segir Sif Konráðs-
dóttur hafa brugðist sem réttargæslumaður í málinu þar sem
hún hafi vanrækt að leggja málið fyrir bótanefnd.
„Þeir hafa nú fengið viðurkenningu
á að þetta gerðist. Það er það sem
þeim vantaði alltaf,“ segir fósturfað-
ir annars mannsins sem dæmdar
voru hámarksbætur frá bótanefnd
ríkisins vegna ítrekaðra kynferð-
isbrota. Tveir ungir menn fengu
hæstu bætur sem greiddar eru út
frá ríkinu vegna kynferðislegrar
misnotkunar sem þeir urðu fyr-
ir sem unglingar af hendi kennara
síns, Gísla Hjartarsonar. Hvor um
sig fékk 600 þúsund krónur í skaða-
bætur.
Tólf til fimmtán ára drengir
DV birti forsíðufrétt um kær-
ur piltanna 10. janúar 2006. Gísli
svipti sig lífi sama dag en í blaðinu
var greint frá því að lögreglan hefði
til meðferðar kærur gegn honum
vegna kynferðisofbeldis gegn ung-
um drengjum. Daginn áður stað-
festi Gísli í samtali við DV að lög-
regla hefði gert húsleit hjá honum.
„Þeir tóku tölvuna mína og skiluðu
henni aftur skömmu síðar,“ var haft
eftir Gísla í blaðinu.
Þar sagði einnig: „Samkvæmt
heimildum DV snúast kærurn-
ar sem lagðar hafa verið fram um
meint kynferðislegt ofbeldi sem
Gísli beitti tvo unglingsdrengi þegar
þeir voru á aldrinum tólf til fimmt-
án ára. Annar þeirra er nítján ára í
dag. Drengirnir eiga það sameigin-
legt að hafa þegið hjá Gísla stuðn-
ingstíma vegna heimalærdóms í
Grunnskóla Ísafjarðar.“
Fósturfaðir annars mannsins
sagði í samtli við DV í gær að ungu
mennirnir væru gríðarlega ánægð-
ir með þessar málalyktir: „Þeir hafa
nú fengið staðfestingu á að það var
brotið á þeim.“
Rannsókn málsins var hætt eft-
ir að Gísli tók eigið líf enda byggði
hún á ákærum gegn honum.
Mennirnir tveir fóru þá með málið
til bótanefndar rikisins sem telur
ljóst að Gísli hafi misnotað menn-
ina kynferðislega þegar þeir voru
unglingar.
Segir réttargæslumann
hafa brugðist
Annar mannanna sem kærði
Gísla segir réttargæslumann hafa
brugðist í máli sínu. Hann segir
ekkert hafa staðið til boða nema
að skjóta málinu til bótanefndar
ríkisins þegar rannsókn málsins
var hætt. Sif Konráðsdóttir hafði
þá verið skipuð réttargæslumað-
ur mannanna tveggja. Hún fór
með málið fyrir hönd mannanna
og tjáði þeim að hún hefði farið
með mál þeirra til bótanefndar-
innar.
Að sögn annars kærandans
reyndist þetta aftur á móti ekki
vera raunin. Hann segir Sif hafa
brugðist þeim algjörlega þar sem
hún hafi aldrei lagt málið fyrir
bótanefndina. Mennirnir upp-
götvuðu þetta skömmu áður en
frestur rann út til þess að fara
með málið fyrir nefndina. „Okk-
ur tókst á elleftu stundu að koma
málinu fyrir nefndina og fögnum
við þeirri niðurstöðu sem nú hef-
ur orðið,“ segir annar kærend-
anna. „Við vonum að málinu sé
nú lokið og það gerist ekki meira
af okkar hálfu,“ segir hann.
Hann sagði að frétt DV á sín-
um tíma hefði eyðilagt rannsókn
málsins en hann hefði eindregið
lagst gegn birtingu hennar en án
þess að tillit væri tekið til þeirrar
óskar.
Aðstoðaði „vinabörn“
Sögusagnir um kynferðisofbeldi
Gísla gegn unglingspiltum höfðu
lengi gengið um Ísafjarðarbæ án
þess að nokkur væri að gert þar til
mennirnir lögðu fram kæru.
Í fréttinni sagði að Gísli segði
kærur drengjanna til lögreglu
vera byggðar á misskilningi.
Heimakennsla á eigin vegum
Frétt DV vakti mikla athygli og
var afar umdeild. Undirskrifta-
söfnun fór fram á Netinu og tugir
þúsunda mótmæltu vinnubrögð-
um blaðsins. Ritstjórar blaðs-
ins á þessum tíma, Jónas Kristj-
ánsson og Mikael Torfason, voru
leystir frá störfum skömmu síðar
og daglegri útgáfu blaðsins var
nokkru síðar hætt að sinni. og DV
breyttist í helgarblað.
Framsetningin fór fyrir brjóst-
ið á mörgum en þar var sérstak-
lega tekið fram að Gísli væri
einhentur en hann missti aðra
hendina í slysi til sjós.
Við vinnslu fréttarinnar náðist
ekki í Sif Konráðsdóttur.
ErlA HlynSdóTTir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„„Okkur tókst á elleftu
stundu að koma málinu
fyrir nefndina og fögn-
um við þeirri niðurstöðu
sem nú hefur orðið.“
Ísafjörður
„Við vonum að
málinu sé nú lokið
og það gerist ekki
meira af okkar hálfu.“
dV myndir ásgeir