Iðnaðarmál - 01.06.1967, Page 18

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Page 18
Höfundur þessarar greinar hefur lagt stund á list sölumennskunnar allt sitt líf. Hann hefur selt ótal vörutegundir, alit frá ryksugum, sem gengið var með milli húsa, til steypuhrærivéla. — Hr. Robert McMurry er einnig vel að sér í fræðum sölumennskunnar. Hann hefur meistaragráðu frá háskólanum í Chicago og doktorsgráður frá háskólanum í Vín. Hann hefur yfir 30 ára reynslu sem söluráðunautur fyrir verzlanir, lyfjaverksmiðjur, vínframleiðendur, tryggingafélög, bókaútgáfufyrirtæki, byggingafélög og fleiri framleið- endur. Hann er nú forstöðumaður fyrir McMurry Co., ráðgjafafyrirtæki sínu, sem starfar á alþjóðavettvangi. Meiri sala - færri sölumenn Sérfrœðingur lýsir öruggri aðferð við að blása lífi í dauflegt sölulið. 20% seldu 80%. í dag leita viðskiptahöldar og sölu- stjórar ákaft að ráðum til að ná betri árangri með sölumönnum sínum. Miklu fé er varið á ári hverju í „örv- andi“ kerfi. Farið hefur verið bónar- veg til eiginkvenna sölumannanna til að fá stuðning þeirra. Efnahagslegt öryggi sölumannsins hefur verið verndað á allan hátt með frjálslegum hagnaðaráætlunum, og allt hefur ver- ið gert til að afmá smánarheiti eins og „umferðasali“ eða „prangari“ með því að veita honum meiri starfs- virðuleika og stöðu. Þrátt fyrir öll þessi framfaraskref eru afköst margra — e. t. v. meiri hluta þeirra, er fást við vörudreifing- arstörf — undir meðallagi. Hvers vegna? Staðreyndin er sú, að þeir eru of margir, sem ekki hafa of lítið öryggi, heldur of mikið. Svo fjarstæðukennt sem það e. t. v. virðist, notfæra stjórnendur sölu- starfseminnar sér of lítið eða ekkert hinn öflugasta hvata til athafna; kerfisbundna áætlun til að sía úr hina óhæfu. Tregða stj órnendanna til að beita róttækum aðgeröum stafar af margs konar röngum skilningi á sölumönn- um og því, sem hvetur þá til dáða. Allt of algengt er, að menn líti á sölufulltrúann sem skáldsagnaper- sónu — riddara í skínandi herklæð- um, sem brunar fram til bardaga við keppinauta sína. J afnranglega sj á menn hann einnig sem nútíma fjármálamann, knúinn á- fram næstum eingöngu af peningum eða jafngildi þeirra í verðmætum. Það er gert ráð fyrir, að hann muni, ef unnt sé að sýna honum fram á hagnaö þess að vera afkastamikill, ryðja úr vegi öllum hindrunum milli sín og þeirra launa, sem árvekni og iðni geta fært honum. Og enn ónákvæmari er sú mynd, þegar menn sjá hann sem sannan verktaka, gæddan framtakssemi, ímyndunarafli, leikgáfu, sannfæring- arkrafti og samningahæfileikum — mann, er sé fær um að ráða fram úr hvers konar vanda. Slíkir sölumenn eru til — en þeir eru fáir. Sumir sýna hæfni sína með því að vinna sér inn meira en 100.000 dali á ári. En miðlungslaun þeirra eru innan við 10.000 dali. Fyrirmyndin — Willy Loman eða James Bond? Alltof algengt er, að Willy Loman, í hinu fræga leikriti „Sölumaður deyr“, sé geröur að táknmynd hins starfandi sölumanns — ekki James Bond með pöntunarbók upp á vas- ann. Hinn almenni sölufulltrúi er sam- vizkusamur, heiðarlegur og tiltölu- lega óskáldlegur ferðamaður, sem gengur að sínu starfi á sama hátt og flestir aðrir launþegar. Fyrir hann er þetta aðeins starf. Hann verður að sjá sér farborða, og þetta er ein leið- in til þess. Aðeins fáir eru sérsaklega framgjarnir, sjálfstæðir í gjörðum eða gæddir skapandi ímyndunarafli. Flestir vænta þess, að þeim sé sagt fyrir, hvað þeir eigi að gera, hvenær og hvernig. Er þetta of gróf mynd? LítiÖ í töl- fræðilegar skýrslur. I flestum sölu- mannahópum, sem nokkuð kveður að, afkasta 20% af söluliðinu reglu- lega um 80% af sölunni. Lfm 30% selja rétt nægilega til að afla vinnu- veitanda sínum ágóða, 30% rétt að- eins borga fyrir sig og 20% selja ekki fyrir kostnaði. Margir vita ekki, hvernig á að selja, og meiri hlutinn leggur lítið á sig til að læra það. Þetta eru mein- semdir, sem þjá næstum því hvert einasta sölufyrirtæki. Hvers vegna er söluliðið gegnsýrt af óhæfum starfskröftum? Ástæð- urnar eru margar: • Vanhæfni stjórnendanna til að velja og þjálfa. • Tregða þeirra til að meta að verðleikum afköst sölumanna og samsvarandi glámskyggni á galla þeirra. • Sannfæring þeirra um, að til- gangslaust sé að skipta um lið, þar sem nýir menn muni ekki Oj ánœgður. 88 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.