Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Page 30
Mánudagur 2. júní 200830 Síðast en ekki síst DV
Sandkorn
n Sjónvarpsþátturinn Svalbarði
hefur undanfarna tvo mán-
uði eða svo verið í sýningum á
Skjá einum. Miklar vonir voru
bundnar við
þáttinn, en
Þorsteinn
Guðmunds-
son þykir
ekki aðeins
frambæri-
legur stjórn-
andi, heldur
voru Ágústa
Eva og Sindri Kjartansson
ávísun upp á kokteil sem átti
ekki að klikka. Það hefur því
væntanlega verið mikil sorg
innanbúðar hjá Skjá einum,
þegar ljóst var að þátturinn
komst ekki einu sinni í hóp tíu
vinsælustu þátta stöðvarinnar,
ef marka má nýlegar áhorfs-
kannanir Capacent Gallup. Í
nýjasta tölublaði Séð og heyrt
er svo greint frá því að Sindri
Kjartansson hafi sagt skilið við
þáttinn. Greinilega allt á rúi og
stúi á Svalbarða.
n Baldvin Z sem stjórnaði gerð
Eurvosion-myndbandsins This
is my life hefur haft nóg á sinni
könnu frá því hann flutti aftur
til landsins
eftir ára-
langa dvöl í
Danmörku.
En skömmu
eftir að tök-
um lauk á
Eurovision-
mynd-
bandinu
hófst hann handa við gerð
stuttmyndarinnar Deyr sem
Kvikmyndafélags Íslands fram-
leiðir. Eurovision-myndbandið
í ár þótti einstaklega skemmti-
legt og því verður spennandi að
sjá hvernig til tekst með stutt-
myndina.
n Logi Geirsson stóð sig ekki
síður vel en Íslenska landsliðið
um helgina þótt hann hafi þurft
að sitja hjá vegna meiðsla. Logi
var uppi í Efstaleiti með Hrafn-
katli Kristjánssyni og stóð sig
vel í að greina leiki félaga sinna
í landslið-
inu. Logi
tók hlut-
verki sínu
augljóslega
alvarlega
og kom vel
undirbú-
inn í hverja
útsendingu
og mátti sjá
að Logi hafði punktað hjá sér á
blað hvaða atriði hann ætlaði
að tækla hverju sinni. Spurning
hvort hann snúi sér að sjón-
varpinu þegar handboltaferlin-
um líkur.
asgeir@dv.is
Hver er maðurinn?
„Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á Selfossi, fæddur 2. sept-
ember 1953, alinn upp í Árnessýsl-
unni, útskrifaðist sem lögfræðingur
frá HÍ fyrir þrjátíu árum og lauk
MPA-prófi í febrúar síðastliðnum.“
Hvað drífur þig áfram?
„Einlægur áhugi á því að ná árangri
í lífinu við það sem ég fæst hverju
sinni.“
Hvaða manneskju í mannkyns-
sögunni myndir þú helst vilja
verja kvöldstund með?
„Þeir eru svo margir en ég hefði
mikinn áhuga á því að hitta annars
vegar Þorgeir Ljósvetningagoða og
hins vegar þann sem var fæddur
fyrir rúmum tvö þúsund árum í Ís-
rael. Þorgeir virðist hafa verið afar
skynsamur maður eins og honum er
lýst. Virðist hafa séð nauðsyn þess
að menn stæðu saman og gat þar
af leiðandi látið af því meginsjón-
armiði sínu að dýrka Óðin og Þór.
Kristur hafði greinilega mikla ást á
mannkyninu, vildi mönnum allt það
besta og boðaði kærleik. Ég held það
sé aldrei nóg af kærleik í heimin-
um.“
Hver er uppáhaldsbókin þín?
„Þessi er erfið. En ég get til dæm-
is nefnt Laxdælu. Þar eru ótrúlega
skemmtilegar mannlýsingar og
ótrúlega mikið að gerast. Melkorka
hefur líka alltaf heillað mig, meðal
annars vegna þess að í þögninni
fékk hún það fram sem hún vildi, við
erfiðar aðstæður.“
Hver er uppáhaldsbíómyndin
þín?
„Ég man að Breaking the Waves
hafði afskaplega mikil áhrif á mig.
Sú sem ég hef oftast nefnt sem
uppáhaldsbíómynd er svo 79 af
stöðinni, þessi ágæta lýsing á ís-
lensku samfélagi á miklum um-
brotatímum.“
Af hverju lögreglan?
„Meira og minna tilviljun. Lögfræð-
in leiddi mig annars inn á þá braut.
Þegar ég varð sýslumaður árið 1991
tók ég þá meðvituðu ákvörðun að
vera ekki eingöngu sýslumaður og
sjá um borgaralega hlutann, heldur
vera einnig lögreglustjóri og reyna
að ná árangri þar því lögreglan hefur
mikilvægu hlutverki að gegna í sam-
félaginu.“
Hvernig upplifðir þú skjálftana
á fimmtudaginn?
„Ég var inni á skrifstofu fulltrúa
míns þar sem ég var að ljósrita. Ég
losnaði bæði við að fá ljósritunar-
vélina á mig og að horfa upp á skrif-
stofuna mína hrynja í rúst. Aðkom-
an á sýslumannsskrifstofunni var
skelfileg, en sem betur fer voru allir
í kaffi. Ég mun aldrei framar setja út
á kaffidrykkju starfsmanna sýslu-
mannsins.“
Varstu smeykur við rúllandi
steinana í Ingólfsfjalli?
