Iðnaðarmál - 01.06.1967, Blaðsíða 36

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Blaðsíða 36
notkunar. Þetta á sérstaklega við rannsóknastofnun landbúnaðarins, fiskiðnaðarins og Hafrannsóknar- stofnunina, þar sem verkefni þessara stofnana fjalla að stórum hluta um grundvallarvitneskju um hráefni við- komandi atvinnuvega. Hins vegar hafa rannsóknastofnanir iðnaðarins og byggingariðnaðarins að stærri hluta samningsbundin verkefni fyrir ákveðna aðila eða fyrirtæki úr at- vinnuvegum þeirra. 4. Síðustu tölur um útgjöld til rannsóknamála í hundraðshluta af þjóðarframleiðslu eru frá 1960, og nema þau tæpum 0,5%. Þessi hlut- fallstala er lægri en hjá öðrum Norð- urlöndum. Stærsti hlutinn af útgjöld- unum rennur til rannsóknastofnana í þágu atvinnuveganna. Onnur rann- sóknastarfsemi er aðallega á sviði eðlisfræði og stærðfræði (Raunvís- indastofnun Háskólans) og á sviði ■ siununnin ’iiuiniiuiiu niunuuinn ! U H 1 11111111 jarðfræði (Jarðhitadeild Raforku- málastjórnar og Náttúrufræðistofn- unin). Gleggstu áhrifin, sem rannsókna- niðurstöður hafa haft á hagvöxtinn, eru í sjávarútvegi og landbúnaði. Sérstaklega hefur Hafrannsókna- stofnunin aflað meiri vitneskju og þekkingar um vöxt, hegðun og stað- setningu einstakra fiskistofna, og hef- ur þessi þekking leitt til meiri og ör- uggari afla. Skipulagsbygging atvinnulífsins 1. Hagstjórn (t. d. á sviði lána, tolla og viðskiptamála) hefur örvað til skipulagsbyggingar (struktur), sem einkennist aðallega af smáum og nokkrum meðalstórum fyrirtækjum. 2. Eigendur og stjórnendur fyrir- tækj a eru að stórum hluta sj álf- menntaðir menn (self made men), sem hafa oft meiri áhuga á fram- leiðslu en sölu og markaðsfærslu. Gætir þeirrar tilhneigingar, að þeir kjósi frekar að ná hámarki sjálfstæð- is og stöðu í þjóðfélaginu með rekstri fyrirtækis síns eða að viðhalda á- kveðnum markaðshluta, heldur en að keppa að sem mestum ágóða. Sjón- deildarhringur þeirra fram á við er stuttur, og má að einhverju leyti skýra það með langvarandi verð- bólgu. 3. Stjórnendur fyrirtækja hafa út frá reynslu sinni almennt frekar ó- virka afstöðu gagnvart rannsókna- stofnunum og tækifærum, sem þar er að finna til að nota sér þjónustu þeirra. Ráðstöfun fjár til rannsókna- og þróunarstarfsemi er þeim ótrygg- ari fjárfesting en kaup á efniskennd- um hlutum eins og vélum og bygg- ingum. Stærð rekstrareininganna tak- markar einnig möguleikana á því að ráða starfsfólk með æðri tækni- menntun til þess að annast rann- sókna- og þróunarstarfsemi og við- halda sambandi við rannsóknastofn- anir. 4. Rannsókna- og þróunarstarf- semi innan fyrirtækjanna hefur náð lengst í efnaiðnaði, t. d. í málningar- iðnaði, þar sem rannsóknastofur fyr- irtækjanna sjá um virka vöruþróun og vörusköpun. 5. Mikill áhugi er liins vegar á rannsókna- og þróunarniðurstöðum frá útlöndum (innfluttar tæknifram- farir) í mynd nýrra véla. Innfærsla þessara niðurstaðna í atvinnulífið hefur haft ýmis áhrif á skipulags- byggingu einstakra atvinnugreina. í sjávarútvegi hefur það leitt til meiri afkastagetu einstakra fiskiskipa. Hins vegar er í heimamarkaðsiðnaðinum ríkjandi sterkari tilhneiging til að stofna ný fyrirtæki til hagnýtingar á innfluttum tækninýjungum vegna sj álfstæðistilhneigingar eigendanna. HiS formlega samband milli rann- sókna og atvinnulífs 1. Eitt af markmiðunum með end- urskipulagningu rannsókna í þágu at- vinnuveganna árið 1965 var, að rann- sóknastarfsemin skyldi tengjast betur atvinnulífinu. Stofnanirnar voru því ekki lengur látnar heyra undir Rann- sóknaráð ríkisins, heldur einstök fagráðuneyti. Ennfremur fékk hver stofnun ráðgjafanefnd, sem í áttu sæti fulltrúar frá ýmsum samtökum atvinuvegarins og öðrum samtökum, sem hagsmuna kynnu að hafa að gæta, og stjórn, sem í eiga sæti full- trúar frá aðalsamtökum atvinnuveg- arins, ráðgjafanefndinni og fulltrúar ráðuneytisins. Með þessum breytingum hafa stofn- anirnar fengið tvö skýr hlutverka- svið, annars vegar þj ónustuhlutverk- ið við atvinnuvegina, hins vegar ráð- gefandi hlutverk fyrir hlutaðeigandi fagráðuneyti. Þessi tvískipting á hlut- verki þeirra hefur bæði kosti og galla. 2. Stærstu ókostirnir voru að áliti umræðuhópsins tveir. Annars vegar hugsanleg tortryggni atvinnurekenda gagnvart stofnunum, sem einnig eru ráðgefandi fyrir ríkisvaldið, og hins vegar erfiðleikar á að reka samhæfða rannsóknastefnu, sem sett gæti upp forgangsröð fyrir einstök rannsókna- verkefni. 3. Umræðuhópurinn sá aðalkost- ina við endurskipulagninguna í því að auka til muna hið ráðgefandi hlut- verk stofnananna gagnvart fagráðu- neytum eða ríkisvaldi, þannig að stofnanirnar tækju virkan þátt í á- kvörðunum urn ráðstafanir gagnvart hinum einstöku atvinnuvegum. Taldi umræðuhópurinn æskilegt í þessu til- liti, að fyrir hendi væri fyrir hvern atvinnuveg skýrt uppbyggt hagstj órn- arkerfi, þar sem rannsóknastofnan- irnar væru í ákveðnum sessi og tækju þátt í að ákveða markmið, leiðir eða ráðstafanir, sem grípa skyldi til gagn- vart atvinnuvegunum, og að annast söfnun upplýsinga um það, hvernig til hefði tekizt með einstakar ráð- stafanir (feed-back). Ef ráðgefandi 106 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.