Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Side 16
Svarthöfði hefur alltaf verið mikill aðdáandi bandaríska leikarans Owens Wilson. Að
mati Svarthöfða er leitun að jafn-
geðþekkum og skemmtilegum
manni og Owen. Hann var óborg-
anlegur í Brúðkaupsboðflennun-
um, stórkostlegur í Zoolander og
þrusugóður í Þú, ég og Dupree.
Það var því áfall fyrir Svarthöfða
þegar jafnviðkunnanlegur maður
og Owen Wilson freistaði þess að
svipta sig lífi í fyrra. Ástæðan var að
ást hans hrökk af leikkonunni Kate
Hudson eins og vatn af gæs.
Skötuhjúin tóku saman á ný eftir harmþrungna sjálfsvígstil-raun skopleikarans, en upp úr
því sambandi slitnaði aftur. Í þetta
skiptið var það besti vinur Owens,
hjólreiðamaðurinn Lance Arms-
trong, sem stal stóru ástinni frá hon-
um. Téður Lance er ekki við eina
fjölina felldur, því þetta er í annað
skiptið sem hann stelur kærustu
frá Owen. Áður hafði hann ginnt
til sín söngkonuna Sheryl Crowe,
sem þá var einnig í sambandi við
Owen. Þvílíkur vinur. Stundum er
lífið grátlegur gamanleikur.
Fleiri fregnir af fræg-um hjónadjöflum bárust nýverið.
Pete Doherty, sem er
einna þekktastur sem
illa tenntur kærasti of-
urmódelsins Kate Moss,
gerðist svo kræfur að fara
fram á það við eiginmann
sjúskaða söngfuglsins Amy
Winehouse að hann yfirgæfi
hana svo hann gæti tekið við. Ef
Pete og Amy byrjuðu saman myndi
heimurinn meika sens. Stundum er
lífið heljarinnar harmónía.
Enn ein fréttin af samböndum fræga fólksins gekk algerlega fram af Svarthöfða. Það var sú
uppljóstrun að eiginmaður kántrí-
söngkonunnar Shaniu Twain hefði
haldið fram hjá henni með bestu
vinkonu hennar. Viðlíka afleikur
hefur ekki sést síðan Britney Spears
giftist Kevin Federline (K-Fed). Eig-
inmaður Shaniu er 17 árum eldri
en hún og allt annað en frýnileg-
ur. En stundum er lífið kolgeggjað
kántrílag.
Enginn maður hefur kitlað hláturtaug-ar Svart-
höfða jafnoft
og Bill Murray.
Djörfulleg
látalæti hans í
Draugabönun-
um og endurtek-
ið, látlaust glensið
í Múrmeldýrsdeginum hreinlega
grættu Svarthöfða úr gleði. Bill
Murray var kumpánlegur í hví-
vetna, í sólskini sem regni, frammi
fyrir dauða og draugum. Hann var
hinn fullkomni félagi.
Nú er komið í ljós að Bill Murray er allt annar maður í raun en sá sem birtist okk-
ur. Eiginkona hans sótti um skiln-
að á dögunum með þeim orðum
að hann hefði beitt hana ofbeldi,
haldið fram hjá henni og verið hinn
versti í ellefu ára hjónabandi þeirra.
Stundum er lífið í raun eins og léleg
þýðing á japönsku ljóði.
mánudagur 2. júní 200816 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fulltrÚi ritStjóra:
janus Sigurjónsson, janus@dv.is
fréttaStjóri:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur Helgason, asi@birtingur.is
DrEifingarStjóri:
jóhannes Bachmann, joib@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010,
áskriftarsími: 512 7080, auglýsingar: 512 70 40.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Sturlað Stjörnulíf
Svarthöfði
REYNIR TRAUSTASON RITSTjóRI SkRIfAR. Náttúran reiðir gjarnan til höggs þegar síst varir.
Fumlaus viðbrögð
Leiðari
lafur Helgi Kjartans-
son, sýslumaður á
Selfossi og yfirmað-
ur almannavarna
á svæðinu, og hans
fólk vann frábært starf þegar
Suðurlandsskjálftinn reið yfir
á fimmtudag. Örskömmu eftir
áfallið sem rústaði hundruð-
um heimila á Suðurlandi var
allt kerfið komið í gang og allt
sem í mannlegu valdi stóð var
gert til þess að greina ástand-
ið og koma fólki til hjálpar.
