Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Síða 28
Ég hef alla tíð verið mikill að-
dáandi Sex and The City þáttanna
og því beðið með þokkalegri eft-
irvæntingu eftir því að fá að sjá
myndina. Við héldum fjórar vin-
konurnar saman á frumsýninguna
í Háskólabíói á föstudaginn. Eft-
ir að hafa lesið erlenda gagnrýni
á myndina sem oftar en ekki var í
neikvæðari kantinum var ég nokk-
uð hrædd um að verða fyrir von-
brigðum. Eins og við var að bú-
ast var salurinn fullur og kvenfólk
í miklum meirihluta, þó leyndist
einn og einn karlmaður inn á milli
sem annaðhvort var píndur með af
konunni eða einfaldlega var nógu
mikið karlmenni til að viðurkenna
að hann fílaði Sex and The City
nógu mikið til að skella sér á frum-
sýningu.
Um leið og myndin hófst fékk ég
gæsahúð, þarna voru þær mættar
aftur. Vinkonur mínar þær Carrie,
Samantha, Charlotte og Miranda
þremur árum eftir að ég skildi við
þær síðast. Myndin hófst á smá
upprifjun um hverja og eina og
til að hita mann aðeins upp fyrir
framhaldið var Carrie sýndi í held-
ur mörgum mismunandi dressum í
upphafi, sem öll voru algjört augna-
konfekt. Það reyndist svo vera al-
gjör unun að fylgjast með klæðn-
aði vinkvennanna, fatnaður, skór
og skart frá öllum flottustu hönnuð-
um heimsins hélt áfram að birtast
út alla myndina. Allur flotti fatnað-
urinn er út af fyrir sig eitthvað sem
gerir myndina að skylduáhorfi fyrir
allar áhugamanneskjur um tísku.
Söguþráðurinn var bara nokkuð
óvæntur miðað við það hvað ég átti
allt eins von á að hann yrði nokk-
uð týpískur og tók sífellt óvænta
stefnu. Klisjurnar voru auðvitað
á sínum stað en einhvern veginn
aldrei það miklar að mig langaði að
æla í poppkornið mitt yfir fyrirsjá-
anlegum rómó-mómentum eins
og oft vill verða með þessar róm-
antísku gamanmyndir. Þær fara oft
aðeins yfir strikið í rómantíkinni.
Þvert á móti lifði ég mig bara inn
í klisjurnar enda leið mér eins og
fjórmenningarnir væru í alvörunni
bestu vinkonur mínar svo ég gladd-
ist með þeim þegar það átti við,
fékk gæsahúð nokkuð oft, varð leið
þegar eitthvað bjátaði á hjá þeim
og upplifði hreinlega allan tilfinn-
ingaskalann. Svo var myndin líka
full af góðum bröndurum, sumum
það góðum að salurinn veltist um
af hlátri og meira að segja klapp-
aði. Satt að segja var það tepran
hún Charlotte sem stendur upp úr
hjá mér hvað húmorinn varðar eft-
ir myndina enda átti hún nokkra
það hlægilega spretti út myndina
að ég var næstum því búin að míga
niður úr úr hlátri.
Ég veit ekki hvort það var bara
það að ég passaði mig að fara ekki
á myndina með það í huga að ég
væri að fara á einhverja óskars-
verðlaunamynd eða af því að ég var
búin að lesa svo niðrandi gagnrýni
um myndina að ég þorði ekki að
gera mér neinar vonir en ég labb-
aði allavega út af myndinni svo full-
komlega sátt að ég fann ekkert að
henni. Fyrir mér var þetta bara hin
fullkomna kveðjustund til að segja
endanlega skilið við þær Carrie, Sa-
mönthu, Charlotte og Miröndu. Ég
held samt að þetta verði alveg eins
og með þættina sem maður hefur
suma horft á oftar en einu sinni og
oftar en tvisvar. Ég á örugglega eft-
ir að geta horft á Sex and The City:
The Movie aftur og aftur.
