Iðnaðarmál - 01.06.1967, Blaðsíða 42

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Blaðsíða 42
Áfengissýki: Byrjunareinkenni Af venjum áfengissjúklings, bæði við starfið og utan þess, er unnt að greina sjúkdóminn á byrjunarstigi, áSur en sjúklingurinn er orðinn vandræðamaður, sjálfum sér, fjölskyldu sinni og vinnuveitanda. Þessi rannsókn sýnir, að ákveðin einkenni gefa til kynna, að starfs- maðurin hafi farið yfir markalínu hóflegrar áfengisneyzlu: Auknar ijarvistir. Skrykkjótt vinnulag. Afbrigðileg hegðun, bæði bkamleg og í limderni. Ef eftirfarandi atriði styrkja þessi einkenni: óvenjuleg drykkjuhegðun utan starís og heimilisleg, ijárhagsleg og þjóðiélagsleg vandamál, þá er mjög sennilegt, að um áfengissýki sé að ræða. Þótt aðeins læknir eða sálfræðingur geti gert endanlega sjúkdóms- greiningu, ættu stjórnendur að vera á verði gagnvart þessum einkenn- um. Marga starfsmenn, sem nú eiga í baráttu við magnaða drykkju- sýki, hefði mátt endurhæfa miklu fyrr, ef yfirmenn þeirra hefðu skilið þessi einkenni rétt. fjármál hans í æ meiri flækju, eftir því sem drykkjusýkin ágerist. Sundurþykkja í hjónabandi fylgir ekki alltaf drykkjuskapnum. En í flestum tilfellum fer þó svo, að á- sóknin í fjölskyldusjóðinn veldur á- rekstrum, jafnframt því sem varan- legt drykkjutímabil spillir fjölskyldu- venjum og eykur stórlega allan eðli- legan ágreining. Það var áberandi, að aukin „heimilisvandræði“ voru tilgreind í flestum svörunum. En þó var það einkennandi, að eiginkonan var í fyrstu áköf í því að neita til- veru vandamálsins og hylja bresti eiginmannsins. En eftir því sem spill- ing fjölskyldulifsins ágerðist, breytti hún um afstöðu og kvartaði þá við hvern sem var. Onnur einkenni geta — eftir því sem rannsóknin leiðir í ljós — stafað af árekstrum við nágranna eða lög- reglu. Ef slíkir árekstrar endurtaka sig, bendir það til þess, að drykkjan sé farin að valda reglubundnum á- rekstrum við samfélag drykkju- mannsins. Þessi vandamál utan starfs vekja oft athygli verkstjórnenda og veit- ingamanna. Ef þau koma heim við sálræn og líkamleg sj úkdómseinkenni, er vart hefur orðið við störfin, styrkja þau þá grunsemd, að um á- fengissýki sé að ræða. Greiningin er ekki auðveld Þrátt fyrir öll þessi einkenni er alls ekki auðvelt að greina áfengissjúk- linginn á byrjunarstigi. Félagar hans, sem aðstöðu hafa til að geta greint þessi einkenni, hafa tilhneigingu til að hlífa honum fremur en að vekja athygli starfsmannastj óra eða lækna á honum. Jafnvel húsbóndi hans get- ur tekið þá afstöðu. Sannleikurinn er sá, eftir því sem sögumenn skýra frá, að þeir tveir menn, sem fyrst og fremst bera ábyrgð á feluleiknum, eru drykkjumaðurinn sjálfur og nán- asti yfirmaður hans. Yfirmaðurinn lítur á hinn byrj- andi drykkjusjúkling sem „góðan mann, sem fær sér öðru hverju full mikið í staupinu.11 Og þar sem starfs- maðurinn er venjulega fjölskyldu- maður, þá vill yfirmaðurinn ógjarn- an „koma honum í vandræði." Þar að auki — ef kunnugt verður um vandamálið — kynni yfirmaðurinn að missa af góðum starfsmanni. Þessi afstaða, ásamt hinni almennu fáfræði um drykkjusýki, ogsljóleiki gagnvart fyrstu sjúkdómseinkennum, gera erf- iðara um vik að greina vandamálið. Þá er enn einn erfiðleiki fólginn í þeirri staðreynd, að drykkjusýkin er vaxandi sjúkdómur, sem stundum getur tekið 10—15 ár að þróast. Á byrjunarstigi eru engin skelfileg sjúk- dómseinkenni. Sú glötun sjálfstjórn- ar, sem gefur bendingar um langþró- aða drykkjusýki, kemur smám sam- an, oft svo að lítið ber á. Ef hin fyrslu merki um drykkjusýki eru ekki viðurkennd sem slík, getur mönnum auðveldlega sézt yfir hinar hœgfara breytingar á mörgum árum, sem að lokum enda með skelfingu. Varnaðarorð Skjót greining verður að byggjast á h'kum fremur en vissu. Aldrei má líta á eitt einkenni eða jafnvel sam- einingu fleiri einkenna sem algilda sönnun þess, að um drykkjusýki sé að ræða. Ymsar aðrar ástæður geta verið til skýringar á „einkennum." Öll skapgerðareinkennin, sem áður er lýst, geta t. d. komið fyrir, þótt ekki sé um neitt áfengisvandamál að ræða. í stuttu máli, engin merki eða sjúkdómseinkenni gefa alveg ó- brigðular bendingar um drykkjusýki. Af þessu leiðir, að skjót greining verður að byggjast á því, að litið sé á sameinuð einkenni sem líJdega sönnun. Eftir því sem auðkenni vandamálsins koma betur í lj ós, verð- ur sönnunin sterkari. Þar sem treysta verður á tiltölulega óþjálfaða menn á þessu sviði, svo sem verkstjóra, til að uppgötva fyrstu einkennin, gefa skráðar athuganir þeirra bendingar um að drykkjusýki geti átt sér stað, en ekki endilega, að hún eigi sér stað. Þegar verkstj órnandi eða annar athugandi hefur tilkynnt um mögu- leika á drykkjusýki, nær ábyrgð hans ekki lengra. Raunverulega sjúkdóms- greiningu verður að fela lækni og sálfræðingi, sem geta gert nákvæmar athuganir. Endanlegur úrskurður skyldi aldrei kveðinn upp af öðrum en hæfum manni. Ef til vill er niður- staða hans aðeins „grunur.“ En ef þessi grunur er vel rökstuddur og nákvæmlega útskýrður, getur hann orðið til þess, að góðum starfsmanni verði hjargað með réttri meðferð. Ur „Personnel Magazine", maí 1957. — Þýð. J. Bj. 112 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.