Fréttatíminn - 15.05.2015, Síða 31
Rauði
þráðurinn í
nýju mynd-
inni er saga
kvenna-
framboð-
anna
komust 9 konur á þing það ár því
hinir flokkarnir brugðust auðvitað
við kvennaframboðinu með því að
flagga sínum konum. Þannig að
bara eftir fyrstu kosningarnar þá
hækkaði tala kvenna á Alþingi um
200%.“
Saga sem er full af mótsögnum
Halla Kristín hefur unnið með öðru
að gerð myndarinnar í fimm ár og
segir heimildaöflun hafa gengið
nokkuð vel. „Ég fékk mikið af mynd-
efninu frá safnadeild Sjónvarpsins
en svo eru þessar konur nú flestar
ennþá hér og þær eru bestu heim-
ildirnar sjálfar. Svo hef ég líka getað
nýtt mér Ljósmyndasafn Reykjavík-
ur og hin ýmsu einkasöfn.“
„Mér finnst eftir að hafa sett allt
þetta efni saman að þeim hafi vissu-
lega tekist að hnika kerfinu, en um
leið hafði kerfið auðvitað áhrif á þær.
Þetta er saga sem er full af ákveðn-
um mótsögnum, en það gerist vissu-
lega eitthvað, þeim tókst ætlunar-
verk sitt. Þær afhjúpa í raun kerfið
en kannski ekki alveg með sama
hætti og þær ætluðu sér í fyrstu. Ég
held að þetta framtak hafi átt stóran
þátt í því hvernig við hugsum um
stjórnmál og lýðræði í dag. Þessar
konur áttu þátt í því að breyta hug-
myndum okkar um vald og vinnu-
brögð í stjórnmálum og mér finnst
mikilvægt að passa upp á heimild-
irnar um það, þannig að saga mann-
réttinda og þar með kvennahreyf-
ingarinnar hverfi ekki.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Fegurðardrottningar úr Kvennalistanum fyrir utan
borgarstjórnarskrifstofur Reykjavíkur árið 1985
Árið 1985 varð Hólmfríður Karlsdóttir alheimsfegurðardrottning. Davíð Oddsson var
himinlifandi með sigurinn og tilkynnti það í borgarstjórn daginn eftir að ekki væri
nú amalegt að sitja borgarstjórnarfundi ef allar konur litu út eins og Hófí. Kvenna-
listakonur mættu uppáklæddar eins og fegurðardrottningar á næsta fund til að varpa
ljósi á ummæli borgarstjóra.
Halla Kristín Einars-
dóttir, kvikmynda-
gerðarmaður og
kennari í hagnýtri
menningarmiðlun
við HÍ. Halla Kristín
frumsýnir heim-
ildamyndina „Hvað er
svona merkilegt við
það“ á Skjaldborg.
Myndin rekur sögu
Kvennalistans og
annarra kvenfrelsis-
hræringa á Íslandi.
DUBLIN flug f rá
9.999 kr.
LYON flug f rá
14.999 kr.
RÓM flug f rá
16.999 kr.
AMSTERDAM flug f rá
12.999 kr.
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
Gerðu verðsamanburð,
það borgar s ig!
TENERIFE flug f rá
19.999 kr.
jún í 2015
jú l í - september 2015
jún í og september 2015
jún í - jú l í 2015
maí - jún í 2015
*999 kr. bókunargjald leggst ofan á hverja bókun og töskugjald er ekki innifalið
nema annað sé tekið fram.
*
*
*
*
*
WOW,
VERTU
MEMM!
kvennabarátta 31 Helgin 15.-17. maí 2015
Bertolli viðbit er framleitt úr hágæða ólífuolíu.
Það er alltaf mjúkt og auðvelt að smyrja.
Í Bertolli er mjúk fita og fitusýrur sem taldar eru
heppilegri fyrir hjarta- og æðakerfi en hörð fita.
BERTOLLI
Af matarborði Miðjarðarhafsins
BERTOLLI
Af matarborði Miðjarðarhafsins