Frjáls verslun - 01.08.2010, Page 53
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0 53
Hvenær telur þú að fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækja ljúki og
þau geti byrjað að fjárfesta aftur?
Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja
er langt frá því að klárast og í mörgum
tilfellum rétt að byrja. Ég held því miður
að við eigum langan og erfiðan vetur
framundan og við sjáum ekki auknar
fjárfestingar á árinu 2011, að minnsta
kosti ekki fyrri hluta þess árs, miðað við
núverandi stöðu mála.
Finnur fyrirtæki þitt beint fyrir því að
gjaldeyrishöftin trufli starfsemi þess?
Já að vissu leyti, en það
hjálpar okkur að við
verslum fyrst og fremst við
fáa en stóra erlenda aðila.
Erfitt er þó að stofna til
nýrra viðskiptasambanda
erlendis þar sem erlendir
aðilar eru hræddir við
Ísland.
Er fyrirtæki þitt í samkeppni við
fyrirtæki í eigu banka eða kröfuhafa?
Stærstu keppinautar Nova hafa verið í
eigu banka eða undir stjórn kröfuhafa
síðustu misseri. Þá hefur einn af
keppinautunum fengið gríðarlegar skuldir
felldar niður og er nú í eigu lífeyrissjóða.
Lífeyrissjóðir fjárfestu nýlega beint og
óbeint í símafyrirtækjum og hægt er að
setja spurningarmerki við hverju það
breytir – banki vs. lífeyrissjóðir? Tíminn
verður að leiða það í ljós.
Hvaða áhrif hefði það á starfsemi
fyrirtækis þíns ef Íslendingar gerðust
aðilar að Evrópusambandinu?
Íslensk fjarskiptafyrirtæki starfa í dag undir
eftirliti Póst- og fjarskiptastofnunar, sem
fylgir evrópskri fjarskiptalöggjöf, svo hvað
símarekstur snertir yrði breytingin ekki
mikil.
Ég styð umsókn Íslands um aðild að
ESB og þjóðaratkvæðagreiðslu þar um í
framhaldinu.
Hyggst fyrirtæki þitt bæta við sig fólki á
næstunni?
Viðskiptavinum fyrirtækisins hefur fjölgað
mjög á árinu og því höfum við bætt við
okkur starfsfólki í takt við þann vöxt. Í
dag eru 97 starfsmenn hjá Nova og þeim
verður fjölgað í takt við vöxt fyrirtækisins.
Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag;
hvert yrði þitt fyrsta verk?
Ég sé ekki aðra leið en þjóðstjórn; nýja
ríkisstjórn samsetta úr þingmönnum og
fólki utan þings. Það þarf að taka margar
og óvinsælar ákvarðanir. Það þarf að tala
hreint út og hætta með loforðalista á borð
við norrænt velferðarkerfi sem við eigum
ekki fyrir næstu árin.
Við erum föst í sömu hjólförunum og
þurfum nýtt fólk og nýja
sýn til að koma okkur af
stað og hefjast handa við
uppbyggingu Íslands eftir
hrun.
Viðskiptalífið yrði betra
ef …
… og þegar við
endurheimtum traustið. Allir vildu vera
vinir þegar vel gekk en svo fór sem fór og
nú er því miður vantraustið allsráðandi.
Við þurfum að endurheimta traustið og
vinna saman að því að koma okkur út
úr þessum mikla vanda, þingheimur og
viðskiptalífið. Alþingi eitt og sér mun ekki
leysa þennan vanda.
Fjárhagsleg endurskipulagning
fyrirtækja er langt frá því að
klárast
Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova.
LIV BERGÞÓRSDÓTTIR
framkvæmdastjóri Nova
Erfiður vetur framundan
hjá fyrirtækjum