Frjáls verslun - 01.08.2010, Side 61
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0 61
Hvenær telur þú að fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækja ljúki og
þau geti byrjað að fjárfesta aftur?
Sennilega eru svörin við þessari spurningu
jafnmörg og fyrirtækin. Það er þó
mikilvægt að ferillinn sé gegnsær og
verklagsreglum fylgt, samræmis sé gætt
og óeðlileg markmið víki í öllum tilvikum.
Finnur þú á meðal viðskiptavina þinna
að þeir fái ekki nægilega fyrirgreiðslu í
bönkum?
Viðskiptavinir okkar eru allur almenningur
og neytendur og sem betur fer virðist stór
hluti þeirra vera með fjárhaginn í sæmilegu
lagi. Í það minnsta er alltaf aukning hjá
okkur.
Finnur fyrirtæki þitt beint fyrir því að
gjaldeyrishöftin trufli starfsemi þess?
Í raun og veru hafa gjaldeyrishöftin
mjög lítil áhrif á okkur og trufla viðskipti
okkar nánast ekkert. Við höfum þó
skilning á þeim aðstæðum sem eru í
efnahagskerfinu og að gjaldeyrishöftin
séu nauðsynleg. Við höfum þar af leiðandi
lagað okkur að því kerfi og verðum ekki
fyrir teljandi truflunum vegna þess.
Er fyrirtæki þitt í samkeppni við
fyrirtæki í eigu banka eða kröfuhafa?
Já, helsti keppinautur okkar var lengi vel
í eigu banka, en er nú kominn í hendur
Framtakssjóðs lífeyrissjóðanna ásamt
Íslandsbanka og fleiri lífeyrissjóðum. Það
er fullkomlega óeðlileg staða. Ég heyri á
mínum starfsmönnum, sem margir eru í
VR, að þeim finnst sérkennilegt að greiða
iðgjald til lífeyrissjóðs, sem nýtt er til að
styrkja keppinautinn. – Fyrirgreiðslan hefur
verið óeðlilega mikil, enda er þetta kerfi
sem býður upp á spillingu.
Hvaða áhrif hefði það á starfsemi
fyrirtækis þíns ef Íslendingar gerðust
aðilar að Evrópusambandinu?
Ég held að það myndi styrkja stöðu
Íslands og um leið okkar fyrirtækis. Það
er hins vegar mikilvægt að samningar séu
góðir, það er auðvitað grunnforsendan.
Hyggst fyrirtæki þitt bæta við sig fólki á
næstunni?
Já, við bætum við okkur nýjum
áfangastöðum í vor og þá þurfum við á
fleira fólki að halda.
Ertu hlynntur því að festa vísitöluna í
öllum lánasamningum og kippa þannig
verðtryggingunni úr sambandi?
Já, ég er hlynntur því.
Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag;
hvert yrði þitt fyrsta verk?
Það er mikilvægt að koma viðskiptalífinu
í gang, ég myndi lækka skatta á
fyrirtæki og atvinnugreinar sem eru
líklegar til að geta skilað miklum tekjum
inn í þjóðarbúið. Þannig mætti tryggja
mun meiri tekjur fyrir ríkið og ekki
þyrfti að ganga jafnlangt í niðurskurði í
grunnstoðum samfélagsins.
Viðskiptalífið yrði betra ef …
… bankar og lífeyrissjóðir hættu að
skekkja samkeppni með óeðlilegum
afskiptum af atvinnulífinu.
Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express.
Mikilvægt að
lækka skatta á
fyrirtæki og
atvinnugreinar
MATTHÍAS IMSLAND
forstjóri Iceland Express
Aðild að Evrópu sambandinu
styrkir stöðu Íslands