Iðnaðarmál - 01.06.1967, Blaðsíða 25
með nýjum vinnuaðferðum og stór-
virkari framleiðslutækjum en áður
þekktust, rofnar samhengið milli hins
nýja og gamla tíma.
Tengiliðurinn við fortíðina er of-
ur veikur og freisting til eftiröpunar
þeirra, er lengra voru komnir, nær-
tæk.
I niðurlagsorðum greinar um hús-
gagnasmíðar á Islandi í Iðnsögu Is-
lands segir Guðmundur Finnbogason
m. a.: „Stíll á húsgögnum hefur að
mestu leyti verið eftir útlendum fyr-
irmyndum, er iðnaðarmenn hafa
fengið úr iðnritum og á ferðum sín-
um erlendis.—“
Þó að Iðnsaga Islands sé rituð fyr-
ir 25 árum, á þetta í mörgum tilfell-
um við enn í dag og um fleiri grein-
ar iðnaðar en húsgagnagerð. Þrátt
fyrir mikinn vöxt og tæknilegar fram-
farir í iðnaði hér síðustu áratugi hef-
ur verið furðuhljótt urri ýmsan list-
iðnað, og sjaldan heyrist talað um
nauðsyn þess að leggja áherzlu á iðn-
hönnun.
Húsgögn
Af þeim iðngreinum, er fallið gætu
undir listiðnað, hefur einna mest
kveðið að húsgagnagerð.
Á sviði húsgagnagerðar hafa und-
anfarin ár orðið stórstígar framfarir
í tæknilegum efnum. Margar hús-
gagnaverksmiðjur hér standa nú um
vélakost fyllilega jafnfætis því, sem
bezt gerist í Evrópu. Engu að síður
er margt, sem betur mætti fara, og
þá sérstaklega hönnun húsgagna.
Kaupmönnum og framleiðendum
er tíðrætt um bætt vörugæði, aukið
vöruval og framfarir. Það getur ekki
talizt nema skiljanlegt, að hverjum
finnist sinn fugl fagur, og varla gæti
það talist góð kaupmennska að við-
urkenna, að í harðri samkeppni við
innflutt húsgögn og vegna hárra hrá-
efnatolla virðistframleiðandinn verða
að láta mismuninn koma niður á list-
rænu eða fagurfræðilegu gildi hlutar-
ins. Engu er hægt að eyða í hönnun
eða endurbætur á framleiðsluvörunni.
Kaupmaðurinn, sem hins vegar flytur
inn tilbúna vöru, verður að láta sér
nægja vöru, sem er í meðallagi um
gæði og verð, þar eða fyrsta flokks
húsgögn erlend yrðu svo dýr í inn-
flutningi með aðflutningsgjöldum og
90% tolli og álagningu, að örfáir
gætu keypt.
12. Stóll, Halldór
Hjálmarsson.
13. Lár, (Þjóðm.safn
íslands).
14. Stóll, Gunnar
Magnússon.
IÐNAÐARMAL
95