Iðnaðarmál - 01.05.1960, Qupperneq 16

Iðnaðarmál - 01.05.1960, Qupperneq 16
Myndin sýnir þrjár hverfigeymslu- einingar í notkun. Starfsfólkið tekur hlutina úr vélinni í nákvæmlega réttri röð og alltaf úr nákvæmlega sömu stöðu. Með fótstýrðum loftloka getur stjórnandinn hleypt þrýstilofti inn á lofthólf, sem stjórnar einföldum vél- búnaði, er snýr botngrindinni með hinum 19 tvöföldu hylkjum um 19° í hvert skipti. Framleiðandi er Work Study Equip- ments, 4 Montalt Road, Woodford Green, Essex, Englandi, og hefur það fyrirtæki látið meðfylgjandi mynd í té. Ur „Process Control and Automation'*, janúar 1960. — E.T.D., no. 3829. Einfalt áhald til að mæla þröngar holur Smíðað hefur verið einfalt áhald til að mæla þvermál á þröngum hol- um, til notkunar á spýtisop olíubrenn- ara og annan svipaðan útbúnað. Það er nú komið á markaðinn. S Áhaldið er þannig gert, að odd- hvöss mælinál er látin inn í holuna, og má lesa dýptina á sérstökum talna- stiga, sem er kvarðaður á þann hátt, að hann sýnir þvermál holunnar í þúsundustu hlutum úr þumlungi. Mælinálin og setan eru úr hertu stáli til að tryggja nákvæmni og styrkleika áhaldsins. Hægt er að fá áhaldasamstæðu með átta mælum, sem ná yfir þvermál frá 0.01 til 0.05 þuml. og eru einnig út- búnir með mælikvarða metrakerfis- ins. Framleiðandi er Coventry Gauge and Tool Co. Ltd. Coventry, Eng- landi. DSIR Technical Digest no. 1187, júlí 1960. Samkræktar þakplötur úr málmi Alurainplötur með sérstakri kræki- tengingu, sem tryggir veðurþétt sam- skeyti. Til þess að flýta fyrir lagningu alu- mínþaka hafa verið framleiddar alu- mínþakplötur, sem tengdar eru saman með verksmiðjusmíðuðum veltisam- skeytum, og hafa þau reynzt jafnör- ugg og hin venjulegu handgerðu sam- skeyti. Eins og teikningin sýnir, læsist hver plata við þá næstu á sjálfvirkan hátt. Staðurinn, þar sem trérenningur kemur venjulega, verður nú falin renna, sem myndar enn meiri vörn gegn veðri og tryggir auk þess fest- ingu fyrir festiklemmurnar, sem eru huldar sjónum. Plöturnar eru gerðar fyrir flöt og hallandi þök, en einnig má nota þær í klæðningu á lóðrétta veggi. Þakið má allt vera styrkt með borðum, en einn- ig má leggja plöturnar á bita, sem lagðir eru með nokkurra feta milli- bili, og mynda þær þá sterkar, kassa- myndaðar deildir, sem verka eins og styrktareiningar. Plöturnar eru fáanlegar í tveimur stöðluðum stærðum, sem báðar þekja 12 þuml. breidd og allt að 40 fet (12.19 m) á lengd. Þykktin er 0.91 og 0.71 mm. Myndin sýnir sumarhús, og er þak- ið lagt með þessum alumínplötum. Framleitt (með vöruheitinu „Lock- roll“) hjá The British Aluminium Company, Ltd. Norfolk House, St. James Square, London. Ur „Engineering", desember 1959. — E.T.D., no. 3790. 88 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.