Frjáls verslun - 01.08.2010, Blaðsíða 50
50 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0
Guðrún Ragna Garðarsdóttir,
framkvæmdastjóri Atlantsolíu.
GUÐRÚN RAGNA GARÐARSDÓTTIR
framkvæmdastjóri Atlantsolíu
Áherslan á að vera á
atvinnumál
Hvenær telur þú að fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækja ljúki og
þau geti byrjað að fjárfesta aftur?
Ég held að ein af forsendunum fyrir því
að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu
fyrirtækja sé að eyða óvissu um
gengistryggð lán til fyrirtækja. Hversu
langan tíma það tekur er undir
dómskerfinu komið.
Finnur þú á meðal viðskiptavina þinna
að þeir fái ekki nægilega fyrirgreiðslu í
bönkum?
Ég get ekki sagt að svo sé í miklum mæli,
en þess verður þó vart.
Finnur fyrirtæki þitt beint fyrir því að
gjaldeyrishöftin trufli starfsemi þess?
Nei.
Er fyrirtæki þitt í samkeppni við
fyrirtæki í eigu banka eða kröfuhafa?
Við höfum verið í samkeppni við fyrirtæki
í eigu banka þar til nýverið. Skeljungur,
sem rekur Orkuna, var í eigu gamla Glitnis
og svo Íslandsbanka að hluta þar til á fyrri
hluta þessa árs.
Hvaða áhrif hefði það á starfsemi
fyrirtækis þíns ef Íslendingar gerðust
aðilar að Evrópusambandinu?
Ég get ekki séð að það að ganga í
Evrópusambandið hafi einhver bein áhrif á
starfsemi okkar.
Hyggst fyrirtæki þitt bæta við sig fólki á
næstunni?
Ekki að neinu verulegu marki.
Ertu hlynnt því að festa vísitöluna í
öllum lánasamningum og kippa þannig
verðtryggingunni úr sambandi?
Ég hef miklar efasemdir um að það sé
skynsamlegt, sérstaklega í ljósi þess að á
hinum endanum á jöfnunni eru lífeyrissjóðir
landsmanna að stórum hluta. Í mínum
huga er það þó ekki verðtryggingin sem
slík sem er vandamál á Íslandi heldur fyrst
og fremst verðbólgan sjálf. Við þurfum að
búa svo um hnútana að hún haldist innan
eðlilegra marka.
Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag;
hvert yrði þitt fyrsta verk?
Verkefnin í dag eru þvílík að einn
dagur myndi nú duga skammt. En
áherslan í dag á að mínu mati að vera á
atvinnumál númer eitt, tvö og þrjú. Það
liggja á borðinu verkefni eins og álver í
Helguvík, álver á Bakka, gagnaver og
einkarekin heilbrigðisþjónusta fyrir erlenda
sjúklinga svo eitthvað sé nefnt. Það væri
ágætisbyrjun að hætta að flækjast fyrir
þessum verkefnum og leggja heldur
áherslu á að koma þeim í gang. Erlendar
fjárfestingar eru bráðnauðsynlegar inn
í hagkerfið, eins og staðan er núna.
Jafnframt þarf að hrinda af stað áformum
um viðamiklar samgönguframkvæmdir
sem lífeyrissjóðirnir eru tilbúnir að
fjármagna og myndu skipta verulega miklu
máli til að hleypa lífi í hagkerfið.
Viðskiptalífið yrði betra ef …
… langtímasjónarmið væru höfð
til hliðsjónar í ríkari mæli en
skammtímasjónarmið.
Það væri ágætisbyrjun
að hætta að flækjast
fyrir verkefnum sem
liggja á borðinu