Frjáls verslun - 01.08.2010, Blaðsíða 149
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0 149
Fólk
JÓN HEIÐAR PÁLSSON
sölu- og markaðsstjóri Maritech
Nafn: Jón Heiðar Pálsson
Fæðingarstaður: Reykjavík,
20. maí 1957
Foreldrar: Erla Sigurbjörnsdóttir og
Páll Heiðar Jónsson. Uppeldisfaðir
Eysteinn Jónsson
Maki: Anna Jóna Einarsdóttir
Börn: Guðrún, 34 ára, Einar Helgi,
34 ára, Páll Heiðar, 19 ára, og
Matthildur Soffía, 13 ára.
Menntun: Útvegsfræðingur og 2.
stigs skipstjórn auk fjölda tölvu-,
hugbúnaðar- og sölunámskeiða.
„Starfið er mjög
fjölbreytt og krefst þess
að allir sem koma að séu
á tánum og fylgi þróun
og þörfum markaðarins á
hverjum tíma.“
M
aritech er söluaðili Microsoft
Dynamics NAV á Íslandi og er
í fararbroddi í upplýsingatækni
með sérstaka áherslu á ráð-
gjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingu hug -
búnaðar ásamt öflugri og persónulegri
þjónustu. Kerfi Maritech eru í notkun
hjá mörgum stærri fyrirtækjum landsins
og býður fyrirtækið staðlaðar Microsoft
Dynamics NAV-lausnir auk fjölda sérlausna
fyrir íslenskan og alþjóðlegan markað.
„Starf mitt felst í umsjón með söluferlinu,
samninga- og áætlanagerð ásamt mark aðs -
setningu hér heima og erlendis. Við erum
fjögur á sölu- og markaðssviði sem sinnum
þessum málum en einnig höfum við nýtt
okkur útvistun á ýmsum verkefnum. Starfið
er mjög fjölbreytt og krefst þess að allir
sem koma að séu á tánum og fylgi þróun og
þörfum markaðarins á hverjum tíma.
Stór hluti af starfinu er að hitta viðskipta-
vini, greina þarfir markaðarins og vinna með
hugbúnaðarsérfræðingum okkar að því að
vera með bestu lausnir á hverjum tíma.
Viðskiptavinahópur Maritech er mjög breiður,
sem endurspeglast í lausnunum sem við
bjóðum. Sem dæmi þá erum við meðal
annars með sérlausnir fyrir sveitarfélög,
sjávar útveg, þjónustufyrirtæki, banka og
flutn ingafyrirtæki, en einnig bjóðum við
breitt úrval lausna fyrir allar gerðir fyrirtækja
sem leysa til dæmis launaútreikning, banka-
afstemmingar, uppáskriftir, inn- og útflutning,
ásamt lausnum á sviði viðskiptagreindar.
Undanfarnar vikur hefur farið mikil vinna
í nýjan vef, www.nemo.is, þar sem við
kynnum lausnir okkar á sviði viðskipta-
greindar. NEMO-lausnirnar hjálpa stjórn end -
um fyrirtækja að ná fram réttum upp lýs-
ing um fyrir rétta aðila á réttum tíma með
notkun OLAP-teninga og SSRS-skýrslna og
sérlega einföldu og notendavænu umhverfi.“
Jón Heiðar er útvegsfræðingur og annars
stigs skipstjóri að mennt en hóf störf í
hug búnaðargeiranum árið 1986 og hefur
starfað á þeim vígstöðvum síðan. Eiginkona
hans er Anna Jóna Einarsdóttir og eiga þau
fjögur börn.
„Helstu áhugamál mín eru bækur, skák,
bad minton, stangveiði og annar veiðiskapur.
Í sumar var sumarfríinu varið í dvöl á
fjöl skyldu óðalinu Hjörsey þar sem við erum
m.a. með hesta, lax- og silungsveiði auk
þess sem við fórum í ferðir um landið og
nutum veðurblíðunnar sem lék við lands-
menn í sumar. Ég hef mitt mottó í lífinu sem
er: Það er alltaf, þá meina ég alltaf hægt að
gera betur.“