Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Blaðsíða 19
inn í seinni hálfleikinn. Mér
finnst svona eftir á að hyggja
ofboðsleg grimmd í liðinu á
öllum sviðum. Sókn, vörn,
markvörslu og hraðaupp-
hlaupum. Það er bara
þannig að við unnum vel
fyrir þessu,“ sagði lands-
liðsþjálfarinn sáttur.
Torsóttur sigur
Ísland var með forystu
allan seinni hálfleikinn
og hélt áfram glæsilegri
spilamennsku. Slæmi kaflinn geð-
þekki sem venjulega er boðið upp
á þegar of vel gengur sást hvergi en
dómarar leiksins reyndu þá sjálf-
ir að hjálpa Svíunum. Þó leikurinn
hafi verið mestmegnis vel dæmdur
fengu Íslendingar margar brottvís-
anir fyrir vægar sakir á meðan Sví-
arnir sluppu með sömu glímutökin.
Svíarnir þurftu líka á allri þeirri
hjálp að halda sem í boði var því
ekki var liðið margt að gera. Hægri
skyttan Kim Anderson er sá sem á
að leysa Ólaf Stefánsson af hjá Ci-
udad Real en það var ekki að sjá
að hann væri maður til þess í gær.
Hann hafði enga trú á verkefninu
frekar en aðrir í sænska liðinu.
Það var samt ekta Ísland að gera
ekki út um leikinn strax heldur halda
fólkinu heima fyrir á mörkum hreinn-
ar geðveilu en eflaust var öskrað yfir
mörgum sjónvörpunum í gærdag. Á
endanum var sigur þó staðreynd, 29-
25, og hann fyllilega verðskuldaður.
Hreiðar Levy Guðmundsson var
maður leiksins en hann átti annan
eins dag og gegn Pólverjum á laug-
ardaginn. Það verður hreint að segj-
ast að íslenska liðið lítur vel út spili
það eins og í gær. Stórkostlegur sigur
í höfn og farmiði á ólympíuleikana
tryggður.
Gat farið hvernig sem er
„Draumur okkar var að komast
á Ólympíuleikana í Peking og við
stefndum að þessu takmarki leynt
og ljóst,“ sagði Guðmundur Guð-
mundsson við DV í gær. „Við vissum
samt að við yrðum að eiga frábær-
an leik til að leggja Svíana og það
gekk eftir. Við vorum með tækifæri
til að gera út um leikinn aðeins fyrr
en það hafðist ekki. Undir lokin gat
þetta endað hvernig sem er og ekki
má gleyma að þeim dugði jafntefli,“
sagði Guðmundur sem var á leið-
inni út að fagna með liðinu.
„Verður maður ekki aðeins að fá
að anda?“ sagði Guðmundur létt-
ur. „Við erum búnir að vera lengi úti
þannig við verðum að fá smá tíma til
að anda. Ég held að við höfum alveg
unnið fyrir því,“ sagði Guðmundur
hress við DV að lokum.
DV Sport mánudagur 2. júní 2008 19
WenGer vill breyTT sTiGakerfi arsene Wenger stjóri ars-
enal vill að liðum séu veitt aukastig fyrir það að spila sóknarknatt-
spyrnu. Hann er búinn að fá nóg af því þegar lið sitja til baka og
verjast allan leikinn. „Ég sé fyrir mér kerfi þar markamunur í leikj-
um getur skorið úr um það hversu mörg stig lið fá eftir leikinn.
Það þýðir að ef lið eru að vinna 3-0, þá er ennþá hvatning fólgin
í því að halda áfram að sækja og skora fleiri mörk. Einnig myndi
það hvetja andstæðingana til þess að reyna enn frekar að minnka
muninn. Þetta myndi kannnski koma í veg fyrir að lið lægju til
baka í vörn ef þau eru eitt til tvö – núll yfir,“ segir Wenger.
HuGHes efsTur á óskalisTanum mark Hughes framkvæmdastjóri
Blackburn er efstur á óskalista manchester City en miklar líkur eru á því að
Sven-göran Eriksson verði látinn taka pokann sinn. Thaksin Shinawatra eig-
andi félagsins leitar nú logandi ljósi að eftirmanni Erikssons og avram grant
hefur einnig verið nefndur til sögunnar. Fjölmiðlar á Englandi ganga svo
langt að segja að Shinawatra hafi þegar beðið Blackburn um leyfi til þess að
ræða við Hughes en engum sögum fer af viðtökum Blackburn-manna.
LESTU NÚNA SPORTIÐ Á DV.IS!
MOLAR
Þrír leikir í kvöld
Fimmtu umferð Landsbankadeildar
karla lýkur í kvöld með þremur leikjum.
Kr mætir þá Fram á Kr-velli, grindavík
tekur á móti bik-
armeisturum FH í
grindavík og Val-
ur sækir HK heim
í Kópavog. HK-
mönnum hefur
ekkert gengið í
deildinni og þeir
fá ærið verkefni
þegar þeir mæta
Val í kvöld. Takist
þeim ekki að sigra íslandsmeistarana
sitja þeir uppi stigalausir eftir fimm
umferðir. Kr hefur ekki heldur gengið
sem best en það hefur einungis 3 stig
eftir fyrstu fjóra leikina. í fyrra vann
Kr sinn fyrsta sigur á Fram í deildinni
þegar guðmundur Pétursson skallaði
inn sigurmarkið í uppbótartíma. grind-
víkingar vonast þá til að leika jafnvel og
þeir gerðu gegn Breiðabliki þegar þeir
mæta FH í kvöld en á Kópavogsvelli í
síðustu umferð leiddu þeir í hálfleik, 5-
1. Leikur Vals og HK hefst klukkan 20 en
hinir tveir klukkan 19.15.
