Iðnaðarmál - 01.05.1960, Síða 8

Iðnaðarmál - 01.05.1960, Síða 8
Plasthúðun smámálmhluta - þurr aðferð Steyptur málmhlutur þurrhúðaður með með cellulosic plasti. Ýmsar aðferðir má nota til að húða málmhluti með plasti. T. d. má úða- sprauta plastupplausn á hlutinn, eins má dýfa honum ofan í plastupplausn, þá má blása þurru plastinu með eldi á málmhlutinn. Heppilegasta aðferðin til að plasthúða litla, óreglulega lag- aða málmhluti virðist vera að dýfa áður hituðum hlutnum ofan í þurrt plastduft, sem haldið er lausu með smáloftstraumi. Þessi aðferð nefnist „fluidized-bed process“. Tækin, sem notuð eru við þessa að- ferð, eru tiltölulega einföld og ódýr. Er það tankur, sivalur eða ferhyrnd- ur, með hliðum, sem hallast um 5° út. Við botn tanksins er fíngert vírnet, og er lofti blásið undir það, þannig að það lyfti plastdufti, sem liggur ofan á vírnetinu um 15% miðað við dýpt plastlagsins. Til þessa þarf tæp- lega Yio kg/cm2 yfirþrýsting á loft- inu og um 300 lítra af lofti á mínútu á fermetra af yfirborði plastlagsins. Eins og fyrr segir, eru hlutirnir húðaðir með plastinu með því að hita málmhlutinn áður (150°—200°C). Hlutnum er síðan dýft ofan í plast- duftið, sem haldið er lausu með loft- straumi. Þar er honum haldið í nokkr- ar sekúndur og hann hristur lauslega til og frá um leið til að tryggja jafna húðun. Laust duft á hlutnum er blásið af honum og hann settur inn í ofn, þar sem plastið bráðnar og harðnar í jafna húð yfir hlutinn. Þykkt plast- húðarinnar (venjulega um % mm) fer eftir hita hlutarins, áður en hon- um er dýft í plastið, og eins tímanum, sem honum er haldið niðri í plastduft- inu. Eins má fá auka-plasthúð með Vírgrindur þurrhúðaðar með vinyl plasti. því að endurtaka aðferðina einu sinni eða oftar. Tæki hafa verið smíðuð til að plasthúða pípur og stáltunnur með þessari aðferð, og verður plasthúðin allt að 3—6 mm þykk. Til að ná sem beztum árangri við þessa þurru plasthúðun þarf að nota plastduft, sem sérstaklega hefur verið framleitt fyrir slík not. Upphaflega var aðallega notað polyethylene við þessar plasthúðanir, en ýmis önnur plastefni hafa einnig reynzt ágætlega, eins og meðfylgjandi tafla sýnir: Chlorinated Plastefni Ejnaþol Cellulosic Vinyl Epoxy Nylon Poylethylene ^monnatea Polyether Veðrun .... Á MG S S S s Saltúðun Á Á Á G Á Á Vatn Upplausnarefni Á Á . MG S Á Á Alkohól S Á Á G Á Á Benzín G Á Á Á MG MG Olíur G G A Á MG Á Sölt MG Á Á MG Á Á Aramoníak L Á L G Á Á Lútur Sýrur (þynntar) S Á MG G MG Á Lífrænar L S S L MG Á Ólífrænar G Eðlis- og styrktareinkenni Á Á S Á A Slitþol MG G MG Á S MG Teygjanleiki MG Á L G Á S Höggþol Á Á G Á S G Hitaþol (CC) 80 90 180 80 70 120 Rafeinangrun G G Á G Á Á Hlutfallslegur ejniskostn. 1.0 1.0 1.4 2.0 1.1 4.4 Húðunarhitastig 260 190 120 360 150 290 "C (málmhlutar) . .. .. —400 —290 —200 —430 —430 —430 Á = ágætt MG = mjög gott Heimild: „Hot Organic Coatings* G ■ gott S = sæmilegt ‘ (Bókasafn IMSÍ). L = lélegt L.L. 80 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.