Fréttatíminn - 15.05.2015, Qupperneq 56
V ídeó- & tónlistargjörning-urinn Doríon eftir Doddu Maggý er sérstaklega
saminn fyrir Kópavogskirkju í til-
efni sýningarinnar Birting sem
sett verður upp í Gerðarsafni á
Listahátíð 2015. Tónverkið er flutt af
Kvennakórnum Kötlu undir stjórn
Hildigunnar Einarsdóttur og Lilju
Daggar Gunnarsdóttur. Uppbygg-
ing tónverksins tekur mið af formi
og litum í steindum gluggum Gerð-
ar Helgadóttur og segir listamað-
urinn, Dodda Maggý, mikið litaspil
í gluggum kirkjunnar.
„Ég ákvað að semja lag fyrir kór-
inn og síðan kom sú hugmynd upp
að tengja lagið þessum gjörning,“
segir Dodda Maggý. „Gluggarnir
í Kópavogskirkju, eftir hana Gerði,
eru mjög fallegir og ekki margir
sem hafa séð áhrifin frá þeim þeg-
ar ljósin í kirkjunni eru slökkt, því
skiljanlega eru þau yfirleitt kveikt
þegar einhver er í kirkjunni. Tón-
listin, vídeóið og gluggarnir munu
því vinna saman,“ segir Dodda.
Raddsvið manneskjunnar tekur
á sig sjónrænt form í vídeóverki
Doddu Maggýjar þar sem litapal-
letta tónskalans leggur undir sig
rýmið í samtali við gluggainnsetn-
ingu Gerðar í kirkjunni.
„Mér þótti athugavert að hugsa
raddir manneskju út frá litaspektr-
úmi og samdi það með það í huga,“
segir hún. „Það er mjög mikilvægt
að fólk viti að það þarf ekki að sitja
í kirkjunni allan tímann sem gjörn-
ingurinn fer fram. Þetta byrjar á í
kvöld, föstudagskvöld klukkan 21
og svo aftur á morgun, laugardag,
klukkan 16 og verkið stendur í 40
mínútur. Gestirnir ráða því bara
sjálfir hvað þeirra upplifun er löng,
svo það má koma inn á einhverj-
um tímapunkti og kíkja við,“ segir
Dodda Maggý.
Á laugardaginn er svo hægt að
sækja ýmsa menningarviðburði í
menningarhúsum bæjarins og all-
ar upplýsingar um daginn má finna
á vef Kópavogsbæjar. www.kopa-
vogur.is
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
GjörninGur MenninGardaGur í KópaVoGi
Samspil tóna og lita
í Kópavogskirkju
Menningarhús Kópavogs
við Hamraborg, Safnaðar-
heimili Kópavogskirkju og
gallerí listamanna víða um
bæ munu iða af lífi og menn-
ingu á morgun, laugardaginn
16. maí, en þá verður haldinn
Menningardagur í Kópavogi. Í
Kópavogskirkju verður Dodda
Maggý og Kvennakórinn
Katla með vídeó- og tón-
listargjörning klukkan 16 en
hann er gerður í tengslum við
sýninguna Birting í Gerðar-
safni. Dodda Maggý segir
gjörninginn samspil milli tóna
og lita.
Úr verki Doddu Maggýjar, Doríon,
sem sýnt verður í Kópavogskirkju á
laugardag.
Nilfisk
Gæði og góð þjónusta í 80 ár!
24.300 kr
24.300 kr
35.200 kr
46.900 kr
118.800 kr
82.600 kr
73.800 kr
29.900 kr
19.900 kr
56 menning Helgin 15.-17. maí 2015