Iðnaðarmál - 01.04.1961, Síða 28

Iðnaðarmál - 01.04.1961, Síða 28
Nytsamar nýjungar Framh. af 78. bls. Vél til lyftingar og tæmingar á ílátum Gerð hefur verið vél, sem lyft getur íláti, er vegur allt að 500 kg og hvolf- ir síðan innihaldinu í kassa eða önn- ur móttökuílát. ílátunum er lyft í burðarstól, sem hægt er að laga þannig til, að hann geti tekið alls konar gerðir íláta, svo sem kuta, sekki, stampa o. fl. Stóllinn gengur eftir leiðargrindum í hinum lóðrétta hluta vélarinnar, og þessa lóðréttu hluta má byggja upp eftir þörfum. Eru notaðir til þess staÖlaðir hlutar 414 fet á hæð. Framleiðandi er Russel Construc- tions Ltd., Russel House, Adam Street, London W. C. 2. Ur „Municipal Journal", nóv. 1960. — DSIR Technical Digest no. 1308. Ný aðferð við meðhöndlun a smiðaviði Rannsóknir, framkvæmdar af For- est Products Laboratory í Bandaríkj- unurn, hafa borið þann árangur, að fundizt hefur ný aðferð til að koma í veg fyrir, að viöur skreppi saman, og reynist hún jafnvel á barrtré og harð- ar viðartegundir. Aðferðin er nú notuð hjá Crane Creek Gun Stock Co. í Minnesota, til að tryggja efni í byssuskefti gegn því að skreppa saman eða þrútna vegna rakabreytinga. Gagnstætt því, sem tíðkast við hin- ar hefðbundnu aðferðir, er efnið nú fyrst mótað úr nýhöggnum, grænum viði og að hálfu leyti innskorið. Því- næst er það rækilega meðhöndlað með hinu kemíska styrktarefni (sta- bilizer), polyethylene glycol-1000, og síðan ofnþurrkað. Bezt heldur viður- inn sinni upphaflegu lögun eftir með- höndlun, sem skilur eftir 20—30% glycol (miðað við þunga á þurrum viði) á hinum þunnu og viðkvæmu svæðum. Aöeins lítill hluti hins kem- íska efnis þrengir sér inn í þykkasta hlutann. Meðhöndlunin er í því fólgin að gegnbleyta græna, tilskorna hlutina í 45—60 daga í 30% upplausn af gly- col, við 24° C. Glycolið hindtar, að efnið skreppi saman, þrútni eða verp- ist. Það styrkir trefjaveggi viðarins með því að dreifast um trefjafrum- urnar, þar sem hinar stóru sameindir hins kemíska styrktarefnis koma í staðinn fyrir eðlilegan vökva viðar- ins. Meöfylgjandi mynd er fengin hjá U. S. Department of Agriculture, For- est Products Laboratory, Madison 5, Wisconsin. Úr „Wood and Wood Products“, nóvem- ber 1960. — U.S.T.D. no. 10361. Breiöfjörös-suðupottur Síðustu ár hafa alúmínpottar mjög rutt sér til rúms, þar sem alúmín er nú, með aukinni tækni, mun ódýrara í framleiðslu en áður var, og leiðir mjög vel hita. Eru pottarnir fljótir að hitna og léttir og þægilegir í notkun. einkum á rafmagnsvélar. Agnar Breiðfjörð hefur fundið upp og framleiðir alúmínpott, sem er þannig útbúinn, að ekki sýður upp úr honum. Hann mun því létta þeim áhyggjum af mörgum húsmæðrum og losa þær við erfiði við að hreinsa eldavélar sínar, auk þess sem því fylg- ir aukin rafmagnseyðsla séu matar- agnir á pottunum eða plötum. Potturinn er útbúinn með íhvolfum barrni, sem tekur við öllu því er sýð ur upp úr og gegnum götóttan alúmrn- hring í sömu stærð, sem lagður er ofan í pottinn. Hann er framleiddur í tveimur stærðum, 2 lítra og 4 lítra, og hefur þegar fengið góða dóma margra húsmæðra, en einnig má geta Jress, að hann hefur reynzt mjög ve1 til sjós, þar -sem lögun hans er vel fallin til að varna því, að upp úr skvettist við matargerð í úfnum sjó. Honum fylgir rist með lausum botni, sem hentug er til að gufusjóða fisk eða grænmeti yfir öðrum mat l. d. kartöflum. Þannig má sjóða t%'o rétti í pottinum í einu. Framleiðandi: Blikksmiðja og tin- húðun Breiðfjörðs, Sigtúni 7, Reykja- vík.

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.