Iðnaðarmál - 01.04.1961, Side 6

Iðnaðarmál - 01.04.1961, Side 6
VINNURANNSOKNIR og vandamál við framkvæmd þeirra Ejtir ARTHUR EIDE, ráðgefandi verkfrœðing Þróttmikla framleiðslu leitast menn við að skapa með því að efla að áhrif- um eftirfarandi framleiðsluþætti, einn eða fleiri: Skipulagningu, stjórn- un, vinnuskilyrði, starfsmannaskil- yrði, þjálfun, tæknibúnað, áætlanir, eftirlit, vinnurannsóknir og launa- kerfi. Við hina fimm síðast nefndu þætti er timarannsóknum beitt í einni eða annarri mynd. Eg vil gjarnan leggja áherzlu á, að með framleiðslu á ég við næstum sér- hverja starfsemi, svo sem flutninga á landi og sjó, starfsemi á skrifstofum og í sölubúðum, áætlana- og stofnun- arstörf og húsabyggingar. Vinnu- rannsóknir og tímarannsóknir eru notaðar á öllum þessum sviðurn. Hér getur einnig verið viðeigandi að skilgreina, hvað er vinnugreining og hvað er tímarannsókn. Vinnugreining er kerfisbundin skráning, sundurliðun og gagnrýnið mat á rikjandi vinnuaðferðum og framkomnum tillögum um breyttar aðferðir. Hún þróar og ryður til rúms einfaldari og árangursríkari aðferð- um. Tímarannsókn er tækni til að á- kvarða, með eins mikilli nákvæmni og unnt er og út frá takmörkuðum fjölda athafna, þann tíma, sem það óhjá- kvæmilega tekur að framkvæma á- kveðna athöfn í nánar skilgreindum staðalafköstum. Gagnsemi þeirra upplýsinga, sem tímarannsóknir veita okkur, er marg- vísleg. Allir vitum við, að sá heildartími, sem í það fer að fullgera framleiðslu- vöru, innifelur margs konar tímatap, sem ýmist stafar af vörunni sjálfri, stjórn starfseminnar eða starfsliði. Menn leitast við að draga úr þessu tímatapi eins og unnt er, og hagnýta þann tíma, sem þannig vinnst, til virkra starfa. Það er hægt að komast langt með heilbrigðri skynsemi, og oft sjá menn árangurinn af viðleitni sinni koma fram í auknum fram- leiðsluafköstum hverrar vinnustund- ar. En þótt menn hafi náð góðum á- rangri, liggur það beint við, að menn spyrji sjálfa sig, hvort ekki sé unnt að vinna meira á -— hvort ekki sé enn of mikið af óvirkum tíma, sem bæði sé kleift og skylt að stytta. En svo munu menn komast að raun um, að ekki er unnt, þegar komið er að ákveðnu marki, að fá svar við þeirri spurningu án tímarannskna eða án þess að nota mælikvarðann TIMA á kerfisbundinn og skynsaman hátt. Með hagnýtingu tímarannsókna fáum við TOLUR, sem gefa til kynna, hve gott eða slæmt á- standið er í rekstrinum, og við sjáum, hvernig tölur þessar skiptast niður á hina einstöku þætti, sem heildin er samsett af. Við getum t. d. fengið vitn- eskju um, hve langur tími fer í bið eftir hráefni eða flutningum, viðræðu- fundi með verkstjórum eða vinnufé- lögum, viðhald framleiðslutækjanna o. s. frv. Með því að fá tölurnar í hendur á þennan hátt ræður stjórn fyrirtækisins yfir þeim upplýsingum, sem nauðsynlegar eru til að vita, hvar hún skuli einbeita kröftum sínum til eflingar framleiðslunni. Hér skal þess getið, að við slíkar tímatapsrannsókn- ir er leitarljósinu fyrst og fremst beint að stjórn fyrirtækisins, og oft er furðulegt að sjá viðbrögðin við á- rangri tímatapsrannsóknanna í fyrir- tækjum, þar sem slík rannsókn er framkvæmd í fyrsta sinni. Menn „höfðu ekki minnsta grun um, að á- standið væri svona slæmt“, eða „þetta var óheppileg tilviljun“. Fyrir þann, sem hefur jákvæð viðhorf, eru tölur þær, sem tímatapsrannsóknirnar gefa, bæði tæki og áætlun í þeirri starfsemi, sem miðar að fullkominni nýtingu framleiðslutækja og vinnustunda. Tímarannsóknir eru annars mikil- vægar við sundurgreiningu hinna ein- stöku aðferða eða við samanburð að- ferða. Sú aðferð, sem tekur skemmst- an tíma, er ódýrust, ef aðstæður eru svipaðar að öðru leyti. Þegar margir 60 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.