Frjáls verslun - 01.08.2010, Síða 13
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0 13
öflugasta fasteignafélagi landsins, og þá er
ég ekki að vísa í stærð félagsins, heldur hæfi
þess sem þjónustu og þekkingarfyrirtækis á
sínu sviði. Það sem skiptir viðskiptavininn
mestu máli er að vera í viðskiptum við
öflugt þjónustu og þekkingarfyrirtæki
sem getur staðið við skuldbindingar sínar.
Þegar viðskiptavinur kemur til okkar og vill
leigja húsnæði eftir eigin þörfum þá kemur
þekking og reynsla hér innandyra til góða.
Við erum fær um að taka við óskum stórra
sem smárra viðskiptavina, vinna og þróa
hlutina áfram og aðlaga eftir þörfum hvers
og eins. Dæmi um slíkt verkefni er gagnger
breyting á Hótel Loftleiðum sem við erum
að undirbúa í samstarfi við einn okkar
stærsta viðskiptavin, Icelandair Hotels.
Síðan má nefna að margir viðskiptavina
okkar vilja vera í umhverfisvænna húsnæði.
Ef svo er þá höfum við þekkinguna og get
una til að búa til þannig umhverfi, sem sýnir
hversu mikils virði er að hafa starfsfólk sem
hefur víðsýni í starfi og getu til að takast á
við flókin verkefni.
Reitir hafa markað sér stefnu í að auka hlut
vistvæns húsnæðis í eignasafninu, nýjasta
dæmið er húsnæði Eflu verkfræðistofu á
Höfðabakka 9. Vistvæn stefna snýst m.a.
um að framkvæmdir á húsnæðinu séu um
hverfisvænar og að starfsfólki líði þar vel.
Þar koma inn þættir eins og birta, loftgæði
og hljóðvist. Loftgæði í dag snúa t.d. að því
að auka hlut „náttúrulegra“ loftgæða í stað
„tilbúinna“. Húsnæðið á Höfðabakka mun
fá alþjóðlega BREEAMvottun sem vistvænt
húsnæði og verður þá fyrsta endurnýjaða
húsnæðið á Íslandi sem fær slíka vottun.“
Hátt nýtingarhlutfall eigna
Guðjón telur engan vafa á því að sóknar
tæki færin með atvinnuhúsnæði séu fyrir
hendi. „Ég er nýkominn til starfa og það
sem mér fannst ánægjulegt að sjá var hvað
nýtingarhlutfall eigna Reita er hátt og
það er markmiðið að halda þessu góða
nýtingarhlutfalli og gera enn betur þegar
möguleiki er fyrir hendi. Get ég nefnt sem
dæmi Kringluna. Þar er hver fermetri í
notkun og fleiri vilja komast að en pláss er
fyrir. En það er ekki tilviljun ef húsnæði er
vel nýtt. Það tekst með því að reka traust
fasteignafélag með starfsfólki sem hefur
þekkingu til þess að finna lausnir fyrir við
skiptavini og burði til að þróa starfsemi
sína áfram. Ef það tekst vel er hagsmunum
viðskiptavina og eigenda borgið.
Ég lagði mig fram um það, í upphafi
starfs tíma míns hjá Reitum, að kynnast
starfs mönnum vel og átta mig á hvað væri
á borði hvers og eins. Hvernig verk og
vinnuferlar væru og hvað vantaði upp á
að gera góða hluti enn betri. Ég varð strax
mjög hrifinn af þeirri fagmennsku og þeim
góða starfsanda sem er hér innan dyra
og er ég á því að við séum með landsliðið
í fast eignaumsýslu atvinnuhúsnæðis, og tel
forréttindi að fá að starfa með slíku fólki.“
Þegar viðskiptavinur kemur
til okkar og vill leigja hús
næði eftir eigin þörfum þá
kemur þekking og reynsla
hér innandyra til góða. Við
erum fær um að taka við
óskum stórra sem smárra
viðskiptavina, vinna og þróa
hlutina áfram og aðlaga hús
næði eftir þörfum hvers og
eins.
Starfsfólk Reita, sem er til húsa í Kringlunni.
Reitir hafa markað sér stefnu
í að auka hlut vistvæns
húsnæðis í eignasafninu,
nýjasta dæmið er húsnæði
Eflu verkfræðistofu á Höfða
bakka 9. Vistvæn stefna
snýst m.a. um að fram
kvæmdir á húsnæðinu séu
umhverfisvænar, að starfs
fólki líði þar vel.
Reitir er stærsta þjónustufyrirtækið á sviði
útleigu á atvinnuhúsnæði á Íslandi. Félagið
hefur yfir að ráða fjölbreyttu fasteignasafni
sem samanstendur af um 130 fasteignum
víðsvegar um landið. Fjölbreytt úrval fast
eigna gerir félaginu kleift að bjóða upp á
margar lausnir fyrir viðskiptavini hvað varðar
staðsetningu, tegund húsnæðis og stærð.
Innan fasteignasafns Reita má finna versl
unarhúsnæði í helstu verslunar mið stöðv um
landsins, fjölbreytt skrifstofu hús næði og
margskonar lager og iðnaðar húsnæði.
Meðal þekktra fasteigna má nefna Kringl
una, Hótel Hilton, Kaup hallar húsið, Holta
garða og nokkrar af perlum íslenskrar bygg
ingarsögu í miðbæ Reykjavíkur.
Reitir þjónusta stór og smá fyrirtæki sem
og einstaklinga. Meðal helstu leigutaka eru
Reykjavíkurborg, Hagar, Fasteignir ríkisins,
Landsbankinn, Íslandsbanki, Icelandair
Hotels, Actavis og NTC.
REITIR FASTEIGNAFÉLAG
Kringlan, ein þekktasta eign Reita.