Frjáls verslun - 01.08.2010, Page 12
12 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0
Eftir níu ár sem framkvæmdastjóri hjá N1 var ég tilbúinn í breytingar og fannst kominn tími á nýja áskorun og ný verkefni. Segja má
að Reitir hafi orðið á vegi mínum þegar ég
var í þessum hugleiðingum sem mjög spenn
andi kostur og hér er ég í dag hjá sterku
fyrirtæki. Starfið leggst mjög vel í mig enda
mörg spennandi og krefjandi verkefni að
fást við. Starf mitt er tvíþætt; í fyrsta lagi að
leiða öflugan hóp starfsfólks sem sinnir við
skiptamannahópi Reita vel og þróar lausnir
með þeim, og í öðru lagi að gæta hags muna
eiganda félagsins og sjá til þess að þetta
tvennt fari saman.“
Góðar og vandaðar eignir
Reitir er stærsta fasteignafélag landsins en
Guðjón segir stærðina sem slíka ekki vera
aðal málið: „Við segjum stundum að Reitir
séu minnsta stærsta félag landsins. Hér eru
ekki nema fimmtán starfsmenn en við erum
með rúma átta milljarða veltu á ári og með
mjög stórt safn fasteigna sem mikil verðmæti
eru í, en eignir félagsins eru að verðmæti um
95 milljarðar.
Reitir er eingöngu með atvinnuhúsnæði til
útleigu. „Framboð okkar af eignum er mest
á höfuðborgarsvæðinu en við eigum húsnæði
um allt land. Húsnæðið spannar allt frá því
að vera skrifstofuhúsnæði, hótelbyggingar og
iðnaðarhúsnæði upp í íþróttahallir þannig að
eignasafnið er mjög sterkt og í því eru mikil
gæði og góðar staðsetningar. Við eigum til
dæmis mikið af fallegum og góðum eignum
í miðbæ Reykjavíkur og erum með vandaðar
eignir á öðrum stöðum þar sem aðgengi
hvað varðar samgöngur er t.d. mjög gott.
Það eru því gæði eignanna almennt séð, en
ekki stærð Reita sem fyrirtækis, sem skiptir
viðskiptavininn máli,“ segir Guðjón.
Öflugt þjónustu- og þekkingarfyrirtæki
Guðjón segir fagleg og góð samskipti við
við skiptavininn vera það sem skiptir öllu
máli: „Metnaður okkar er að gera Reiti að
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita.
Markmiðið að reka þjónustu- og þekkingarfyrirtæki
í fremstu röð á sínu sviði
REITIR FASTEIGNAFÉLAG
Guðjón Auðunsson er nýráðinn forstjóri Reita fasteignafélags hf. Guðjón er rekstrarhagfræðingur og hefur víðtæka
reynslu úr atvinnulífinu. Undanfarin níu ár hefur Guðjón starfað sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs hjá N1. Þar áður
vann hann sem framkvæmdastjóri hjá Samvinnuferðum-Landsýn, Navís-Landsteinum og sem forstöðumaður hjá Eimskip.