Iðnaðarmál - 01.06.1967, Blaðsíða 41

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Blaðsíða 41
Sex staðreyndir um drykkjusjúklinga Nýjar rannsóknir á áfengissýkinni hafa hrundið mörgum fyrri skoð- unum á þessu vandamáli. Hér eru nokkrar staðreyndir, sem rannsóknir síðustu ára hafa leitt í ljós. 1. Á fyrsta stigi og miðstigi áfengissýkinnar heldur áfengissjúklingur- inn áfram að vinna. Vegna hinnar almennu glámskyggni við greiningu áfengissýki á byrj- unarstigi, svo og viðleitni áfengissjúklingsins sjálfs til að leyna sjúk- leikanum, er vinnuveitendum oft ekki kunnugt um áfengissjúklinga í starfsliðinu. 2. Að meðaltali eru 3% af starfsliðinu drykkjusjúklingar. Þó að þetta sé miðað við heildina, gefur það vísbendingu um, hve vandamálið er víðtækt. 3. Áfengissýkin þróast á bezta starfsaldri. Mikill meiri hluti ctfengissjúklinga eru í 35—50 ára aldursflokki, eða einmitt á þeim aldri, þegar fyrirtækið væntir hins bezta af þeim í vinnu- afköstum. 4. Áfengissjúklingurinn er oft með langan starfsaldur, hæfni, reynslu og þekkingu á stjórnun. í einu stóru fyrirtæki kom í ljós, að 82% af áfengissjúklingunum í starfsliðinu höfðu verið á launaskrá í 10 ár eða meira. 5. Áfengissýkin hefur dulinn kostnað í för með sér fyrir vinnuveitand- ann. Þetta er m. a. fólgið í minnkandi afköstum, fjarvistum, mistökum í við- skiptamálum, tapi á þjálfun og missi viðskiptavina. 6. Áfengissjúklingar finnast á öllum stigum meðal starfsliðsins. Þeir eru ekki bundnir við hina ófaglærðu, og er alveg jafnlíklegt, að þeir finnist meðal framkvæmdastjóranna og hinna óbreyttu starfsmanna. burstaðir, hárið vandlega greitt og fötin snyrtileg. Hann er þá á „neit- unarstigi“ vandamálsins og vonar að geta sýnt með þessum ytri ummerkj- um, að ekkert sé að honum. V innulag Eftir því sem vandamálið þróaðist með hinum drykkjusjúku, segja þeir, að störf þeirra hafi tekið að ganga skrykkjótt. „I stað þess að halda jöfnum hraða við vinnuna, tók ég gjarnan skorpur og slappaði síðan af.“ Eða: „Ég vann eins og sjálfur andskotinn til að geta átt meiri tíma til drykkju — fjögurra stunda verk á þremur klukkustundum . ..“ Þessi viðbrögð eru einkennandi fyrir áfengissjúklinginn. Hann vinn- ur í skorpum til að reyna að fylgjast með, en eftir svo sem klukkustundar sprett færist yfir hann þreyta og vinnuafköst hans lækka skyndilega. Samkvæmt frásögnum sögumanna hafði þetta vinnulag ekki í för með sér neina verulega hækkun á fjölda ijiistaka við vinnuna, eins og almennt er álitið. Á byrjunarstigi er áfengis- sjúklingurinn ákaflega varkár og gæt- inn gagnvart mistökum og slysum — hann reynir þá að forðast að draga að sér athygli. En vegna þess tíma, sem hann notar til að forðast mistök, verða afköst hans miklu minni en áður. Skapgerðareinkenni Ákveðin geðbrigði einkenna á- fengissjúklingana á hyrjunarstigi. Mest áberandi var sú geðbreyting, er átti sér stað eftir að hafa „fengið sér nokkra Iétta“ yfir vinnudaginn. Gagnstætt hinni almennu skoðun drukku þeir oft yfir vinnudaginn. Skap þeirra fyrir og eftir „hressing- una“ var greinilega ólíkt. Ef þeir höfðu verið önugir eða þunglyndir, urðu þeir vingjarnlegir og glaðværir. Ef þeir höfðu verið í góðu skapi og bjartsýnir, skipti um til hins gagn- stæða. Sérstaka reiði eða gremju sýndu þeir hverjum þeim, er minntist á drykkju þeirra. í fyrstu hafði auðvit- að hróður sá, er þeir höfðu áunnið sér við drykkjuna, vakið með þeim ánægju, en þegar aðdáunin snerist í andúð, tók drykkjusjúklingurinn að snúast til varnar af tilfinningu. Starfsfélaga eða verkstjóra, er gerð- ist hnýsinn eða nærgöngull, var svar- að með reiðihrópum eða þrjózku- legri þögn. Þessi tilfinningasemi varðandi drykkjuskapinn færðist einnig yfir á önnur svið. Drykkjusjúklingurinn gerðist fyrtinn við gagnrýni, kald- hæðinn og tortrygginn. Oft lagði hann sér til yfirburðafas til varnar gegn áleitni og duldi ofurviðkvæmni sína undir hrokalegri framkomu. Samfara þessum skapeinkennum var óvenjuleg tortryggni. Hæfileikar til skilnings og eðlilegra viðbragða gagnvart öðru fólki minnkaði vegna vantrausts á félögunum, svipað og á sér stað hjá geðtrufluðu fólki. Þrátt fyrir þessa skapbresti skiptu þessir menn ekki oft um starf. í stað þess að segja upp starfi við minnstu áreitni, eins og vænta hefði mátt, héldu þeir áfram við starfið. Þetta er í fullu samræmi við fyrri athug- anir, sem benda til þess, að ekki sé unnt að greina drykkjusjúklinginn af því, hve oft hann skiptir um starf. Hann er „staðfastur“ launþegi. Einkenni utan starfsins Drykkjusjúklingurinn kemst fljót- lega í fjárhagslegt, heimilislegt og þjóðfélagslegt öngþveiti. Meiri Iíkur eru til, að hann flæki sig í skuldum og fjötrum við lánastofnanir en flest- ir aðrir launþegar. Þetta er í sam- ræmi við þá staðreynd, að hann hef- ur tilhneigingu til að eyða miklu meira fé í áfengi en vinnufélagar hans og um lengra tímabil. Líkt og afsakanir hans fyrir fjarveru, lenda IÐNAÐARMÁL 111

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.