Iðnaðarmál - 01.06.1967, Blaðsíða 22
ingarlega gildi, sem Norðurlanda-
þjóðunum hefur tekizt að gæða iðn-
aðarvörur sínar og listiðnað, skír-
skotar til tilfinninga, sem virðast oft
gleymast eða vera vanmetnar meðal
risaþjóða. Það er sorgleg staðreynd,
að alltof oft verður hið listræna utan-
gátta í fjöldaframleiðslunni.
Sú áherzla, sem Norðurlandaþjóð-
irnar hafa lagt á hönnun (design)
iðnaðarvöru sinnar, hefur skapað
henni þá sérstöðu, sem að ofan grein-
ir.
Það verður nú með vissu sagt, að
sú stefna eða hugsunargrundvöllur,
sem skandinaviskir listiðnaðarmenn
hafa byggt á, hafi staðið af sér þær
byrjunarþrengingar, sem nýjar stíl-
hreyfingar þurfa svo oft að ganga í
gegnum. Það hefur tekizt að hindra,
að nýjungar gengju út í öfgar og
dæmdu sjálfar sig til skammlífis.
Það verður ekki sagt að um neinar
stökkbreytingar hafi verið að ræða,
heldur hægfara þróun, þar sem sam-
hengið við fortíðina er áþreifanlegt.
Funktionalismi
Samfara tæknibyltingu á árunum
eftir fyrri heimsstyrjöldina skapast
ný viðhorf í húsagerðalist og á öllum
sviðum listiðnaðar, þar sem véltækn-
inni verður við komið. Hópar ein-
staklinga, er höfðu haft viðurværi sitt
af heimilisþj ónustu, hverfa til iðnað-
arframleiðslunnar og í verksmiðj-
urnar, um leið og henni hefur vaxið
fiskur um hrygg. Nýr hópur neyt-
enda verður til, og heimilishald breyt-
ist.
Hús og innanstokksmunir, sem oft
þjónuðu þeim tilgangi einum að hera
þjóðfélagsstöðu og efnahag eigend-
anna vitni, eru orðnir utanveltu og
næstum því til trafala.
Þegar vélar og verksmiðjur leysa
handiðnaðarmenn af hólmi og veita
inn á markaðinn vörum, sem áður
urðu til undir umsjá iðnmeistara, er
höfðu til að bera listagáfu og tækni-
lega getu, er mönnum Ijós nauðsyn
þess, að veita nýju lífi í formsköpun
með tilliti til breyttra þjóðfélags-
hátta.
Vagga þessara nýju viðhorfa í
byggingarlist og listiðnaði stóð í
Þýzkalandi.
Úr þessum jarðvegi þróast funk-
tionalisminn. Hús og húsmunir fá
svip sinn og yfirbragð fyrst og fremst
2. Stóll, Mies van der Rohe, 1927.
3. Fagus verksmiðjurnar, W. Gropius og A. Meyer,
1911.
4. „Sunnudagur", borgarastéttin nýtur lífsins,
Georges Seurat, 1859—91.
5. Stóll, Alvar Aalto, 1935.
6. Borðstofuhúsgögn, C. Malmsten, 1958.
7. „Safaristóll", Kaare Klint, 1933.
8. Hnífapör úr stáli, Tias Eckoff, 1961.
92
IÐNAÐARMÁL