Hola í HöGGi í sjöunda skipTi
Björgvin Þorsteinsson margfaldur ís-
landsmeistari í golfi gerði sér lítið fyrir
og fór holu í höggi í sjöunda skiptið
á ferlinum á laugardaginn. Þetta kom
fram á golfvef
morgunblaðs-
ins. Björgvin var
á öðrum teig
grafarholtsvall-
ar þegar hann
setti upphafs-
höggið niður
með fleyg-
járni. „Þetta var
undan vindi og
svona 130 metrar. Boltinn lenti á flöt-
inni, hoppaði einu sinni og hvarf. Við
vorum samt ekki vissir hvort boltinn
hefði farið í eða aðeins hægra megin
því þar fannst okkur glampa á eitt-
hvað,“ sagði Björgvin um áfangann.
sTelpubúðir að ásvöllum
Landsliðskonurnar í körfubolta
Helena Sverrisdóttir og maría Ben
Erlingsdóttir munu í sumar standa
fyrir körfuboltabúðum fyrir stelpur.
Búðirnar verða fyrir stúlkur á aldrin-
um 10-15 ára dagana 20. til 22. júní.
Bæði Helena
og maría leika
með banda-
rískum háskól-
um en þær
luku sínu fyrsta
tímabili í ár.
Helenu gekk
frábærlega
með sínum
skóla, TCu, og
var kosin nýliði ársins hjá skólanum
og í deildinni er þær léku í. í auglýs-
ingu fyrir búðirnar kemur fram að
verðið sé 9.500 krónur fyrir helgina
en innifalið í því er matur, sund, gist-
ing í tvær nætur og auðvitað nóg af
körfubolta.
Hörður HæTTir í víkinGi
Hörður Sigurjón Bjarnason er hættur
hjá 1. deildar liði Víkings en félagið
sendi frá sér fréttatilkynningu þess
efnis um helgina. „Knattspyrnudeild
Víkings og Hörður Bjarnason hafa
komist að
samkomulagi
um starfslok
Harðar hjá
Víkingi frá og
með deginum í
dag. Knatt-
spyrnudeild
Víkings þakka
Herði fyrir
framlag hans
til félagsins á undanförnum árum
og óskar honum alls hins besta,“
segir í tilkynningunni. Þetta er annar
leikmaðurinn sem Víkingur missir á
stuttum tíma en nokkrum dögum
áður hafði félagið sagt Sinsia Kekic
upp störfum.
arnór atlason var ánægður með sigurinn á Svíum:
„VIÐ EINFALDLEGA JÖRÐUÐUM ÞÁ“
„Þetta er uppreisn æru fyrir mig,“
sagði landsliðsmaðurinn Arnór
Atlason við DV í gærkvöldi en Arn-
ór missti af Evrópumótinu í janúar
vegna meiðsla. Hann átti stóran þátt
í því að Ísland tryggði sér sæti á Ól-
ympíuleikunum í Kína með frábær-
um sigri á Svíþjóð í gær. „Ég held mig
hafa gert það sem búist var við af mér
og finnst ég hafa staðist þær kröfur,“
sagði Arnór.
Eftir tapið gegn Pólverjum á laug-
ardaginn var leikurinn í gær hreinn úr-
slitaleikur um sæti á Ólympíuleikun-
um 2008 þar sem Svíum dugði reyndar
jafntefli. „Okkur fannst við ekkert vera
slakir gegn Pólverjum. Við vissum al-
veg að ef við myndum spila jafnvel og
gegn Pólverjum gætum við vel sigr-
að Svía sem kom svo á daginn,“ sagði
Arnór sem var ekkert sérstaklega hóg-
vær fyrir hönd liðsins um leikinn gegn
Svíum. Enda engin ástæða til
„Við einfaldlega jörðuðum þá, svo
einfalt er það. Það var eins og Svíarnir
hefðu ekki trú á þessu einhvern veg-
inn. Það var gott hjá Guðmundi þjálf-
ara að hvíla Fúsa [Sigfús Sigurðsson]
þangað til í dag [gær]. Hann var al-
veg frábær reyndar eins og svo marg-
ir aðrir,“ sagði Arnór en Sigfús kom
gríðarlega sterkur inn í vörnina og
áttu útileikmenn Svía ekki möguleika
í rússajeppann fyrir miðju varnarinn-
ar.
Arnór er danskur meistari með
FCK en í liði hans eru þrír landsliðs-
menn Svía. „Ég faðmaði þá eitthvað
eftir leikinn en meira var það nú ekki.
Við erum á leið á lokahófið þannig ég
hitti þá eflaust þar. Þjálfarinn minn
hjá FCK er eflaust hæstánægður með
þetta. Nú missir hann mig bara í ág-
úst en ekki þá þrjá. Undirbúningurinn
ætti því að vera betri fyrir FCK,“ sagði
Arnór glettinn við DV að lokum.
tomas@dv.is
á fjúgandi ferð til
peking arnór atlason
átti góða helgi með
landsliðinu í Póllandi.
dV-mynd jonas Ekströmer/Scanpix
frábær Hreiðar Levy
guðmundsson átti
stóran þátt í sigri íslands.
TAKIÐ FRÁ SÆTI,
ÍSLAND FER TIL PEKING!
við erum á leiðinni á ól
Sigfús Sigurðsson faðmar fyrirliðann,
Ólaf Stefánsson.