Iðnaðarmál - 01.04.1961, Side 14
Nýjung i bifreiðaþjónustu
Um miðjan júlímánuð s.l. hóf nýtt
fyrirtæki, Bílaskoðun hf., göngu sína
í Reykjavík. Starfsemi þessi er nýjung
á sviði bifreiðaþjónustu að því leyti,
að hún er einskorðuð við að leita
uppi og mæla með aðstoð nýjustu
tækni alla þá galla á bifreiðum, sem
máli skipta við almenna notkun
þeirra og umferðaröryggi. Að vísu
hafa einstakir þættir þessarar starf-
semi verið framkvæmdir á mörgum
bifreiðaverkstæðum til þessa. Hið at-
hyglisverða við hið nýja fyrirtæki
liggur fyrst og fremst í kostunum, sem
fylgja sérhæfingu á skýrt afmörkuðu
verksviði innan atvinnugreinarinnar.
Tækifæri gefst til að gera verkefninu
fyllri skil. Sérhæfingin eykur fram-
leiðni verkstæðisins, starfsmennirnir
ná meiri þjálfun og fyrirtækið getur
komið við meiri vélakosti heldur en
Með hjálp þessa tœkis eru Ijósin stillt.
Vinnusalur.
almenn viðgerðarverkstæði, vegna
þess að sérhæfingin tryggir betri nýt-
ingu fjármunanna. Árangurinn verð-
ur betri þjónusta við bifreiðaeigend-
ur.
Fréttamaður IÐNAÐARMÁLA
heimsótti Bílaskoðun hf. að Skúla-
götu 32 á fyrsta starfsdegi hennar og
hitti að máli Gylfa Hinriksson vél-
fræðing, en hann er framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins.
Við gengum með Gylfa um hin
glæsilegu húsakynni og sjá mátti, að
starfsemin var í fullum gangi. Dular-
full mælitæki voru tengd við bílana
og starfsmenn snéru tökkum og
horfðu íbyggnir á vísa og skífur.
Við inntum Gylfa eftir þeim atrið-
um, sem megináherzla er lögð á við
skoðun bifreiðanna og kom í ljós,
Pálmi Friðriksson verkstjóri að framhjóla-
mœlingu.
68
IÐNAÐARMAL