Iðnaðarmál - 01.04.1961, Síða 16

Iðnaðarmál - 01.04.1961, Síða 16
yliá auka sjálfvirkui í ísleuzkum iðuaði? Dagana 13.-—-27. maí s.l., dvaldist hér á landi hollenzkur verkfræðingur, Rijn de Groot, forstöðumaður nýrrar rannsóknarstofnunar á sviSi sjálf- virkni, sem rekin er á vegum Rann- sóknarráSs Hollands í Delft. Tilgang- urinn meS komu þessa sérfræSings var aS athuga, hvort unnt væri aS koma í kring aukinni hagnýtingu á ýmsum tiltölulega ódýrum hjálpar- tækjum, sem tekiS er aS nota í vax- andi mæli í minni iSnfyrirtækjum, bæSi í Evrópu og Ameríku, í því skyni aS gera vinnsluna sjálfvirkari en ella. ASdragandinn aS komu de Groot er í stórum dráttum sá, aS á tímabil- inu frá sept. 1958—jan. 1960 beitti FramleiSniráS Evrópu (EPA/OEEC) sér fyrir kynningu á ýmsum tegund- um slíkra tækja, t. d. loft-, vökva- þrýsti- og rafknúnum, auk ýmiss kon- ar rafeindaútbúnaSar og gæzlutækja o. fl. Bar EPA-áætlun þessi nafniS „Low Cost Automation“, og var hún fólgin í fyrirlestrahaldi og sýningum á tækjasafni í ýmsum OEEC-löndum. ISnaSarmálastofnun íslands gerSi ítrekaSar tilraunir til aS fá sérfræS- inga þá, sem störfuSu aS þessu máli á vegum EPA, til íslands ásamt tækja- safninu, en af óviSráSanlegum ástæS- um tókst þaS ekki. Áhugi á þessari starfsemi reyndist ákaflega mikill í OEEC-löndunum, og hafa þessi mál nú skipazt svo, aS á- kveSiS hefur veriS, aS Hollendingar taki tækin í sína vörzlu og þeim verSi komiS fyrir í sérstakri rannsóknar- stofnun, þar sem Hollendingar og væntanlega aSrar þjóSir geta notfært sér í kynningarskyni tækjasafniS og fræSslustarfsemi, sem rekin verSur í sambandi viS þaS. De Groot, for- stöSumaSur hinnar nýju stofnunar, var einmitt annar þeirra sérfræSinga, sem störfuSu á vegum EPA. ÞaS hefur um nokkurt skeiS veriS í athugun aS hefja leiSbeiningar- og kynningarstarfsemi á sviSi sjálfvirkni og stýritækni innan ISnaSardeildar Atvinnudeildar Háskólans, og hafa fulltrúar í nefnd, sem vinnur aS auknu samstarfi rannsóknarstarfsem- innar og iSnaSarins, tjáS sig fylgj- andi þeirri hugmynd. Var síSan á- kveðiS aS fá de Groot til aS koma hingaS til lands til athugunar á þess- um málum, og kom hann hingaS fyrir milligöngu ISnaSarmálastofnunar ís- lands meS stuSningi EPA. ASilar aSr- ir en ISnaSardeild og IMSÍ, sem stóSu aS þessari athugun og báru kostnaS af komu sérfæSingsins auk EPA, voru: Félag ísl. iSnrekenda, Fiskifélag íslands, RannsóknarráS ríkisins og Samband ísl. samvinnufélaga. Þegar þetta er skrifaS, hefur skýrsla, sem von er á frá de Groot, ekki borizt, en þar mun hann taka af- stöSu til þess, hvort líkur bendi til, aS unnt sé aS taka upp notkun áSur- nefndra hjálpartækja hér í svo ríkum mæli, aS æskilegt sé aS koma á fót sér- stakri leiSbeininga- og tilraunastarf- semi í sjálfvirknitækni fyrir ísl. iSn- aS. í því skyni aS kanna þessa hluti heimsótti sérfræSingurinn um tutt- ugu íslenzk fyrirtæki, m. a. á sviSi fiskvinnslu, bæSi í Reykjavík, Hafn- arfirSi og á Akureyri. MeS sérfræS- ingnum starfaSi ungur íslenzkur verk- fræSingur, Sveinn GuSmundsson, sem sérstaklega hefur kynna sér sjálf- virkni og stýritæknimál (sjá IÐNAÐ- ARMÁL 2,-—3. hefti 1961), og standa vonir til, aS hann muni sérstaklega helga sig þessum málum hér á landi í framtíSinni. Á fundi, sem haldinn var meS full- trúum þeirra aSila, sem stóSu aS komu de Groot hingaS, lét hann þaS álit í ljós, aS þaS bæri aS stefna aS því aS koma upp leiSbeininga- og til- raunastarfsemi á sviSi sjálfvirkni. Var víSa komiS viS á fundi þessum, en meSal annars, sem de Groot lagSi sér- staka áherzlu á, þegar hann var spurS- ur um álit á fyrirtækjum okkar og rekstri þeirra, var aukin hagnýting tæknimenntaSra manna í atvinnulífi okkar á öllum sviSum. Taldi hann sig víSa sjá merki þess, aS skortur tækni- fræSinga stæSi fyrirtækjum fyrir þrifum, og þau byggju ekki viS næga þekkingu í tæknilegum og rekstrarleg- um efnum. Hafi einhverjir lesendur áhuga á aS kynna sér tækjasafn þaS, sem áS- ur er minnzt á, er þeim velkomiS aS heimsækja stofnun de Groot í Delft. SíSar mun nánar skýrt frá niSurstöS- um athugunar hans hér á landi. S. B. 70 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.