Krista Hall
Mánudagur 2. júní 200828 Fókus DV
á m á n u d e g i
Fullkomin
kveðjustund
Snilldar dag-
skrárgerð
Lokaþáttur Hunds í útvarpssal
glumdi með látum í viðtækjum
landsmanna á laugardaginn og
gerðu umsjónarmennirnir Hjörleif-
ur Hjartarson og Eiríkur Stephensen
úr hljómsveitinni Hundur í óskilum
upp veturinn.
Upptökur tvíeykisins eru yndislega
heimagerðar og passlega hallæris-
legar og frumsömdu textarnir mjög
fyndnir á sinn aulalega hátt. Einn-
ig er vert að minnast á aðdáunar-
verða framistöðu hins svokallaða
Útvarpskórs Norðurlands, en sá er
að sögn mannaður því útvarpsfólki
sem tiltækt er hverju sinni. Þegar
allt ofantalið smellur saman minna
lög félaganna á gamansöngva Halla
og Ladda eða Ómars Ragnarsson-
ar eins og þeir gerast bestir. Má þar
sérstaklega nefna lagið Þjóðsöng
Kópavogsbúa, þar sem helstu perl-
ur bæjarfélagsins eru tíundaðar í
bundnu máli á einkar hressilegan
máta.
Það er klárt mál að helsti styrkur
þáttarins liggur í skopskyni umsjón-
armannanna frekar en tónlistarlegri
tjáningu þeirra. Það hefði því verið
gaman að heyra meira af frum-
sömdum gamanvísum og minna af
ábreiðum, þó þær hafi raunar verið
skemmtilega útfærðar.
Fyrir þá sem misstu af þættinum
verður hann endurfluttur á þriðju-
daginn klukkan hálf átta. Upptökur
af þættinum má finna á www.ruv.is.
Hafsteinn Gunnar Hauksson
bíódómur
Sex and the City:
the Movie HHHHH
LeikStjórn: Michael Patrick king
aðaLhLutverk: Sarah jessica Parker,
kim Cattrall, kristin
davis, Cynthia
nixon, Chris noth,
jennifer hudson
Myrkur vetur er fyrsta bókin sem
ég les eftir Andy McNab, en nafn
höfundar er dulnefni fyrrverandi
sérsveitarforingja í breska hernum.
Aftan á bókinni, sem er sú fyrsta
sem kemur út á íslensku eftir höf-
undinn, segir að hann hafi skrifað
metsölubækur sem byggðar séu á
eigin reynslu. Bækur eftir hann hafa
farið fram hjá mér hingað til og ég
geri ráð fyrir því að sú verði raunin
áfram.
Í stuttu máli fjallar bókin um
baráttu sérsveitarmannsins Nicks
Stone við hryðjuverkamenn úr röð-
um al-Kaída. Stone, ásamt hjálpar-
hellu hans, Suzy, hefur verið falið
það verkefni að koma í veg fyrir að
hryðjuverkamönnunum takist að
eyða öllu lífi í Lundúnum. Hryðju-
verkamennirnir hyggjast valda
lungnabólgufarsótt og hafa und-
ir höndum allt sem til þarf. Önnur
skotmörk hreyðjuverkamannanna
eru New York og Berlín.
Inn í frásögnina blandast einka-
líf Nicks Stone og fyrr en varir
stendur hann frammi fyrir afarkost-
um í verkefni sínu. Söguþráðurinn
er hvorki betri né verri en gengur og
gerist í sögum af þessum toga; úr-
ræðagóðir, sérþjálfaðir útsendarar
vestrænna stjórnvalda gegn öfga-
fullum samtökum múslíma sem
svífast einskis til að koma höggi á
Vesturlönd og önnur ríki sem ganga
erinda þeirra. Váin vegna notkun-
ar sýkla í hryðjuverkum hefur lengi
legið líkt og óveðursský yfir heims-
byggðinni og ég leyfi mér að ætla
að henni sé ágætlega lýst í Svörtum
vetri.
