Iðnaðarmál - 01.06.1967, Síða 26

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Síða 26
15. Innflutningurinn, sem sumir hafa viljað halda fram, að væri hinn nauð- synlegi hvati fyrir okkar framleið- endur, er evrópskt meðallag, sem ó- sjálfrátt verður mælikvarðinn á gæðavöndun og formskyn framleið- enda og alls almennings hér. Eftir því sem næst verður komizt, eru innflutt húsgögn u. þ. h. 10% af seldum húsgögnum s.l. ár. Innflutningskvótinn 1966 var um 19 millj. -(- ca 100%, þ. e. ca 38 millj. að söluverðmæti. Söluverðmæti innlendrar húsgagnaframleiðslu er á- ætlað vera 340 millj. (Ókleift liefur reynzt að afla fullnægjandi heimilda um framleiðslu eða söluverðmæti innlendra húsgagna). Það væri fróðlegt að vita, hve miklum hluta af þessari upphæð hef- 15. Stóll, Gunnar H. Guðmundsson. ur verið varið til formsköpunar og/ eða tilrauna til könnunar á gæðum hráefnis og endingargildis fullunn- innar vöru. Það dylst engum, sem til húsgagna- framleiðslu þekkir, að framleiðendur eiga við ýmsa erfiðleika að etja, og það er kannski ótímabært að ætlast til, að okkar framleiðendur geti í dag eða á morgun keppt við t. d. Norðurlandaþjóðirnar á þessu sviði. En það hlýtur þó vissulega að vera takmarkið. Eins og um fleiri greinar iðnaðar veldur hinn þröngi markað- ur mestum erfiðleikum, en þessi markaður verður heldur ekki stækk- aður, nema veruleg hugarfarsbreyt- ing eigi sér stað með tilliti til eigin formsköpunar framleiðenda. Árið 1959 og 1960 gengust hús- gagnaarkitektar og framleiðendur fyrir húsgagnasýningum. Þetta var vissulega spor í rétta átt og hefði átt að geta orðið upphaf að íslenzkri hönnun íslenzkra húsgagna. Þeir hlutir, er fram úr þóttu skara, voru sendir á handiðnaðarsýningu í Munchen. Einn þessara muna hlaut þar viðurkenningu. Á þessum hús- gagnasýningum var einnig sýndur annar listiðnaður, svo sem keramik, silfur (smelti) og myndvefnaður. Ég þykist vita, að flestir er sóttu þessar sýningar, telji sig hafa haft nokkurt gagn og gaman af. Það er miður, að þessi starfsemi skuli hafa legið niðri um sinn. 17. oo 18. 16. Hluti úr batikteppi, Sigrún Jónsdóttir. 17. og 18. Myndvefnaður, Ásgerður Búadóttir. 19. Samfelluhnappur úr silfri, ca. 1800 (Þjóðminjasafn). 20. og 21. Silfursmíði, hálsmen og hringur, Jóhannes Jóhannesson. 96 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.