Iðnaðarmál - 01.06.1967, Blaðsíða 29
27. Lcítlampi, Jón Ólafsson og Pétur B. Lútersson (Stálumbúðir).
28 og 29. ..Útflutningsumbúðir".
ir sýningu bóka. Meðal þeirra voru
bækur frá Norðurlöndum, Þýzka-
landi og Sviss. Þessi sýning gaf
skemmtilegan samanburð og færði
okkur heim sanninn um það, að við
getum töluvert lært í þessum efnum.
Af öðrum iðngreinum, sem vænta
má, að ryðji sér til rúms í stærra
mæli en hingað til og sem hljóta að
eiga framtíð sína að verulegu leyti
undir velheppnaðri hönnun, mætti t.
d. nefna alls konar plastiðnað, um-
búðaiðnað, rafvéla- og raflampagerð,
málmsteypur alls konar, og svo mætti
lengi telja.
Draumurinn um úlflutning list-
iðnaðarvöru
Frá fyrstu tíð virðist það hafa ver-
ið draumur hvers Islendings að geta
sér frama erlendis. Það var ekki óal-
gengt, að garpar, er hírðust hér
heima og þóttust yfir almenn fjósa-
verk hafnir, gerðust hinir mestu ber-
serkir og sigurherrar, er þeir fóru til
útlanda með sverð í hendi. Mönnum
gleymist oft að erja sinn heimaakur,
áður en haldið er í víking.
Það er að verða gamalt umræðu-
efni, að Islendingar eigi eins og aðr-
ar Norðurlandaþjóðir að hefja út-
flutning listiðnaðarvöru. Þetta er
vissulega markmið, sem stefna ber að
og nauðsyn þess að búa íslenzkan
iðnað undir samkeppni á stærri
markaði en verið hefur hingað til er
nú orðin óumflýjanleg staðreynd. Sá
tími, er íslenzkur iðnaður hefur til
samlögunar, kann meira að segja að
reynast styttri en menn órar fyrir í
dag. Það er Ijóst, að þátttaka okkar
í hinum stóru markaðsbandalögum er
háð því, að framleiðsluvörum hlutað-
eigandi landa verði opnaðir mögu-
leikar á íslenzkum markaði til jafns
við íslenzkar framleiðsluvörur. Það
er vitað, að þá kynni iðnaður okkar
sérstaklega að standa höllurn fæti.
Hingað til hafa aðeins fáar tilraunir
verið gerðar af okkar hálfu í sam-
bandi við útflutning iðnaðar og list-
iðnaðarvöru. Ekki skal fullyrt hér,
hvort á hafi skort um undirbúning eða
hvort óvæntir og ófyrirsjáanlegir erf-
iðleikar hafa valdið því, að þau
strandhögg, sem til hefur verið stofn-
að, oft með töluverðu vopnaglamri,
hafa, að því er virðist, koðnað niður.
Þetta gefur hins vegar tilefni til efa-
semda um það, að listiðnaður okkar
IÐNAÐARMÁL
99