Iðnaðarmál - 01.04.1961, Page 10
2. mynd: Alúmín-frystikista, sem getur flutt
frosin matvœli landa á milli án nokkurs
kœliútbúnaSar.
reiddu matvæla haldist óbreytt, þar til
þau eru þídd og hituð til neyzlu.
I stuttu máli sagt fer þetta fram á
þann hátt, aS pakkar, opnir eSa lok-
aSir, meS hinum heitu, tilreiddu mat-
vælum eru settir á vírbakka, sem fest-
ir eru á keSju, er gengur í gegnum
tækiS. A leiS sinni gegnum tækiS fara
pakkarnir fyrst undir væga úSa-
sprautu af köfnunarefnisvökva, sem
frystir yfirborS matvælanna. Bakk-
arnir halda áfram meS pakkana í
gegnum köfnunarefnisvökva, sem sýS-
ur viS tæpar -f- 200° C. í þessari ídýf-
ingu fullfrystast matvælin og koma
þannig út úr tækinu tilbúin í frysti-
geymslu eSa til útsendingar. Allt tek-
ur þetta aSeins fáar mínútur. Eins og
í frystikistunum, sem lýst var hér aS
framan, en köfnunarefniS, sem gufar
upp úr tækinu, leitt í loftvökvatæki og
kælt og því þjappaS saman í vökva,
sem er aftur dælt inn í frystitækiS.
Tækin, sem framleiSa eSa endurnýja
köfnunarefnisvökvann, eru mjög svip-
uS þeim tækjum, sem framleiSa súr-
efnisvökva úr lofti, enda framleiSa
sömu aSilar (t. d. Linde, Air Reduc-
tion o. fl.) báSar þessar tegundir
tækja.
Ekki liggja ennþá fyrir fullnægj-
andi kostnaSartölur fyrir þetta nýja
skyndifrystikerfi eSa fyrir flutninga-
kerfiS, en mjög er líklegt, aS þessi
tækni eigi eftir aS rySja sér til rúms
viS frystingu tilreiddra matvæla og
viS flutning á frystum matvælum
langar vegalengdir. Væri ekki óhugs-
andi, aS hér á landi mætti hagnýta
þessa tækni viS útflutning á frystum
fiski, t. d. meS því aS pakka frystum,
pökkuSum fiski í alúmínkistur rétt
fyrir útskipun og kæla hann þar niSur
í -f- 150----f- 200° C, og flytja síS-
an kisturnar sem vanalegan farm til
næstum því hvaSa staSar sem er á
hnettinum og jafnvel til þeirra staSa,
þar sem frystimóttökuskilyrSum er
mjög ábótavant.
Eins mætti hraSfrysta ferskan,
pakkaSan fisk í slíkum kistum og
herSa síSan á frostinu í þeim rétt fyr-
ir útskipun. Kisturnar kæmu þar í
staSinn fyrir frystigeymslur frysti-
húsanna, og mætti þá segja, aS hinar
nýju „geymslur“ yrSu jafnframt not-
aSar til flutnings á pökkuSum freS-
fiski. MeS því móti mætti losna viS
umstöflun á freSfiski úr frystihúsi í
frystiskip, úr skipi í frystigeymslu í
erlendri höfn, úr henni í frystivagna
og úr þeim í aSrar frystigeymslur inni
í landi. Þar sem alúmínkisturnar eru
bæSi léttar og sterkar, mætti eflaust
nota þær undir ýmsan varning til
baka til aS draga úr flutningskostnaSi
á tómum kistum.
Þá kæmi líka hér til greina aS nota
fyrrgreind köfnunarefnisfrystitæki og
frystikistur viS útflutningsframleiSslu
á frosnum, tilreiddum fiskafurSum,
en slíkar matvörur eiga eflaust eftir
aS rySja sér mjög til rúms á erlend-
um markaSi og vera harSur keppi-
nautur niSursuSuiSnaSarins.
Þeir, sem áhuga hafa á aS kynna
sér þessa tækni, geta fengiS nánari
upplýsingar hjá eftirtöldum aSilum:
1. Willard L. Morrison, Liqufreeze
Co., Inc., 26 Broadway, New York
4, N. Y. (Einkaleyfishafi á aSferS-
inni).
2. Aluminum Co. of America, New
Kensington, Pa. og Reynolds Met-
als Co., 2000 South Ninth St.,
Louisville, Kentucky (hafa teikn-
aS og smíSaS alúmínflutningakist-
urnar).
3. Idako Maryland Mines Corp.,
Glendale, California, (hafa smíS-
aS köfnunarefnis-hraSfrystitæk-
iS).
L. L.
MikiS er nú rætt og ritaS um nauS-
syn þess aS koma á sem víSast í at-
vinnulífinu launagreiSsIum, sem miS-
ast aS meira eSa minna leyti viS af-
köst einstakra starfsmanna eSa vinnu-
hópa.
Vegna almenns áhuga hér á þessu
mikilvæga máli vill blaSiS benda les-
endum sínum á nýja bók, sem gefin
er út af AlþjóSavinnumálastofnuninni
í Genf (ILO) og fjallar um, hvernig
koma megi á ákvæSisvinnufyrirkomu-
lagi í ýmsum iSngreinum, um kosti
þessa greiSslukerfis og galla, hvers
ber aS gæta viS notkun þess o. s. frv.
Bókin er skrifuS á ensku og nefnist
„Payment by Results“, er 204 bls. og
prentuS 1960 (5. útgáfa). Henni er
skipt í 8 kafla: 1. Helztu aSferSir viS
uppbótarlaunagreiSslur; 2. hvernig
þeim er komiS á; 3. hvernig þessi
kerfi eru notuS í mismunandi iSn-
greinum; 4. Nokkur dæmi um notkun
þessara launakerfa í ýmsum iSngrein-
um; 5. áhrif þeirra á launahækk-
anir, afköst, heilsufar og starfs-
ánægju; 6. nokkrir kostir og gallar
kerfanna; 7. ýmsar varúSarráSstaf-
anir viS notkun kerfanna og 8. nokk-
ur undirstöSuatriSi varSandi ákvæS-
isvinnufyrirkomulag.
Þeim, sem hug hafa á aS koma á
slíkum launagreiSslum í fyrirtækjum
sínum eSa vilja kynna sér vel þessa
hluti, er eindregiS ráSlagt aS afla sér
þessarar bókar, enda kostar hún ekki
nema um 50 krónur eintakiS, og er
hægt aS panta hana frá International
Labour Office, Geneva, Switzerland.
Bókin er einnig til í Tæknibóka-
safni IMSÍ ásamt ýmsum öSrum bók-
um um þetta efni og önnur skyld.
L. L.
64
IÐNAÐARMÁL