Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2010, Page 58

Frjáls verslun - 01.08.2010, Page 58
58 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0 Hvenær telur þú að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja ljúki og þau geti byrjað að fjárfesta aftur? Miðað við gang mála sl. tvö ár og þá stjórn málalegu áhættu sem nú ríkir tel ég að við séum að tala um a.m.k. önnur tvö ár. Finnur þú á meðal viðskiptavina þinna að þeir fái ekki nægilega fyrirgreiðslu í bönkum? Nei. Finnur fyrirtæki þitt beint fyrir því að gjaldeyrishöftin trufli starfsemi þess? Nei, ekki svo heitið geti. Er fyrirtæki þitt í samkeppni við fyrirtæki í eigu banka eða kröfuhafa? Nei, ekki lengur að því er vitað er. Hvaða áhrif hefði það á starfsemi fyrirtækis þíns ef Íslendingar gerðust aðilar að Evrópusambandinu? Hvað varðar regluverkið í lyfjageiranum fylgjum við Evrópusambandinu í einu og öllu. Varðandi viðskiptahliðina yrði það ekki nema við tækjum upp evru, sem myndu fylgja lægri vextir og stöðugur gjaldmiðill. Það myndi skila sér í lægri rekstarkostnaði, spara tíma og einfalda samskiptin við birgja þar sem mikill tími hefur farið í að útskýra áhrif gengisbreytinga á rekstur okkar og um - hverfi. Hyggst fyrirtæki þitt bæta við sig fólki á næstunni? Nei. Ertu hlynntur því að festa vísitöluna í öllum lánasamningum og kippa þannig verðtryggingunni úr sambandi? Ef verið er að tala um að það eigi að gerast afturvirkt sé ég ekki hvernig það á að vera gerlegt gagnvart gildandi lögum og stjórnarskrá. Varðandi framtíðina hefur mín skoðun lengi verið sú að verð- tryggingin sé mein sem við eigum að losa okkur við. Aftur að samskiptum við birgja og önnur lönd, þá er þetta nokkuð sem þekkist almennt ekki og oftast þarf að útskýra sem séríslenskt fyrirbæri frá tímum óðaverðbólgu. Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag; hvert yrði þitt fyrsta verk? Forgangsraða verkefnum m.t.t. þess að koma hjólum atvinnulífsins í gang. Sem dæmi þá ætti skuldavandi heimilanna að vera þar efstur á blaði því að án virkra neytenda komast hjólin ekki aftur af stað. Nú er loks verið að vinna í því máli eftir tveggja ára bið. Aftur á móti tel ég að stjórnvöld eigi ekki að eyða tíma í verkefni sem ekki brenna og ekki eru vandamál. Þar kemur fyrst upp í hugann endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu, sem ekki er gallalaust frekar en margt annað, en ég tel að núverandi kerfi hafi þó sannað sig varðandi það að hámarka verðmæti auðlindarinnar. Viðskiptalífið yrði betra ef … … það byggi við stöðugan gjaldmiðil, lægri vexti og frjálst flæði fjármagns (þ.e. án hafta). Að minnsta kosti tvö ár í að fjárhagslegri endurskipu lagningu ljúki Hreggviður Jónsson, forstjóri Veritas Capital. HREGGVIÐUR JÓNSSON forstjóri Veritas Capital Verðtryggingin er mein sem við eigum að losa okkur við
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.