Frjáls verslun - 01.08.2010, Side 134
134 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0
hún stöðvuð; yfirleitt á borði ríkisstjórnarinnar. Því
fer fjarri að skuldaskilum fyrirtækja og einstaklinga
sé lokið. Þetta hefur gengið miklu hægar en
menn höfðu búist við. Vonir stóðu til að erfiðasta
róðrinum yrði lokið að mestu í árslok en það mun
hins vegar taka a.m.k. allt næsta ár.
Það ríkir mikið vantraust á stjórnmálamönnum
og mikið vantraust á bönkunum, það heyrum við á
hverjum einasta degi. En við veltum okkur upp úr
for tíðinni. Er þetta skynsamlegur ferðamáti, eigum
við að fara inn í framtíðina hlaupandi aftur á bak?“
Benedikt sagðist hafa verið þeirrar skoðunar, og
marg oft sett þá skoðun fram, að í október 2008
hefði átt að reyna að mynda víðtæka pólitíska sam
stöðu um fimm til sex mál sem við gætum verið
sam mála um og setja önnur mál til hliðar. Þá gæti
vel verið að ýmis áhugamál hans sjálfs hefðu frestast.
Þetta hefði ekki verið gert þá en menn öðru hvoru
reynt það síðan. Miðað við atburði síðustu vikna
væri búið að tryggja að sífellt væri verið að líta um
öxl í stað þess að horfa fram á við. Við þyrftum
erlenda fjárfestingu, en þá sjaldan erlendir fjárfestir
sýndu áhuga virtust menn gera allt til þess að gera
útlend inga tortryggilega.
„Við þurfum hagkvæma nýtingu auðlindanna,
ég segi ekki að við skulum virkja hvað sem það
kostar, við skulum virkja og græða vel á því. Við
skulum ekki fara í framkvæmdir sem eru bara
atvinnu skapandi. Menn virðast halda að vegagerð
og gangagerð sé það stórkostlegasta sem hægt er
að gera. Það hlýtur að vera með vísun til ársins
1930 þegar menn voru með haka og skóflur í
Bandaríkjunum að leggja vegi og gera stíflur. Nú er
einn maður með stórt tæki. Það er nú öll atvinnu
sköpunin.“
Benedikt talaði einnig um mikilvægi þess að hafa
trausta gjaldmiðlalausn, að við yrðum með krónuna
áfram um svolítinn tíma, sem væri óhjákvæmilegt,
og þess vegna yrðum við með einhverju móti að
skapa traust; traust á stjórnvöldum. Sem hann taldi
að vísu að yrði afar erfitt. Hann sagði að Íslendingar
yrðu að hafa banka sem þeir gætu treyst en að hans
mati er það ekki í sjónmáli, honum þættu vinnu
aðferðir bankanna ekki með því móti.
„Þess vegna spyr ég: Er lífið á botninum hið
ljúfa líf? Það getur vel verið, það er einfaldur lífs
stíll og við gerum ekki neitt, við sköpum engin
verð mæti heldur njótum bara lífsins og horfum
á undirdjúpin sem enginn hefur séð fyrr. En
er þetta framtíðin sem við sjáum fyrir íslenskt
sam félag? Nei, við verðum að færast fram á við,
verðum að taka höndum saman, verðum að
skapa nýtt Ísland.“
símon Þorleifsson
tækifærin ErU
víða í krEppUnni
Símon Þorleifsson, framkvæmdastjóri hjá HRV
verkfræðistofu, greindi m.a. frá því að HRV væri með
verkefni erlendis og tækifærin væru víða á sviði ál-
og orkuiðnaðar. „Við flytja álið hálfunnið úr landi. Við
getum unnið miklu meira úr álinu hérna heima.“
TexTi: Hrund Hauksdóttir
Símon Þorleifsson, framkvæmdastjóri hjá HRV verkfræðistofu, sagði í erindi sínu að tækifærin væru víða og líka í kreppu. Fyrirtækið er með verkefni erlendis
en fyrirtækið varð til við samruna Hönnunar (nú Mannvit), Rafhönnunar og VST,
Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen.
Þetta er stærsta verkfræðistofa landsins og hefur látið til sín taka sem ráðgjafar og
þjónustufyrirtæki í heiminum á sviði ál og orkuiðnaðar. Það er með verkefni víða
erlendis og Mannvit er með starfsstöð í Ungverjalandi. Hann sagði frá nýlegri vinnu
fyrirtækisins í Svíþjóð þar sem álveri var umbreytt og dregið stórlega úr mengun þess.
Símon sagði að álið og orkugeirinn væri undirstaðan hjá HRV. „Við höfum aðgang
að sjö hundruð manna þekkingarhúsi, sem er eitt stærsta sinnar tegundar á landinu.
Við fáum aðgang að þessu fólki í okkar verkefni. Það er ágætis velta hjá okkur og
verkefni framundan þótt Helguvík tefjist eitthvað og við erum með lítinn þröngan
viðskiptavinahóp – en við erum að vinna okkur betur upp í þessu samstarfi því það eru
líka fyrirtæki erlendis sem við horfum til. Heimurinn allur er okkar markaðssvæði.“
Símon taldi mikilvægt að nefna að í huga HRV væri álið grænn málmur og talinn
sem slíkur um allan heim nema á Íslandi.
„Ég veit ekki hvað er málið. En það er engin spurning að álið léttir farartækin og það
er mikið vatn í öllum málmi. Það er mikil vakning hjá öllum álfyrirtækjum. Ég var á
ráðstefnu í Osló í júní og allir ræddu þar um betri nýtingu á áli í flutningsmiðlunum
og að lækka CO2mengunina. (Innskot blm. CO2 er koldíoxíð og myndast við bruna.
Einnig kolsýra eins og í godrykkjum).
Að sögn Símonar þarf að sækja
þekkingu til besta fólksins í landinu og til
annarra landa. Hann sagði frá hugmynd
Grænlendinga um að byggja þar álver og
bauð heimastjórnin Símoni þangað til að
kanna aðstæður.
„Grænlendinga vantar allt og þarna
er tækifæri fyrir okkur Íslendinga. Það er
þegar búið að merkja í klöppina HRV
merkið svo fyrirtækið ætlar sér að vera á
staðnum þegar þetta fer af stað. Verkefnið
er ekki í hendi, en ef það fer í gang mun
„Við erum hluthafar í fyrirtæki
sem verið er að stofna á
Seyðisfirði. Hugmyndafræðin
byggist á að framleiða meira
úr álinu því við flytjum það
hálfunnið úr landi. Við getum
unnið miklu úr álinu hérna
heima og við Íslendingar erum
samkeppnishæfir við önnur lönd í
þeim efnum.“
Haustráðstefna stjórnvísi 2010