Frjáls verslun - 01.08.2010, Blaðsíða 42
42 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0
Fremsta fyrirtækið á þessu sviði á landinu
Að sögn Ragnars Þórs er Öryggismiðstöðin
að meginupplagi þjónustufyrirtæki í öryggis
geiranum: „Hjá okkur eru nú um 160 starfs
menn. Undanfarin ár hafa verið fyrir tækinu
afar hagfelld og fyrir þremur árum ákváðum
við að gera gangskör að því að bæta okkur
sem þjónustufyrirtæki. Árangur þeirrar
vinnu hefur sannarlega skilað sér því síðustu
þrjú ár eru þau bestu í rekstri félagsins frá
stofnun. Við erum þess fullviss að í dag
erum við fremsta fyrirtækið á okkar sviði á
landinu.
Fyrirtækið hefur einbeitt sér að sölu
ýmiss konar öryggisbúnaðar, jafnt til heim ila
og fyrirtækja, ásamt uppsetningu og þjón
ustu. Þar má nefna hefðbundin innbrota
viðvörunarkerfi, aðgangsstýrikerfi, eftir lits
myndavélar, brunaviðvaranir, slökkvikerfi,
slökkvitæki og vöruverndarhlið, svo fátt
eitt sé nefnt. Á flestum þessum sviðum
hafa orðið miklar tækniframfarir á síðustu
árum. Við höfum gætt þess vandlega að
vera í fararbroddi með nýjungar og höfum
á undanförnum misserum stóraukið vöru
framboð okkar. Sem dæmi má nefna inn
leiðingu IPtækni í eftirlitsmyndavélar sem
við fórum fyrstir af stað með hér á landi og
höfum nú ákaflega sterka stöðu og umboð í
þeim geira. Við rekum einnig eina öflugustu
slökkvitækjaþjónustu landsins.
Heima er best
Árið 2009 varð útvíkkun á starfssviði
fyrirtækisins. Við stofnuðum, ásamt Helgu
Hansdóttur lyf og öldrunarlækni, dóttur
Ragnar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri Öryggismiðstöðvarinnar.
Fókusinn er á framtíðina
ÖRYGGISMIÐSTÖÐIN
Öryggismiðstöðin fagnar 15 ára afmæli á árinu. Fyrirtækið er eitt framsæknasta öryggisfyrirtæki landsins og þúsundir
heimila og fyrirtækja njóta þjónustu þess. Við tókum Ragnar Þór Jónsson framkvæmdastjóra tali í tilefni þessara tímamóta.
„Samkeppnin er hörð og það
finnst okkur bara gott mál.
Framfarir verða til þar sem
samkeppni er fyrir hendi.“
Eftirlitsmyndavél utan á húsi, dæmi um margvís
legan öryggisbúnað sem Öryggismiðstöðin selur.