Frjáls verslun - 01.08.2010, Qupperneq 19
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0 19
Fyrst þetta ...
Þetta var ein ástæða þess að Rúna
setti á fót samskiptasíðuna connected-
women.com. „Mig langaði til að kynnast
öðrum konum og sjá konur yfir höfuð verða
sýnilegri með því að notfæra sér tæknina.
Þær kynna sig, hvað þær gera, hvers konar
þjónustu þær bjóða upp á og hvers konar
þjónustu þær leita eftir. Þarna fara fram
umræður og svo er hægt að koma sér á
framfæri með greinaskrifum.“
Rúna segir að konur frá rúmlega 70
löndum hafi skráð sig á samskiptasíðuna
og telur að 10-12.000 konur séu þar á
skrá.
BRANDit
Rúna og tvær aðrar konur standa að
BRANDit en um er að ræða þriggja og
hálfs dags alþjóðlega þjálfunarstofu
fyrir athafnakonur. „Þetta er fyrir konur í
atvinnulífinu sem vilja taka stöðuna, finna
hvar ástríðan er í vinnunni og hvar fókus-
inn á að vera. Um leið skoða þær hvernig
þær geta byggt upp sjálfar sig og ímynd
sína – vörumerkið sem þær eru. Þá eru
teknar myndir af konunum og búinn til
myndbandsstúfur þar sem þær kynna sig.“
BRANDit hefur verið haldið þrisvar á
Íslandi, þjálfunarstofan verður að sögn Rúnu
haldin í Rotterdam í byrjun næsta árs og
hefur félag kvenna í atvinnurekstri í Bret-
landi óskað eftir að setja upp námskeið á
næsta ári.
Rúna hefur haldið námskeið víða sem
stjórnendamarkþjálfi, bæði hér innanlands
sem og í Bandaríkjunum, Kanada og Belgíu,
og sækir árlega alþjóðlegar „kvenna ráð-
stefnur“. „Þau tengsl sem ég hef byggt
upp víða um heim, bæði frá vinnu minni
sem og frá Connected-Women.com, skila
sér greinilega hvað varðar áhuga kvenna á
BRANDit út um allan heim. Draumurinn er
að setja upp BRANDit allt að mánaðarlega,
bæði hér innanlands og úti í heimi.“
Rúna komst í byrjun október á lista yfir
20 konur á heimasíðu viðskiptatímaritsins
Forbes sem þykir vert að fylgjast með á
Twitter. Þá má geta þess að Oprah Winfrey
tók viðtal við hana í gegnum netið árið 2009.
Rúna hjálpar öðrum að ná markmiðum
sín um. Áætlunum. Hvað með hana sjálfa?
„Ég vil lifa lífi þar sem ég get fengið að vera
ég, átt hlutdeild í því að byggja upp leiðtoga
fram tíðarinnar, gefið frá mér gleði, hvatningu
og styrk til annarra.“
„Aðaláherslan er að hjálpa fólki að ná meiri árangri í lífi og
starfi með því að losa um hæfileika einstaklingsins, vinna
skipulega að því að vera leiðtogi í sínu eigin lífi, með skýrri
markmiðasetningu og framtíðarsýn ásamt því að vera í sterkri
tengingu við sinn eigin drifkraft til að takast á við verkefnin.“
SET ehf. Röraverksmiðja • Eyravegur 41 • 800 Selfoss • Sími: 480 2700 • Fax: 482 2099 • Netfang: set@set.is • Vefsíða: http://www.set.is
Gæði til framtíðar
SET er framsækið og vaxandi iðnfyrirtæki með fjögurra áratuga reynslu af framleiðslu og þjónustu
við íslenska lagnamarkaðinn. SET framleiðir foreinangruð hitaveiturör og plastpípur fyrir
vatnsveitur, fráveitur, raforku og fjarskiptakerfi.
Fyrirtækið gegnir mikilvægu hlutverki við virkjun jarðhitaorku og nýtingu ferskvatns til neyslu og
útflutnings, ásamt verkefnum á sviði fráveitumála og fjarskiptavæðingar.
Gæðamál, þekking og fræðsla skipar veglegan sess í menningu fyrirtækisins sem og öflug
nýsköpun og framþróun í tækni. SET á samvinnu við tugi evrópskra fyrirtækja á sviði tækni,
hráefna, rannsókna og staðalmála.
Allar afurðir röraverksmiðju SET eru framleiddar samkvæmt evrópskum
framleiðslustöðlum og fyrirtækið hefur vottað gæðastjórnunarkerfi skv.
ISO-EN-IS 9001 staðli.