Iðnaðarmál - 01.04.1961, Blaðsíða 23

Iðnaðarmál - 01.04.1961, Blaðsíða 23
ar orkusvið, þar sem tin-oxide húð- imar mynda elekrtóðurnar tvær. Sink-súlphide, sem komið er fyrir á riðstraumssviði, verður lýsandi, svo að beiting riðstraumsspennu yfir hin- ar tvær elektróðuhúðir veldur raf- ljómun. Til að auka ljómann, má setja hvíta einangrunarhúð milli bak-elektróð- unnar og hins lýsandi lags, til að end- urkasta ljósinu að rúðuglerinu. Hið lýsandi spjald er styrkt með rakaþéttri húð til vamar gegn veðr- un. Meðal höfuðkosta þessara spjalda má nefna hinn frábæra skírleika, sem fæst gegn mjög lítilli eyðslu á raf- orku, eða: 10 vött fyrir 1 fermetra sýningarflöt. Framleiðandi er Philips N.Y., Eind- hoven, Hollandi, og er ofangreind lýs- ing byggð á upplýsingum í riti, er fyrirtækið gefur út. E.T.D. no. 3498. SnúningshraSabreytir Tæki fyrir samfelldar hraðabreyt- ingar með stöðugu snúningsafli. Nýtt tæki fyrir samfelldar hraða- breytingar starfar án reima, tann- hjóla eða vökvadrifs. Grundvallaratriði hraðabreytisins eru þau, að tveir kambar, B, sem tengdir eru við innleiðsluásinn, valda titrandi hreyfingum á stöngunum C, er síðan valda sömu hreyfingum á D. Hvor D-stöngin um sig er í sam- bandi við fríhjólið E, sem tengt er við útleiðsluásinn. Þar sem kambarnir eru tveir, er það tryggt, að meðan annað fríhjólið er í drifi, er hitt að snúa aftur í upphafsstöðu, og tryggir þannig stöðuga hreyfingu til útleiðslu- ássins. Hraðastilling er framkvæmd með skífuhnappi G, sem hreyfir til keflið H, sem staðsett er milli C og D. Lögun kambanna tryggir rykkja- lausan snúning útleiðsluássins, og einnig er það mikilvægur kostur, að snúningsaflið er hið sama, hver sem hraðinn er. Snúningshraðabreytirinn er gerður fyrir stöðugan innleiðsluhraða 450 snúninga á mín., útleiðsluhraða 0— 50 snúninga á mín. og hámarks út- leiðslusnúningsafl 28,8 kgm. Hann er þétt sambyggður og algjörlega lokað- ur og þéttur, og stærðin er 68X54X 40 cm. Einingar af öðrum stærðum munu einnig verða fáanlegar. Framleiðandi er Fairbairn, Law- son, Combe, Barbour Ltd., Welling- ton Engineering Works, P.O. Box 32, Leeds 1, Englandi. Ur „British Chemical Engineering", okt. 1960. — E.T.D. no. 4210. Hreyfanleiki í vörugeymslum Einfaldar lausnir, sem bæta mjög vörumeðhöndlun í litlum vöru- geymslum. Einfaldar endurbætur, sem oftast eru byggðar á gamalkunnum flutn- ingaaðferðum (hallabretti, völtrum og lyftiútbúnaði), geta verulega bætt aðgang og aukið hreyfanleika í vöru- geymslum. T.d. má útbúa hallabraut með 20° hámarkshalla úr hreyfanlegum snið- um, er tengja má saman í stigabrú (mynd 1, a, b og c og mynd 2). Völtrur gegna mikilvægu hlutverki við flutningastarfsemi. Má t. d. nefna flutning þungra stykkja, sem er velt áfram á stálpípum (mynd 3) eða flutninga á veltibandi (mynd 4). Hreyfanleika í vörugeymslum má auka til muna, ef hillugrindur eru á völtrum (mynd 5). Einnig ætti neðri hluti hilluraðanna að vera hreyfan- legur fyrir skiptingar á þungum varn- ingi (mynd 6). Lyftingu varnings í mismunandi hilluhæðir má fram- kvæma með gaffallyftu eða, á einfald- ari hátt, með lyftiútbúnaði, sem kom- ið er fyrir á stiga (mynd 7). Og að lokum: Teinar, sem lagðir eru ofan á toppum hillugrindanna, geta haldið uppi einfaldri færibrú, er náð getur til allra staða í hilluröðun- um (myndir 8 og 9). Or „Maschinenwell und Eloktrotechnik", Austurríki. — E.T.D. no. 4111. Hörkumælir Einfalt og meðfærilegt tæki hefur verið gert til að framkvæma hörku- prófanir á hráefni og fullgerðum hlut- um. Því er beitt með hendinni á yfir- borð þess, er prófa skal, og þegar því hefur verið komið í viðeigandi stöðu, IÐN AÐARMAL 77

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.