Iðnaðarmál - 01.04.1961, Qupperneq 20
hitastillum, tryggja nákvæma dýpt
plastvinnslunnar og auðvelda stúf-
suðu og aðra meðhöndlun, svo sem
gárun og köntun.
3. Skartengiáhald
Rafhitað tæki til að skartengja létt-
ar plötur eða þiljur (1.5 mm hámark)
með vinnsluvídd allt að 1000 mm.
Einnig má tengja með því pípur með
allt að 100 mm þvermáli. Plötunum
er haldið í vinnslustöðu með svig-
skorðum.
Framleiðandi er Hans Biel, Neuffen/
Wiirtt., Þýzkalandi. — Ur. „Rationelles
Handwerk" no. 10, 1959. — E.T.D. no.
3535.
Færanlegt flutningaband
Á mörgum verkstæðum og í litlum
verksmiðjum, þar sem rúm er af
skornum skammti, tekur fast flutn-
ingaband oft dýrmætt pláss, og er
ekki alltaf staðsett þar, sem það getur
komið að sem beztum notum.
Þetta færanlega flutningaband, sem
knúið er eins-fasa hreyfli með gang-
skiptingu, er svo létt og samþjappað,
að auðvelt er að flytja það af einum
stað á annan. Það ætti því að geta
komið að margvíslegum notum við
sérstæð verkefni eða verk, sem taka
aðeins stuttan tíma.
Tækið er 31/? fet á lengd og 6 þuml.
á breidd, með plastklæddu bómullar-
74
belti, og á fætinum er stilling, bæði
fyrir hæð og halla.
Framleiðandi er H.&B. Precision
Engineers, Ltd., Colonial Way, Sta-
tion Estate, Watford, Herts, Englandi.
Úr „Production Equipment Digest“, des.
1960. — DSIR Technical Digest no. 1303.
Hjálpartæki við pökkun
Einfaldur, handstýrður útbúnaður
til að vefja og loka sellofanumbúð-
um.
Tæki þetta er ætlað til notkunar fyr-
ir framleiðendur og pökkunarstöðvar,
þar sem starfsemin er ekki svo um-
fangsmikil, að hún réttlæti uppsetn-
ingu sjálfvirkra og afkastamikilla véla
fyrir fjöldapökkun. Tækið er til þess
ætlað að auðvelda handpökkun kassa
eða annarra reglulega lagaðra íláta
inn í sellofanhimnu.
Það er samsett af málmpalli (57X
46 cm að stærð), og á öðrum enda
hans eru tvær skorður (krappar), sem
halda lokunarstönginni með tilheyr-
andi útbúnaði, og leikur hún á velti-
ási. Lokarinn (sealer) er reistur yfir
pallinum, þegar hann er ekki í notk-
un. Hann hefur tvo sjálfstæða lokun-
arfleti, og lokunarhitinn er temprað-
ur.
Pakkahlutunum er ýtt áfram á pall-
inum, þar til þeir komast í snertingu
við þrýstiplötu, sem hjálpar til að
framkvæma nákvæmlega hornrétta
samsetningu hlutanna, og þessi snert-
ing gerir lokarann virkan. Þrýstiplat-
an verkar á þrýstistöng á lokunarsam-
stæðunni og sveiflar lokaranum nið-
ur, svo að hann skeytir saman umbúð-
irnar eftir endilöngum pakkanum að
ofan. Síðan er pakkanum lokað til
endanna með því að strjúka endafell-
ingunum við hinn lokunarflötinn á
stönginni, með samstæðuna reista.
Þessu fylgir lyfting pakkans, og er
það aðeins gert við tiltölulega létta og
litla pakka. Stærri og þyngri pökkum
má loka með sérstökum endalokara,
sem hægt er að fá sem fylgiútbúnað.
Pökkunartækið getur tekið pakka,
sem eru allt að 38 cm á lengd, ÍU—23
cm á breidd og 8—18 cm á hæð.
Pakka, sem ekki ná 8 cm hæð, má
einnig pakka inn, ef þeir eru settir á
sérstaka blokk, meðan þeim er lokað
að endilöngu. Afköstin eru um 3
pakkar á mínútu.
Framleiðandi: British Cellophan
Ltd., 1 Henrietta Place, London W 1.
Úr „Food Processing and Packaging",
okt. 1960. — E.T.D. nr. 4216.
Hentugur
logsuðustraumbreytir
Lítill og léttur, með mikinn straum-
styrkleika. Má tengja við venjulegar
Ijósainnstungur.
Hollenzkt fyrirtæki hefur framleitt
logsuðustraumbreyti af mjög sam-
þjappaðri gerð, sem hentar sérstak-
lega vel litlum viðgerðarverkstæðum.
Hagstætt verð gerir hann einnig eftir-
sóknarverðan fyrir áhugamenn.
Stærðin er aðeins 33X29)4X21%
cm, og hann vegur 27 kg. Tækið er
sett í samband við venjulegar ljósa-
innstungur. Onnur spenna þess er 52
volt, og strauminn má stilla frá 35—
100 amp.
Logsuðustraumstilli er haganlega
fyrir komið á framhlið tækisins. Það
er í tréhulstri og fullkomlega öruggt í
meðhöndlun.
Framleiðandi: Varios Fabrieken,
N. V., Postbus 61, Groningen, Hol-
landi.
E.T.D. no. 4225.
IÐNAÐARMAL