Frjáls verslun - 01.08.2010, Blaðsíða 58
58 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0
Hvenær telur þú að fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækja ljúki og
þau geti byrjað að fjárfesta aftur?
Miðað við gang mála sl. tvö ár og þá
stjórn málalegu áhættu sem nú ríkir tel
ég að við séum að tala um a.m.k. önnur
tvö ár.
Finnur þú á meðal viðskiptavina þinna
að þeir fái ekki nægilega fyrirgreiðslu í
bönkum?
Nei.
Finnur fyrirtæki þitt beint
fyrir því að gjaldeyrishöftin
trufli starfsemi þess?
Nei, ekki svo heitið geti.
Er fyrirtæki þitt í samkeppni
við fyrirtæki í eigu banka
eða kröfuhafa?
Nei, ekki lengur að því er vitað er.
Hvaða áhrif hefði það á starfsemi
fyrirtækis þíns ef Íslendingar gerðust
aðilar að Evrópusambandinu?
Hvað varðar regluverkið í lyfjageiranum
fylgjum við Evrópusambandinu í einu
og öllu. Varðandi viðskiptahliðina yrði
það ekki nema við tækjum upp evru,
sem myndu fylgja lægri vextir og
stöðugur gjaldmiðill. Það myndi skila sér
í lægri rekstarkostnaði, spara tíma og
einfalda samskiptin við birgja þar sem
mikill tími hefur farið í að útskýra áhrif
gengisbreytinga á rekstur okkar og um -
hverfi.
Hyggst fyrirtæki þitt bæta við sig fólki á
næstunni?
Nei.
Ertu hlynntur því að festa vísitöluna í
öllum lánasamningum og kippa þannig
verðtryggingunni úr sambandi?
Ef verið er að tala um að það eigi að
gerast afturvirkt sé ég ekki hvernig það á
að vera gerlegt gagnvart gildandi lögum
og stjórnarskrá. Varðandi framtíðina
hefur mín skoðun lengi verið sú að verð-
tryggingin sé mein sem við eigum að
losa okkur við. Aftur að samskiptum við
birgja og önnur lönd, þá er þetta nokkuð
sem þekkist almennt ekki og oftast þarf
að útskýra sem séríslenskt fyrirbæri frá
tímum óðaverðbólgu.
Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag;
hvert yrði þitt fyrsta verk?
Forgangsraða verkefnum m.t.t. þess að
koma hjólum atvinnulífsins í gang. Sem
dæmi þá ætti skuldavandi heimilanna að
vera þar efstur á blaði því að án virkra
neytenda komast hjólin ekki
aftur af stað. Nú er loks
verið að vinna í því máli eftir
tveggja ára bið. Aftur á móti
tel ég að stjórnvöld eigi ekki
að eyða tíma í verkefni sem
ekki brenna og ekki eru
vandamál. Þar kemur fyrst
upp í hugann endurskoðun
á fiskveiðistjórnunarkerfinu,
sem ekki er gallalaust frekar en margt
annað, en ég tel að núverandi kerfi hafi
þó sannað sig varðandi það að hámarka
verðmæti auðlindarinnar.
Viðskiptalífið yrði betra ef …
… það byggi við stöðugan gjaldmiðil,
lægri vexti og frjálst flæði fjármagns (þ.e.
án hafta).
Að minnsta kosti tvö ár
í að fjárhagslegri
endurskipu lagningu ljúki
Hreggviður Jónsson, forstjóri Veritas Capital.
HREGGVIÐUR JÓNSSON
forstjóri Veritas Capital
Verðtryggingin er mein
sem við eigum að
losa okkur við