Frjáls verslun - 01.08.2010, Page 51
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0 51
Undanfarin misseri
hefur starfsemi Valitor
erlendis vaxið
VIÐAR ÞORKELSSON
forstjóri Valitor
Áhyggjuefni hvað
skuld setning fyrirtækja hér
á landi er mikil
Hvenær telur þú að fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækja
ljúki og þau geti byrjað að
fjárfesta aftur?
Ég tel að það taki eitt til tvö ár
til viðbótar að ljúka þessu stóra
verkefni. Það er hins áhyggjuefni
að skuldsetning fyrirtækja hér
á landi er mikil og mun að
óbreyttu hafa áhrif á getu þeirra til
fjárfestinga til framtíðar. Ég tel að
kröfuhafar þurfi að ganga lengra
í að breyta skuldum í hlutafé við
endurskipulagningu fyrirtækja.
Það mundi hafa jákvæð áhrif á
athafnagetu fyrirtækjanna og
efnahagslífið í heild.
Finnur þú á meðal viðskiptavina
þinna að þeir fái ekki nægilega
fyrirgreiðslu í bönkum?
Almennt heyrir maður ekki annað en
bankarnir sinni viðskiptavinum sínum
ágætlega þó að annríki sé mikið. Það sem
brennur á viðskiptavinum, sem hafa orðið
fyrir verulegum skakkaföllum, er frekar að
bankarnir ljúki því verkefni að taka afstöðu
til fjárhagslegrar endurskipulagningar
þeirra.
Finnur fyrirtæki þitt beint fyrir því að
gjaldeyrishöftin trufli starfsemi þess?
Við höfum náð að laga starfsemi okkar að
gjaldeyrishöftunum þannig að daglegur
rekstur hefur ekki raskast. Höftin hafa hins
vegar valdið ákveðnu óhagræði þegar
kemur að gjaldmiðlastýringu og hærri
viðskiptakostnaði.
Er fyrirtæki þitt í samkeppni við
fyrirtæki í eigu banka eða kröfuhafa?
Helstu fyrirtæki í greiðslumiðlun á Íslandi
hafa verið í eigu banka og sparisjóða og
hefur það ekki breyst.
Hvaða áhrif hefði það á starfsemi
fyrirtækis þíns ef Íslendingar gerðust
aðilar að Evrópusambandinu?
Ég tel að bein áhrif þess yrðu jákvæð,
sér í lagi ef upptaka evrunnar fylgdi í
kjölfarið. Það hefði í för með sér lækkun á
viðskiptakostnaði félagsins.
Hyggst fyrirtæki þitt bæta við sig fólki á
næstunni?
Undanfarin misseri hefur starfsemi Valitor
erlendis vaxið og samfara því hefur félagið
verið að fjölga starfsmönnum.
Gert er ráð fyrir að sú þróun haldi
áfram.
Ertu hlynntur því að festa
vísitöluna í öllum lánasamn
ing um og kippa þannig verð
tryggingunni úr sambandi?
Nei, ég tel hins vegar að vinna
eigi að því að minnka vægi
vísitölunnar. Við eigum að stefna
að því að hafa lánamöguleika og
lánakjör sambærileg og þekkjast í
nágrannalöndunum.
Ef þú yrðir forsætisráðherra í
einn dag; hvert yrði þitt fyrsta
verk?
Til að vinna sig út úr þeim vanda
sem við stöndum frammi fyrir
sem þjóð þarf að hafa þrjá þætti
í huga; ríkisútgjöld, skattabreytingar og
hagvöxt. Mitt fyrsta verkefni yrði að hrinda
af stað verkefnum sem væru til þess
fallin að koma atvinnulífinu á hreyfingu,
skapa ný störf og um leið hagvöxt. Þessa
áherslu hefur vantað í starfi núverandi
ríkisstjórnar en aðaláhersla hennar hefur
verið á hækkun skatta og svo lækkun á
ríkisútgjöldum.
Viðskiptalífið yrði betra ef …
… atvinnulífið, stjórnvöld og
launþegahreyfingin hefðu sameiginlega
framtíðarsýn og markmið.
Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor.