Iðnaðarmál - 01.04.1961, Síða 15

Iðnaðarmál - 01.04.1961, Síða 15
Gylfi kvað það æðsta boðorð sitt að bjóða viðskiptavinunum fullkomn- ustu þj ónustu, sem unnt væri að veita í þessum efnum. í því skyni hefði hann ekki aðeins vandað svo til tækni- búnaðar, að einungis væru notuð beztu mælitæki, sem völ er á og svo mundi verða áfram, heldur legði hann ekki síður áherzlu á tæknimenntun og þjálfun starfsmannanna, en þeir eru þrír bifvélavirkjar. Einn þeirra hefði þegar verið með honum í kynnisför í Svíþjóð og ætlunin væri að viðhalda sambandinu við skoðunarstöðvar þar með frekari náms- og kynnisferðum. Sem stendur starfaði einnig hjá hon- um Svíi frá Konunglega sænska bif- reiðaklúbbnum. — Hverjir eru svo þeir viðskipta- vinir, sem þú væntir helzt, spyrjum við Gylfa að lokum. — Til að byrja með verða það bif- Jósúa Magnússon framkvœmir skoðun á undirvagni. þegar við liturn á skoöunarskýrsluna, sem fylgir hverjum bíl, að þar eru tal- in upp 73 atriði og fær hvert þeirra einkunn eftir ástandi. Hreyfillinn er rannsakaður nákvæmlega og hjálpar- tæki hans, rafkerfið, gírkassi og tengsl hans, hemlaútbúnaður allur, drif, stýrisútbúnaður, fjaðrir, högg- deyfar, ljósabúnaður, lega hjólanna með tilliti til slits á hjólbörðum og mæling á grind vagnsins er fram- kvæmd. Þá er einnig ryÖmyndun í yf- irbyggingu og undirvagni athuguð. Þrjá bíla er unnt að taka til skoð- unar í einu og tekur allsherjarathug- un á hverjum um þrjár stundir. Hið eina, sem framkvæmt er umfram hina hlutlausu skoðun, eru stillingar á ó- skemmdum öryggisbúnaði. reiðaeigendur, sem gera sér ljóst, að eitthvað er að bílnum og vilja fá vissu sína áður en þeir setja hann í viðgerð og svo þeir varkáru bifreiðaeigendur, sem vilja fylgjast með almennu á- standi farskjótans áður en þeir leggja af stað í langferð. Reglubundnar bíla- skoðanir auka endingu, lækka rekstr- arkostnað bifreiðanna og bæta einnig umferðaöryggi að mun. Við vonum, að í framtíðinni myndist þær við- skiptavenjur, að bílar gangi ekki kaupum og sölum án þess, að fyrir liggi hlutlaust gæðamat. Að því gætu kaupendur stuðlað með því að setja það sem skilyrði fyrir kaupum, og oft á tíðum firrt sig á þann hátt þungum fjárhagslegum bagga. Þ. E. Starfsmenn stöðvarinnar, Þorsteinn Sigurðsson, Pálmi Friðriksson og Jósúa Magnússon, vinna að hreyfilskoðun ásamt Svíanum Roland Holm. f \ GERIZT ÁSKRIFENDUR AÐ IÐNAÐARMÁLUM ---------------) IÐNAÐARMÁL 69

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.