Frjáls verslun - 01.08.2010, Síða 43
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0 43
fyrirtæki á heilbrigðissviði. Heima er best
veitir öldruðum og fötluðum félagslega
þjón ustu og liðveislu af ýmsum toga, heima
hjúkrun, sérhæfða öryggisþjónustu, ráðgjöf
vegna aðlögunar húsnæðis ásamt miklu
framboði stuðnings og hjálpartækja. Til
að ýta enn frekar undir þessa starfsemi
keyptum við í lok árs 2009 fyrirtækið JE
Hjálpartæki, sem hafði um árabil sérhæft sig
í sölu og þjónustu ýmiss konar stuðnings
og hjálpartækja. Nú er svo komið að
um fimmtungur af tekjum Öryggis mið
stöðvarinnar kemur frá starfsemi sem kalla
má heilbrigðistengda.
Fyrirtækið 15 ára um þessar mundir
Afmælinu var fagnað með myndarbrag í
september. Þá var starfsmönnum, mökum
þeirra, viðskiptavinum og velunnurum
boðið að gleðjast með okkur í nýlegum
höfuðstöðvum okkar í Askalind 1 í Kópa
vogi. Við sjáum fyrirtækið okkar vaxa og
dafna enn frekar. Það býr yfir stórkost legum
mannauði, góðum umboðum og aðstöðu
sem veitir okkur tækifæri til vaxtar.“
„Viðskiptavinir okkar skipta þúsundum,
allt frá stærstu fyrirtækjum og stofnunum
landsins til Jóns og Gunnu í Vesturbænum.
Þarfir viðskiptavina geta vissulega verið
afar misjafnar. Við nálgumst öll verkefni á
sama hátt, með það leiðarljós að uppfylla
þarfir viðskiptavinarins sem best og tryggja
öryggi hans. Með þetta að markmiði starfa
allir okkar starfsmenn; öryggisráðgjafar,
tæknimenn, vaktmenn á stjórnstöð og
útkallsmenn á vaktbílum.
Hörð samkeppni á markaði
Samkeppnin er hörð og það finnst okkur
bara gott mál. Framfarir verða til þar sem
samkeppni er fyrir hendi. Við leggjum
mikla áherslu á að vanda alla ráðgjöf til við
skiptavina og lofa ekki meiri þjónustu en
við getum veitt. Þá höfum við kappkostað
að setja upp aðstöðu þar sem við getum sýnt
væntanlegum viðskiptavinum lausnir í fullri
virkni. Við hvetjum alla sem bera ábyrgð á
öryggismálum og þekkja ekki okkar lausnir
til að kíkja í kaffi og skoða hvað við höfum
upp á að bjóða.“
Öryggisvörður á útkallsbíl sem er hornsteinn
þjónustunnar; í viðbragðsstöðu allan sólarhringinn,
alla daga ársins.
Árið 2008 flutti Öryggismiðstöðin í nýjar og glæsilegar höfuðstöðvar í Askalind.
www.oryggi.is
www.heimaerbest.is