„Hugurinn leitaði nú ekki fyrst til
þeirra. Ég var smeykari um afdrif
foreldra minna, konu og barna. En
rúllandi steinar hafa aldrei skelft
mig.“
Hver eru næstu skref hvað varðar
afleiðingar skjálftans?
„Það er að skrá allar afleiðingar og
skemmdir. Vísa annars vegar fólki
sem varð fyrir tjóni á tryggingafélög-
in og hins vegar þeim sem telja sig
þurfa á áfallahjálp að halda á
þjónustumiðstöðvar og Rauða
krossinn. Svo tekur við margra vikna
eða mánaða vinna að sjá öll kurl
koma til grafar.“
MAÐUR
DAGSINS
Rúllandi steinaR
aldRei skelft mig
Ólafur Helgi Kjartansson,
sýslumaður á Selfossi, hefur staðið í
ströngu eftir skjálftana miklu á Suður-
landi í nýliðinni viku. Hann segist aldrei
framar ætla að setja út á kaffidrykkju
starfsmanna embættisins.
BókStAfleGA
„Þetta er fullkomnasta
„black box“
á Íslandi í
dag. Það er
einfaldlega
þannig.“
n Hilmar jónsson,
leihússtjóri Hafnar-
fjarðarleikhússins, um leikhúsið, í
dV.
„Ég fékk alveg einstakt
tækifæri til að
hitta Jack
Nicholson.
Hann er
nákvæm-
lega eins og
hann er í bíó-
myndunum.“
n Steinunn Sigurðardóttir fatahönn-
uður, í dV, um það þegar hún hitti
nicholson í La fyrir tíu
árum.
„Dr. Gunni -
Alltaf mega
halló. Það
er gott nafn á
plötu.“
n gunnar Lárus Hjálmarsson slær á
létta strengi á bloggi sínu.
„Við höfum reynt að
finna einhvern annan
flöt á þessu en það hef-
ur bara ekki gengið, því
miður.“
n Eldar ástþórsson, á dv.is,
maðurinn á bak við Iceland
airwaves hefur sagt skilið við
hátíðina vegna ágreinings við
eiganda Hr. Örlygs.
„Peking,
Peking,
við erum á
leiðinni!“
n adolf Ingi
Erlingsson í beinni
lýsingu Sjónvarpsins á leik íslands
og Svíþjóðar þegar úrslitin lágu ljós
fyrir.
„Áfram
Ísland!“
n guðjón Valur
Sigurðsson reif
hljóðnemann af
adolf Inga og Ólafi
Birni í beinni útsendingu þegar
ísland hafi tryggt sér sæti á
Ólympíuleikunum 2008.
„Við getum gleymt karl-
mennskunni og mojo-
inu á svona
stundu og
verið svo-
lítið meirir.“
n Hreiðar Leví
guðmundsson í
mikilli geðshræringu
eftir að hafa tryggt íslandi sæti á
ólympíuleikum með frábæri
markvörslu.
„Það má skera
spennuna hér
á Broadway
með hníf.“
n jón jósep
Snæbjörnsson í
beinni útsendingu
frá keppninni
ungfrú
ísland
á Skjá
ein-
um.
Til stóð að halda glæsilegt kvenna-
kvöld á Hótel Geysi síðastliðið laug-
ardagskvöld en vegna jarðskjálftans
var sú ákvörðun tekin að fresta kvöld-
inu fram á haust. Margir aðstandend-
ur kvennakvöldsins urðu fyrir miklu
eignatjóni vegna skjálftans.
„Við ætlum að sýna stuðning
vegna skjálftans og halda upp á hvað
við erum sæt og falleg í haust,“ seg-
ir Heiðar Jónsson kynnir Kvenna-
ljómans sem til stóð að halda á
Hótel Geysi um helgina. Eftir fund
eigenda og framkvæmdaaðila Hótels
Geysis á föstudaginn var ákveðið að
Kvennaljómanum 2008 yrði frestað
til hausts.
„Til stóð að halda tískusýningar
frá tveimur verslunum á Selfossi á
kvennakvöldinu en eigendur þeirra
fóru báðir illa út úr skjálftanum. Önn-
ur varð fyrir því að mikið tjón varð á
heimili hennar en á verslun hinnar.
Einnig er slæmt ástand í snyrtivöru-
versluninni sem ætlaði að að kynna
Guerlain á Kvennaljómanum en gíf-
urlegt magn snyrtivara eyðilagðist í
skjálftanum.
Heiðar segir líka að taka hafi
þurft tillit til þess að um helming-
ur kvennanna sem höfðu skráð sig
á kvennakvöldið búi á Suðurlandi
og hafi því að öllum líkindum lent
í tjóni af einhverjum toga. „Fólk vill
örugglega halda sig heima þegar að-
stæður eru svona og því höldum við
Kvennaljómann með pompi og prakt
í haust,“ segir snyrtirinn að lokum.
Fresta varð kvennakvöldi vegna jarðhræringanna á Suðurlandi:
Kvennaljómanum frestað
Kynnir Kvennaljómans Heiðar jónsson
mun kynna á kvennakvöldinu glæsilega í
haust.