Iðnaðarmál - 01.05.1960, Page 2

Iðnaðarmál - 01.05.1960, Page 2
NYTSAMAR NYIUNGAR „Prjónstungusjá" Ýmis konar málmsmíði, sem graf- in er í jörð eða liggur undir vatni, hættir til að ryðga, og sú vörn, sem hægt er að veita gegn ryðmyndun með ýmiss konar einangrunarefni er því mjög mikilvæg við hvers konar iðnað. Því miður má það teljast óger- legt að mynda fullkomna varnarhúð, og hinar örsmáu holur — „prjón- stungur" eða „helgidagar“ — sem útundan verða, eru einmitt þeir stað- ir, þar sem ryð myndast með skjótum hætti. Þessar „prjónstungur" eru yfir- leitt smærri en svo, að þær verði sjár“ er nú orðin algeng, einkum við pípulagnir. „Prjónstungusjáin11 er áhald, sem gefur rafmagnsvísbendingu um allar smáholur, hversu örsmáar sem þær eru. Málmsmíðin, sem rannsaka skal, hefur verið húðuð með varnarefni, sem hefur þó örsmá loftgöt á einstaka stað. Eldri gerðir af leitaráhöldum eru með innbyggðum neistaútbúnaði, sem tengdur er við yfirborðið, sem rannsaka skal, og er farið yfir það með rafkanna (exploring electrode). Sérstakur stilliútbúnaður á straum- rásinni gerir það að verkum, að neist- inn í áhaldinu færist yfir í „prjón- stunguna“, og bendir þannig á, hvar hún er. í hinni nýju prjónstungusjá er eng- inn neisti notaður, en vísbending er gefin með straumtruflun þeirri, er verður, þegar rafkanninn fer yfir holu. Það er jafnan mjög æskilegt, að starfstæki, sem notuð eru á vinnu- stöðum úti á víðavangi, eins og prjón- stungusjáin, séu handhæg í flutningi, sterkbyggð og traust. Allt hefur þetta verið haft í huga við gerð þessa nýja greindar með berum augum, og notk- un hinnar svonefndu „prj ónstungu- tækis. Það er með „transistors“-út- búnaði, og hefur það mikinn sparnað í för með sér, bæði á þunga og fvrir- ferð. Kassinn er gerður úr olíubornu trefjagleri, svo að tækið er létt og auð- velt meðferðar. Innbyggður orku- gjafinn er myndaður af sérstökum, léttum, óspillanlegum rafgeymum, sem bæði póstþjónustan og flugfélög- in taka til flutnings í fullhlöðnu ástandi. Hámarksstraumur tækisins er tak- markaður við 1 mA svo að af því stafar engin lífshætta. Spennan er í 2 þús. volta þrepum frá sex þús. upp í tuttugu þús. Tölur þessar eru „nomi- nal“ og geta verið örlítið mismunandi eftir ástandi rafgeymanna og straum- lekanum, en innbyggður mælir sýnir raunverulega spennu. Merki um „prj ónstungur“ eru gef- in með tvennu móti. Innbyggður há- talari gefur hljóðmerki, sem greini- leg eru við þann hávaða, sem venju- lega má reikna með á vinnustöðum utan dyra. Stöngin, sem rafkanninn er festur við, getur einnig verið útbú- inn með litlu neonljósi, sem gefur vís- bendingu um „prjónstunguna“. Bæði þessi merki má nota, við hvaða straum sem óskað er, yfir 100 uA. Ymis fylgiútbúnaður er fáanlegur með tækjunum, svo sem flutningsút- búnaður og jarðleiðsluútbúnaður. Rafkannarnir eru fáanlegir af ýmsurn stærðum, og aukaöryggi fylgir hverju tæki. Þyngd tækisins er 7.6 kg, hæð 25 cm, lengd 29 cm og breidd 13 cm. Framleiðandi er Cathodic Corro- sion Control, Ltd., CJB House, East- bourne Terrace, Paddington, London W. 2. Ofangreinda lýsingu á tækinu hef- ur framleiðandi látið í té. E.T.D. nr. 3279. Framh. á 86. bls. IÐNAÐARMÁL v.

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.