Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2010, Page 61

Frjáls verslun - 01.08.2010, Page 61
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0 61 Hvenær telur þú að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja ljúki og þau geti byrjað að fjárfesta aftur? Sennilega eru svörin við þessari spurningu jafnmörg og fyrirtækin. Það er þó mikilvægt að ferillinn sé gegnsær og verklagsreglum fylgt, samræmis sé gætt og óeðlileg markmið víki í öllum tilvikum. Finnur þú á meðal viðskiptavina þinna að þeir fái ekki nægilega fyrirgreiðslu í bönkum? Viðskiptavinir okkar eru allur almenningur og neytendur og sem betur fer virðist stór hluti þeirra vera með fjárhaginn í sæmilegu lagi. Í það minnsta er alltaf aukning hjá okkur. Finnur fyrirtæki þitt beint fyrir því að gjaldeyrishöftin trufli starfsemi þess? Í raun og veru hafa gjaldeyrishöftin mjög lítil áhrif á okkur og trufla viðskipti okkar nánast ekkert. Við höfum þó skilning á þeim aðstæðum sem eru í efnahagskerfinu og að gjaldeyrishöftin séu nauðsynleg. Við höfum þar af leiðandi lagað okkur að því kerfi og verðum ekki fyrir teljandi truflunum vegna þess. Er fyrirtæki þitt í samkeppni við fyrirtæki í eigu banka eða kröfuhafa? Já, helsti keppinautur okkar var lengi vel í eigu banka, en er nú kominn í hendur Framtakssjóðs lífeyrissjóðanna ásamt Íslandsbanka og fleiri lífeyrissjóðum. Það er fullkomlega óeðlileg staða. Ég heyri á mínum starfsmönnum, sem margir eru í VR, að þeim finnst sérkennilegt að greiða iðgjald til lífeyrissjóðs, sem nýtt er til að styrkja keppinautinn. – Fyrirgreiðslan hefur verið óeðlilega mikil, enda er þetta kerfi sem býður upp á spillingu. Hvaða áhrif hefði það á starfsemi fyrirtækis þíns ef Íslendingar gerðust aðilar að Evrópusambandinu? Ég held að það myndi styrkja stöðu Íslands og um leið okkar fyrirtækis. Það er hins vegar mikilvægt að samningar séu góðir, það er auðvitað grunnforsendan. Hyggst fyrirtæki þitt bæta við sig fólki á næstunni? Já, við bætum við okkur nýjum áfangastöðum í vor og þá þurfum við á fleira fólki að halda. Ertu hlynntur því að festa vísitöluna í öllum lánasamningum og kippa þannig verðtryggingunni úr sambandi? Já, ég er hlynntur því. Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag; hvert yrði þitt fyrsta verk? Það er mikilvægt að koma viðskiptalífinu í gang, ég myndi lækka skatta á fyrirtæki og atvinnugreinar sem eru líklegar til að geta skilað miklum tekjum inn í þjóðarbúið. Þannig mætti tryggja mun meiri tekjur fyrir ríkið og ekki þyrfti að ganga jafnlangt í niðurskurði í grunnstoðum samfélagsins. Viðskiptalífið yrði betra ef … … bankar og lífeyrissjóðir hættu að skekkja samkeppni með óeðlilegum afskiptum af atvinnulífinu. Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express. Mikilvægt að lækka skatta á fyrirtæki og atvinnugreinar MATTHÍAS IMSLAND forstjóri Iceland Express Aðild að Evrópu sambandinu styrkir stöðu Íslands
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.