Það sem ég aftur á móti hnaut
um oftar en einu sinni og oftar en
tvisvar og pirraði mig við lestur
bókarinnar var viðleitni höfund-
ar, í tíma og ótíma, til að fullvissa
lesandann um sérþekkingu sína á
þessu starfssviði. Mig, sem lesanda,
varðar til dæmis ekkert um viðnám
gikks á byssu, eða nokkuð slíkt. Ef
ég hefði áhuga á því myndi ég lesa
tímarit um skotvopn. Engu að síð-
ur nær höfundur að byggja upp
spennu í atburðarásinni, en eins og
oft vill verða hafði ég meiri áhuga
á örlögum aukapersóna í bókinni,
en örlögum heimsbyggðarinnar. En
Myrkur vetur er fyrst og síðast sem
slík og fyrir mitt leyti hefði engu
skipt þó Andy McNab væri nætur-
vörður á hóteli í Soho.
Kolbeinn Þorsteinsson
Þarf ekki að lesa tvisvar
Hvað veiStu?
1. greint var frá því í nýjasta helgarblaði dv hver muni leikstýra jólasýn-
ingu Þjóðleikhússins í ár. hver er hinn útvaldi?
2. hvaða íslenski fatahönnuður hreppti á dögunum hin virtu söderberg-
hönnunarverðlaun?
3. hvaða leikhópur sýnir gaukshreiðrið í Þjóðleikhúsinu á miðvikudaginn?
1. hiLMar jónSSon2. Steinunn Sigurðardóttir 3. haLaLeikhóPurinn
RÚv - laugaR-
dagskvöld
Mistök í sjónvarpi geta verið
hressandi. Síðastliðið laugardags-
kvöld sat fjölskyldan í rólegheitum
yfir sjónvarpinu þegar Katrín Brynja,
sem kynnt hefur dagskrána í fjölda
ára hjá Ríkissjónvarpinu, taldi sig
vera eina í settinu. Katrín var með
hugann við að lagfæra sjálfa sig fyrir
útsendingu sem þegar var hafin.
Andartök sem þessi geta orð-
ið hryllilega neyðarleg en Katrínu
Brynju tókst að draga fram hlátur
hjá öllum í fjöldskyldunni. Sjálfri brá
henni illilega þegar hún uppgvötaði
að útsendingin væri hafin og brást
við með háværri röddu og baráttu
við hláturinn.
Hún komst ágætlega út úr þessari
kynningu en var auðsjáanlega ekki
búin að jafna sig í þeirri næstu þegar
hún skellti upp úr í miðri setningu.
Dagskrárkynnar sæta oft mikilli
gagnrýni fyrir hluti eins og klæða-
burð, hár, förðun, framkomu og
svo framvegis sem segir til um að
starf þeirra er oft á tíðum vanmetið.
Vissulega skipta þessir hlutir máli
en að vera í beinni útsendingu er
ekki auðvelt verk, hvað þá að tækla
óvæntar uppákomur sem þessar. Að
mínu mati eru þetta einmitt töfrarnir
við beina útsendingu. Þú veist aldrei
hvað getur gerst.
Þó svo að viðbrögð Katrínar
Brynju hefðu getað verið önnur sýndi
hún mannlegu hliðina og það kunn-
um við sem heima sitjum að meta.
Kolbrún Pálína Helgadóttir
SJóNVArPSdómur
katrín Brynja – ÞuLa
ríkissjónvarpið HHHHH
Sex and the City: The Movie
„Fyrir mér var þetta bara hin
fullkomna kveðjustund.“
ÚtVArPSdómur
hundur í útvarPSSaL
rás 2 HHHHH
bóKAdómur
Myrkur vetur
höFundur:
andy Mcnab
útgáFuFéLag:
Bókafélagið ugla
Myrkur vetur er
spennusaga sem þarf
ekki að lesa tvisvar
HHHHH