Björgunarsveitir voru um-
svifalaust mættar til að bjarga
fólki ef á þyrfti að halda. Sem
betur fer varð ekki mannfall í
þessum ógurlegu hamförum en það má teljast heppni ef miðað
er við stærð skjálftans. Suðurlandsskjálftinn kennir okkur enn
einu sinni hve tilvera okkar er ótrygg þar sem náttúran er ann-
ars vegar. Fallandi vísitölur hlutabréfa og hrun krónunnar er
hjóm eitt þegar náttúruhamfarir eru annars vegar. Þar er lífið að
veði. Þetta þekkjum við úr snjó-
flóðum og sjóslysum sem hrifs-
að hafa til sín fjölda manns-
lífa. Náttúran reiðir gjarnan
til höggs þegar síst varir. Þá
er áríðandi að kerfi almanna-
varna sé gott og skilvirkt. Í því
kerfi er þáttur björgunarsveit-
anna mikilvægur. Þúsundir
sjálfboðaliða eru ævinlega til-
tækar og menn reiðubúnir til
að leggja sig í hættu til að bjarga
samborgurum. Athygli vakti að
strax á hamfaradaginn á Suð-
urlandi mættu Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, og
Dorrit Moussaieff, eiginkona
hans, á svæðið. Forsetinn skil-
ur að hans hlutverk er að vera sýnilegur á meðal fólksins á erf-
iðum stundum. Aðrir ráðamenn komu daginn eftir á fund Sunn-
lendinga. Fumlaus og hröð viðbrögð við Suðurlandsskjálftanum
undirstrika hve gott kerfi hefur verið byggt upp og hversu heppn-
ir við Íslendingar erum að þessu leyti.
DómStóLL götunnar
Er sumarfrí alþingismanna of langt?
„er þetta ekki úrelt? var þetta ekki við
lýði þegar bændur voru á þingi?“
Kristján A. Kristjánsson,
65 ára húsgagnasmiður
„Ég veit ekkert hvað sumarfrí
alþingismanna er langt.“
Harpa Mjöll Reynisdóttir,
11 ára nemi
„mér finnst þetta of langt. Þrír mánuðir,
ég fæ ekki nema 4 til 5 vikur. mér finnst
allt í lagi að skerða það um helming.“
Hrafnhildur Waage,
52 ára sjúkraliði
„mér finnst þeir eiga að fá fimm vikur
eins og allir hinir. Það ætti að duga
þeim eins og okkur hinum.“
Friðrik Ragnarsson,
38 ára þjálfari Grindavíkur í
körfubolta
SanDkorn
n Stóísk ró þingmanna á Alþingi
í Suðurlandsskjálftanum á
fimmtudag vakti í senn athygli
og aðdáun
almennings.
Þeir stóðu
keikir þótt
jörð skylfi
og nötraði.
Einn þing-
mannanna
kipptist hins
vegar veru-
lega við og skáskaust út úr sal
Alþingis. Það var Bjarni Bene-
diktsson, vonarstjarna Sjálf-
stæðisflokksins, sem greinilega
var með almannavarnaviðbrögð
og sjálfsbjargarviðleitnina í lagi.
n Ólafur Ragnar Grímsson for-
seti sýndi enn og sannaði eftir
Suðurlandsskjálftann að hann
stendur við hlið þjóðar sinnar.
Hann var mættur ásamt Dorrit
Moussaieff á hamfarasvæðið
nokkrum
klukku-
stundum
eftir jarð-
skjálftann,
klæddur
í viðeig-
andi smart
klæðn-
að. Geir H.
Haarde forsætisráðherra og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ut-
anríkisráðherra náðu hins vegar
ekki að sinna hlutverki sínu sem
landsforeldrar fyrr en sólarhring
síðar.
n Það herbragð viðskiptaveld-
is Jóns Helga Guðmundsson-
ar, forstjóra Norvikur, að taka
einhliða ákvörðun um 60 daga
greiðslu-
frest Byko
gegn birgj-
um hefur
mætt mikilli
gagnrýni.
Ákvörðunin
virtist bera
keim af kúg-
un og við-
skiptaofbeldi, enda mega birgj-
ar sín lítils gegn gríðarlegu veldi
Jóns Helga. Pétur Gunnarsson,
ritstjóri eyjan.is, benti hins veg-
ar á það á Bylgjunni að mögu-
lega sé ekki um ofbeldi að ræða,
heldur nauðvörn. Svo geti verið
að veldi Jóns Helga „rambi á
barmi gjaldþrots“, eins og hann
orðaði það, og því sé ekki um að
ræða fúlmennsku af ásetningi.
n Condoleezza Rice, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, olli
blaðamönnum vonbrigðum á
blaðamannafundi. Hún svar-
aði einungis tveimur spurning-
um frá íslenskum blaðamönn-
um. Önnur spurningin varðaði
Guantanamo-fangabúðirnar og
hafa íslenskir blaðamenn yfirleitt
eftirlátið bandarískum blaða-
mönnum frumvinnslu slíks efn-
is. Spurningin sem Condi fékk
ekki, er hvort Íslendingar verði
fjarlægðir af lista hinna viljugu
þjóða, hvort Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir hafi staðið við kosn-
ingaloforð sitt um slíka beiðni og
hvort listi hinna viljugu þjóða sé
yfirleitt til.
Ó