Iðnaðarmál - 01.05.1960, Qupperneq 10
Á neðri hæð er vélasalur, birgða-
geymsla fyrir pakkaðar vörur og
skrifstofur. í vélasal eru þrjár pökk-
unarvélasamstæður. Ein vélin er fyrir
sjálfrennandi vörur. í henni er pakk-
að hrísgrjónum, sagógrjónum, hrís-
og haframjöli, baunum og strásykri.
Onnur vél er fyrir pökkun á hveiti og
kartöflumjöli og hin þriðja fyrir
ýmiss konar smávörur, eins og t. d.
þurrkað grænmeti, bláber, kókosmjöl
o. fl.
ÚR PÖKK
Við pökkun vinna nú 5—7 stúlkur
og 2 karlmenn, en miðað við fulla
nýtingu á afköstum vélanna geta unn-
ið við þær 12—-14 stúlkur og 4 karl-
menn. Við núverandi aðstæður eru
tök á að pakka allt að 3000 tonnum
af kornvöru á ári, og eru algengustu
pakkastærðir sem hér segir:
Sagógrjón lbs. gr. 400
Hrísmjöl 400
Kartöflumjöl . . . . 1000
Baunir . . . . 1 453
Hveiti .... 5 2265
Strásykur .... 5 2265
Hrísgrjón .... 1 453
Haframjöl 750
Vélaútbúnaður er þannig, að gert
er ráð fyrir, að meiri hluti þeirrar
vöru, sem pökkuð er, sé hveiti, kart-
öflumjöl og strásykur.
VerSmætasköpun
Viðskiptalegar aðstæður hér á
landi hafa haft þau áhrif, að Katla
hf. hefur sjálf orðið að koma sér upp
sínu eigin dreifingarkerfi til verzlana.
Fyrirtækið flytur ýmist inn vörurn-
ar sjálft eða það kaupir þær af öðrum
innflytjendum.
K&tLu,
Hveifi
82